Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1918, Page 147
Gefið unglingum góðar fræðibækur
>47
sonar. Ársrit Fræðafjelagsins í ár er hin ódýrasta bók, sem
komið hefur út á íslensku, að Biblíunni og Nýja testamentinu
frátöldu, þá er þess er gætt, að pappír hefur á síðustu fjór-
um árum hækkað í verði um 300 °/o, prentun um 85 °/o og
bókband viðlíka mikið. Nú í ár er Ársritið töluvert stærra
en áður og er selt til ársloka fyrir eina kr., í stað þess að
það ætti að kosta 3,50 eftir núverandi bókaverði; frá nýjári
verður það selt á 2 kr.
Allir þeir menn á íslandi, sem kaupa vilja bækur Fræða-
fjelagsins, eru vinsamlega beðnir að snúa sjer til umboðs-
manna fjelagsins í Reykjavík, ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði.
Að panta þær hjá stjórn Fræðafjelagsins er árangurslaust
fyrir menn, sem eiga heima á íslandi, nema andvirði sje sent
með pöntuninni; má þá fá mikið betra verð, ef mörg eintök
eru keypt í einu af sömu bókinni, t. a. m. 100' eintök
af Ársritinu eða af Orðakverinu; getur það verið gott
fyrir fjelög, t. a. m. Ungmennafjelögin, eða skóla, því að
Fræðafjelagið gefur þá þriðjung verðs í kaupbæti. í’ess vegna
væri langbest fyrir ungmenni íslands, sem eru í ungmenna-
fjelögunum, að láta Sambandsstjórnina í Reykjavík kaupa þessar
bækur hjá Fræðafjelaginu, handa öllum ungmennafjelögunum.
Hvexjir umboðsmenn eru fyrir Fræðafjelagið, stendur aft-
an á kápunni á flestum af þeim bókum, sem fjelagið hefur
gefið út. Nánara um bækur þess má lesa í Ársritinu í fyrra,
bls. 125 —126, og í ár. Bogi Jh. Melstéb.
Gefiö unglinguin góðar fræðibækur. Menn ættu að
gefa unglingum góðar fræðibækur og börnum góðar barna-
bækur ( staðinn fyrir hitt og þetta, sem þau hafa ekkert gagn
af og oft skaða. Sumir gefa unglingum óholl sætindi eða
tóbak, sem er þeim til skaða; þeir ættu heldur að gefa góða
og fróðlega bók.
Ársrit Fræðafjelagsins er hin ódýrasta bók, sem kemur
út á íslensku. T’að inniheldur margan fróðieik um önnur lönd
og nytsamar upplýsingar um íslensk og erlend málefni, I’að
flytur fræðandi ritgjörðir um ýms tíðindi og greinar um merka
menn og nýjar fræðibækur. Það hefur hag íslensku þjóðar-
innar fyrir augum. Landsmenn ættu að kaupa það og gefa
ungum mönnum.
Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn var
sett á stofn 14. maí 1912. T’að hefur gefið út:
Endurminningar Páls Melsteðs með myndum. 2,50.
»Oss finst þetta skemtilegast allra íslenskra minningarrita.«
Dr. síra Jón Bjamason, Sameiningin 27. árg., bls. 316.