Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Síða 77

Eimreiðin - 01.05.1906, Síða 77
haustmánaðarblöðunum hefir hann bætt við náttiírulýsingum og ferðasögum sínum frá íslandi, sem eru svo vel ritaðar, svo innilegar og þrungnar lífsanda, að eigi verður hjá því komist að verða hugfanginn; hann elskar það, sem hann skrifar um, það leynir sér ekki. Sómi er íslandi að slíkum syni! G. Sv. DAS PLEISTOCÁN ISLANDS (Einige Bemerkungen zu den vorláufigen Mitteilungen Dr. W. v. Knebel’s) heitir ritgerð eftir dr. Helga Pjetursson, sem hann hefir birt nýlega í jarðfræðisblaði þýzku (»Centralblatt fiir Mineralogie, Geologie und Paláontologie«). Sem sjá má af undirtitlinum er hún athugasemd við grein eftir dr. Knebel um ísl. jarðfræði í sama blaði. G. Sv. DANIEL BRUUN: GENERALSTABENS OPMAALING PAA ISLAND. Kbh. 1905. Daniel höfuðsmaður Bruun, sem er orðinu alkunnur á íslandi, hefir skrifað í »Tidsskrift for Landokonomi« lýsingu á hinu íslenzka mælingarstarfi dönsku liðs- foringjadeildarinnar. Mælingin hefir enn sem komið er eingöngu, að kalla má, farið fram á Suðurlandsundirlendinu, frá Rvík til Hornafjarðar, sem er sá kafli landsins, er einna örðugastur mun viðfangs (eyðisandar, jökulvötn, hraun, fjöll og jöklar) j þar var og mest nauðsyn fyrir hendi, þar sem hinar afarhættulegu strendur Skaftafells- sýslna vóru áður ærið ónákvæmt mældar, sumstaðar rammskakt. Mælingamanna- kortið er bæði strandkort (sjómæling handa farmönnum) og landkort (nákvæm mæling láglendis og hálendis). Glæsilegt kort yfir 0ræfajökul, 0ræfi og Skeiðarársand fylgir þessari lýsingu, einnig tvö smákort eftir höf. yfir Skaftafell og Svínafell (með skýringum) og nokkrar ágætar ljósmyndir úr 0ræfum, Skaftafellsskógi, þar á meðal af hæsta tré landsins, reynitrénu í gilinu metra eða c. 15 álna) teknar af hinum unga, efnilega ljós- myndara Eggert Guðmundssyni, sem druknaði í Kúðafljóti í fyrra. Ekki verður því neitað, að kostnaðarsamar eru þessar mælingar, en þó gœti kostnaðarupphæðin orðið minni — vafalaust —, ef »mælingamennirnir« væru íslendingar. Og rétt er að hafa það hugfast, að það þarf ekki að vera okkur ofvaxið að mæla sjálfir landið okkar. G. Sv. D. 0STLUND: DIGTE. Rvík 1902. Höfundur kvæða þessara er fyrst og ffernst trúmaður, og er mikill hluti bókarinnar guðrækilegs efnis. Skal ég þar fátt til leggja, því að ég er ekki guðfræðingur. Hitt þykir mér meira vert, hvílíkur tungumálagarpur hann er. Þarna ægir öllu saman: dansknorsku, nýnorsku, sænsku, ensku og íslenzku. Tekst honum víða allvel, og er þetta ekki hvers manns meðfæri, þótt hagmæltur sé og vel að sér. Aftast í bókinni eru nokkrar þýðingar af íslenzk- um kvæðum. í*ar er sumt dável þýtt, en óheppilega þykja mér kvæði þau valin, sum hver, og því ólíklegt að þýðingarnar veki eftirtekt margra.x) A. B. x) í*að hefir gleymst að geta kvæða þessara að undanfömu, þó þau hafi verið send Eimr. fyrir löngu. Ritstj.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.