Eimreiðin - 01.05.1906, Side 55
i35
yfir ána, þar sem hún féll úr vatninu, og skamt frá henni eldgömul tré-
brú, hrörleg og fáránleg, prýdd »freskó«-myndum að þeirra alda sið.
það er hún, sem Longfellow lýsir svo prýðilega í sGolden Legend«.
Alstaðar í nánd reis hvert gistihallar-báknið við hliðina á öðru, sum hin
mestu stórhýsi og skrauthýsi En þegar ég leit út yfir vatnið datt ofan
yfir mig. Eg hafði gert mér von um að sjá langar leiðir yfir stóran
vatnsflöt, eins og frá Ziirich; nú sá ég aðeins ofurlitla tjörn. Ráðning
þeirrar gátu kom brátt í ljós, þegar ég leit á uppdráttinn yfir bæinn
og grendina. Luzern stendur við ofurlítið vik í norðvesturhorninu á
Vierwaldstátter, sem lokast fyrir auganu innan úr bænum að sjá.
Leið mín lá yfir brúna, sem ég nefndi áður. Mér varð starsýnt á
margt, sem ég sá þaðan, en þó ekki hvað sízt á ána sjálfa, Reuss,
sem leið þar áfram lygn og slétt, en með þungum straumi, undir brúar-
i. LUZERN (séð frá hæð á bak við bæinn). Til hægri á myndinni sjást fjöllin
Pílatus og Stanshorn.
bogana, blágræn á litinn eins og vatnið í Geysi. Ég hafði búist við að
hún væri gruggug og blandin jökulauri, en hún var tær, svo vel sást í
botninn, Vatnið myndast sem sé mestmegnis af berglindum, sem koma
úr fjöllunum í kringum það; jökulánna, sem renna í það að sunnan (Reuss).
gætir varla, og þegar litið er yfir vatnið sjálft, er það blágrænt eins
og áin.
Hinum megin á árbakkanum var ferðamannaskrifstofan, þar sem út-
býtt er öllum ósköpunum af bókum, pésum, uppdráttum og myndablöðum
yfir bæinn og nágrennið og allar upplýsingar gefnar sem að ferðum þar
lúta — alt saman ókeypis. Luzern er miðstöð ferðamannastraumsins um
þennan hluta landsins og alt hugsanlegt gert til að greiða fyrir ferða-
mönnunum. Bærinn lifir líka mestmegnis á gestkomum; íbúarnir eru að
eins um 30,000, en gestirnir, sem koma þar við í meðalári, eru yfir
300,000.