Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Síða 60

Eimreiðin - 01.05.1906, Síða 60
140 kringum Vierwaldstattervatnið hefir hann þekt, og alt, sem þar er til fagurt og einkennilegt — og það er margt — hefir hann tekið með, ofið það saman við atburðina og sungið það ásamt sögunni sjálfri inn í hug og hjarta alls heimsins — sungið athygli íjarlægra þjóða að þessum stöðvum, með slíku töfraafli, sem listin ein á hæsta stigi hefir í vængjum sínum og hörpu sinni. Hann hefir kent öllum heiminum að elska þessar stöðvar — og engar stöðvar í víðri veröld eru liklega jafnmörgum kærar — En Schiller hefir ort meira um Alpaíjöllin en þennan eina leik, þótt hann auðvitað sé það stærsta Smákvæði hans um fjöllin, svo sem »Bergslied«, »der Alpenjager«. »der Schiitz« o. fl. eru sannir gimsteinar og á vörum allra ljóðavina Það mætti því með sanni kalla hann einn af feðrum Alpafrægðarinnar. Þessi hrikafagra íjallanáttúra átti við anda hans. Það var eins og »útlaginn frá Stuttgart«, hinn fyrirlitni og fé- lausi, fyndi ekki anda sínum frið og svölun, nema í sambúð við eitthvað það, sem hafið væri yfir það algenga, eins og þessi fjallanáttúra, þar sem unaður og skelfing blandast saman, bros og glott mæta auganu í sömu andránni, óg tign hins hæsta og fegursta ber ægishjálm yfir það kuldalega og skuggalega; þar sem drengskapur, frelsisþrá og föðurlands- ást eru mönnunum meðfæddar og lífið krefst karlmensku, áræðis, snar- ræðis og fyrirlitningar fyrir dauðanum. 1 slíkum heimi dvaldi andi skáldsins langdvölum, og ef til vill hefir sú umgengni gefið honum vöxt, svo hann að lokum bæri höfuð og herðar yfir aðra menn — yrði tröll með tröllum. Annað andans stórmenni, sem einnig hóf sig hæst, þegar hann kom í Alpaþrengslin, var Byron — — Þegar sólin fór að hækka á lofti, varð nógu heitt, — svo heitt, að ég að lokum blessaði sólseglið, sem var spent út yfir efra þilfarið framan og aftan við reykháfinn. Enginn vindblær bærðist, svo vatnsflöt urinn var spegilsléttur og skínandi bjartur, en yfir honum og fjöllunum skein sumarhimininn, hár og heiður, og maður andaði að sér hreinu og hressandi fjallalofti, hálf-suðrænu, hálf-norrænu. Hásigldar skemtisnekkjur sigu hægt áfram undir mjallhvítum voðum, og spegluðu sig í vatninu, en áraglam heyrðist uppi undir ströndunum hér og þar og glitraði þar á brot í landsskaganum, sem var báran út frá róðrarskélinni. Frá báðum hliðum ómuðu bjöllur hjarðanna, eins og hátíðlegt klukkuspil í fjarlægð. — Það var morgunljóðið ofan úr fjallahlíðunum. Báturinn, sem var með björtum, skrautlegum sölum og stórum, vel skygðum gluggum bæði yfir og undir þiljum, buslaði áfram með hjólunum og spymti vatninu í hvít- freyðandi breiðri straumröst aftur undan sér. Farþegar voru fáir fyrst, en þeim fjölgaði smátt og smátt á hverri viðkomustöð. Við fórum fyrir framan fjörð þann, sem liggur úr vatninu inn að Kussnacht, þar sem aðsetursborg harðstjórans stóð og þar sem hann var veginn, og lögðum að landi í Vitznau; þaðan liggur járnbrautin upp á Rígí. f’egar þaðan er farið, virðist svo sem maður stefni á samfelda strönd, því sundið inn í næsta hluta vatnsins opnast eins og leynidyr, þegar að því er komið, og skipið skríður milli fjalla, sem ganga fram að sundinu beggja megin. Eftir að inn kemur úr sundinu, rýmkast vatnið aftur og fögur héruð blasa við á báðar hendur. Bygðinni hallar allri niður að vatninu og bændabýli gægjast alstaðar fram úr þéttum skógum

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.