Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Page 57

Eimreiðin - 01.05.1906, Page 57
137 sjá kvöldskinið á jöklunum — Alpaglóðina — frá útsýnisturninum á Götch, rétt ofan við bæinn. Luzern liggur um 1299 fet yfir sjó. Bærinn stendur í hæðum luktri kvos við hornið á vatninu, og er því útsýni lítið úr sjálfum bænum. Bak við bæinn þrengist kvosin, og rennur Reuss (frb. röjss) þar í þrengslum á milli hæðanna með beljandi straumkasti, og líkist þá dálítið Soginu á köflum, nema hvað hún er vatnsmeiri. Uppi á hæðunum hægra megin árinnar stendur eldgamalt klaustur, og er umgirt stórt tún í kring um það, svo til að sjá er það ekkt ósvipað íslenzku bændabýli. — Skamt frá bænum eru tvö ágæt útsýnisfjöll, Rígí og Pílatus, sitt hvoru megin vatnsins, bæði á hæð við Öræfajökul (yfir sjó) og liggja járnbrautir upp á þau bæði. Pílatus er að vísu dálítið hærri en Rígí, en víðsýnið er þó 3. VIER W ALDSTÁTTER-V ATNIÐ. 1. Luzern. 2. Kíissnacht. 3. Vitznau. 4. Brunnen. 5. Fliielen. 6. Altdorf. 7. Seelisberg. 8. Schillerstein. 9. Stans. 10. Alpnachstadt. ekki eins orðlagt þaðan. Af Rígí er víðsýnið mikið og frægt yfir alla svissnesku hásléttuna, Júrafjöllin og suðurhluta Þýzkalands og enginn vandi að komast þangað upp, þótt járnbrautin sé ekki notuð; en Pílatus er hærri og brattari og tignarlegur ásýndum. í’að, sem skrifað hefir verið um hérað þetta og fegurð þess á öllum málum, eru engar smáræðisbókmentir, en perlan í því öllu saman er »Wilhelm Tell«. — — Morguninn eftir var ég snemma á fótum í fögru veðri og heiðskíru, en svo miklum kulda, áður en sólin fór að verma, að ég átti fult í fangi með að verja mig skjálfta. Skip lá ferðbúið við bryggjuna og tók ég mér far með því inn eftir Vierwaldstátter-vatninu — inn i hérað Vil- hjálms Tells.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.