Áramót - 01.03.1906, Page 11
15
íslendingabyggöunum austan við Manitoba-vatn engæ
prestsjjjónustu-hjálp, eins og það væri af tómu vilja-
le.ysi. . ASallega er auövitaö orsökin sú, aö starfsmanna-
fæöin í kirkjufélaginu er svo mikil; en meöfram einnig;
sú, að á því svæði er búsettr .lúterskr prestr einn ís-
lenzkr, séra Jón Jónsson, sem vinnr kennimannleg em-
bættisverk, en þótt hann standi utan kirkjufélags vors-
Vestr á Kyrrahafssströnd býr og býsna margt íslenzkt
fólk á við og dreif um afar stórt svæöi, sem kirkjufé-
lagið hefir fúslega viljað liðsinna, en hefir til þessa ekki
með neinu móti getaö, sökum þess hve fáir eru verka-
menn þess. Um hjálparvon í þessu tilliti frá íslandi
er víst ekki framar til neins að hugsa. KirkjufélagiS'
verðr að útvega sér starfsmenn úr sínum eigin hópii
hér, uppala nógu marga unga menn innan safnaðannai
til hinnar drottinlegu þjónustu. Og nokkrir slíkir eru á
leiðinni, en mikils til of fáir, og flestir þeirra eiga enra
all-langt í land. Núverandi prestaskortr í kirkjufélag-
inu ætti vissulega að vera oss sterk hvöt til þess i drott-
ins nafni að glœða og efla vor á meðal kristilega leik-
manna-starfsemi sem mest.
Á prestaskólann lúterska í Chicago, er þingið f
fyrra viðrkenndi sem menntastofnan fyrir væntanlega
kennimenn félags vors, gengu í vetr fjórir íslendingar,.
og eru tveir þeirra áðr nefndir, þeir Jóhann Bjarnason
og Runólfr Fjeldsteð. Hinn síðarnefndi útskrifaðist
frá Wesley College í fyrra og hefir að eins einn vetr
lagt stund á guðfrœði. Hinn fyrrnefndi hefir á presta-
skólann gergið tvo vetr. Af þeim tveim hinum heldr
að svo stöddu að eins annar áfram námi sínu á presta-
skólar.um. Hinn þarf meiri menntunar-undirbúning..
Affir hafa þessir námsmenn fengið fjárstyrk frá skól-