Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Síða 45

Eimreiðin - 01.05.1906, Síða 45
125 Máttuga sól! Hve þú megnar að græða. Um minninga fold þínir Ijósstraumar flæða. Hvert mitt fölnaða strá á fræ undir snjá með framsóknarþrá upp til ljóssins hæða. ÉG MAN ÉAÐ LENGI. Ég man það lengi, er úti um engi við undum saman og dagur sté, en húmið hné, og heimurinn fyltist með gaman. Og blærinn andaði og bærði traf; um bláa sanda lá móðuhaf. En sól skein á fannkrýndum fjöllum og fuglarnir sungu á grænum og blómguðum völlum. Og skinið færðist — og blómið bærðist — um brekkur hlíða. Og dagur sté, en húmið hné og hljómurinn ómaði víða. Pá gripum við sporið við gleðisöng og glöddumst við vorið og dægur löng. Mér fundust í brjóstinu brenna og brjótast um kraftar sem máttu við tvenna og þrenna. INDRIÐI PORKELSSON. Hann sameinar bezt gamla hag- yrðinginn og unga skáldið. Lausavísur hans eru nærri því ótelj- andi og er honum víst viðlíka létt um að gera þær eins og að tala mælt mál. En þó er hann stundum heilt ár með eitt kvæði. Petta er vandvirknin. Annars veit varla nokkur maður um vísur hans, því að hann liggur á þeim. Ég er Indriða nokkuð handgenginn, en þó heyrði ég fyrst í vetur fjölda af lausavísum hans í fyrsta sinn, og hefir þó vinfengi okkar staðið mörg ár með jöfnum blóma. Hér koma þrjár vísur næst, sem hann gerði á skipsfjöl, fyrir Austurlandi, og var hann þá um tvítugt. Pær komu upp hjá honum í vetur á fundi: Mjúkan gang, sem ör af ý, Dalatangi dimmu í úlfur ranga hefur. Drafnarfangi sefur.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.