Eimreiðin - 01.05.1906, Side 49
129
Með raunir og baráttu, rústir og flög,
með raugsnúin afguðs og menningar lög,
með handvísar nætur og svipula sól,
þú sveit ert mér kær eins og barninu jól.
SIGURÐUR JÓNSSON. Ég þorði ekki fyrir Eimreiðinni að
sitja lengur hjá Indriða á Fjalli og er honum þó þann veg háttað,
að því meira er upp úr honum að hafa, sem lengur er með honum
verið. Pá er ég kominn að Arnarvatni til Sigurðar, og er þó ekki
víst að maðurinn sé heima. Nú er góa öndverð og þá er hann
við unglingakenslu i þinghúsi Mývetninga og býr þar um tíma hja
yngismensku og meydómi. Fjármann hefir hann fengið á meðan,
til að hirða fé sitt heima og taka undir, þegar kallað er í búri og
eldhúsi eftir vatni og eldivið. Ef ég kæmi vordaginn, gæti hann
verið austur á Mývatnsfjöllum við geldfjársmölun og rúning.
Sumardaginn kynni hann að vera í heyskap heiman farinn, upp í
Framengjar, eða jafnvél niður í Reykjadal. Margbýli er á Arnar-
vatni og mikill búskapur og verða bændurnir þar að hafa úti allar
klær, þó að jörðin sé góð. Sigurður er aðburðamaður mikill í bú-
sýslu, en skáldskapinn mun hann hafa lagt á hilluna. Gáfur hans
þarf ekki, til að sjá það, að einyrkjabúskapur og skáldskapur eru
ekki samrýndir að eðlisfari. Farið er og að vefja hann í sveitar-
sökum og kaupfélagsvafstri. Og þá er safnað glóðum elds yfir
höfuð skáldgáfunnar.
Sigurður er alinn upp hjá Laxá og hefir haft hana fyrir augum
og eyrum mestan hluta æfi sinnar. Pegar kemur út á hlaðið að
Helluvaði, þá sést hún renna neðan við varpann og heyrist spila
á strengina, alauð alt árið, hvernig sem viðrar. Petta er fóstra
hans — gullfagra áin, blátæra, iðandi af lífi, sýnilegu lífi og ósýni-
legu. Hvannstóð og gulvíðir eru í öllum hólmum og andavarp.
Par eru allar andir saman komnar, sem til eru í andfuglaríki
landsins. Silungur er í ánni og frjómagn í hverjum dropa meira
og betra en í nokkurri annarri elfi Fjallkonunnar. —- Sigurður er
einstakur maður og áin er einstök. Hann hefir og ort einstakt
kvæði um einstöku ána.
LAXÁ VIÐ MÝVATN.
Af fjallkrýndri sléttu um flúðir og kletta
þú flæðir braut.
9