Eimreiðin - 01.05.1906, Side 43
123
Kvikur ós viö íshafsskaut,
íslenzk drós og vetrarbraut,
kvöldin ljós við kyrð og skraut,
kvöldsvæf rós í grænni laut.
Hvar er land með hreinni snjó?
Hvar er land með grænni tó?
Fegurra land um mörk og mó?
Mætara land og kvæði frjó?
Við skulum báðir vera hér.
Við skulum báðir kveða hér.
Saman báðir syngja hér.
Seinast báðir liggja hér.
Og er halir hljóðna, — þá
hefjum gal á kvæðaskjá;
það mun valin gletta grá
gegn um fjalir kveðast á.
Spyrnum göflum, kveðum kátt,
köstum á djöfla höfuðsmátt,
reynum öfl við moldarmátt,
mannavöflur leikum grátt.
Hver skal róminn reyna sinn,
roðni blóm um föla kinn;
þeli ómi ormsmoginn,
unz að hljómar lúðurinn.
Nú er blaðið enda á,
enda er skaði lítill sá.
Lítt ég kvað, sem lag er á,
lagaðu það, og brendu svá.
Pegar landskjálftar ganga í Pingeyjarsýslu, eru þeir kippirnir
harðastir, sem fara um héraðið frá Mývatni og norður að austan-
verðum Skjálfanda. Á þeirri leið eru hverar og laugar í jörðu.
Og á þessari línu og béggja megin hennar eru laugalönd alþýðu-
skálda vorra Pingeyinga. Fremsta stöðin er Litlaströnd við Mý-
vatn, þar sem Þorgils gjallandi býr, eta nyrzta stöðin Sandur í
Aðaldal. Hann er við sæinn fjarðarins, og þar er
SIGURJÓN FRIÐJÓNSSON. Honum verða vísur á munni
og kvæði vonum oftar, þar sem hann er mikill ómegðarmaður og
önnum kafinn alls konar, bæði heimilisstörfum og héraðsmálum.
Meira fjölyrði ég ekki um hann, því að mér er maðurinn skyldur
að frændsemi. Vísur hans eru flestar um daginn og veginn, eða
atburði heima fyrir, og er ekki slíkt í frásögur færandi að jafnaði.
Þó er stundum horft lengra í þeim en í skjótu bragði virðist:
Þykkju frosti í þíðu snýr, vex og lengist dagur dýr;
þýtur í tímans álum; dregur að sumarmálum.
En hann er alt annað en hversdagslegur í kvæðum sínum, og eru
þau mörg þungskilin. Hann hefir ort kvæðabálk, sem hann kallar
Einbúaljóð. Mér er ókunnugt um orsakir þess, að hann skírir
kvæðabálkinn því nafni. Vera má að ræturnar til þess séu þær,
að hér í hrauninu jarðar vorrar er eyðikot, grasgrónar rústir, sem