Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Blaðsíða 25
DAGBLAÐID & VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1981.
íþróttir
(þrótt
H-markinu. Haraldur er einn efnilegasti markvörðursem við eigum, sagði Geir Hallsteinsson
DV-mynd Friðþjófur.
r yf ir Þrótti
ttum tíma”
■Siösins, sem lagði Þrótt að velli (24-19)
endaspretti
son.
Strákarnir hans Geir byrjuðu vel gegn
Þrótturum, komust yfir 4—1, áður en Þrótt-
;arar fóru í gang. Þróttarar náðu síðan að
ijafna metin, 6—6, á 15. mín . og komust
síðan yfir, 13—10, en Hannes Guðmundsson
náði að minnka muninn fyrir FH-inga í 13—
11 fyrir leikhlé.
Sigurður tekinn úr umferð
FH-ingar hófu seinni hálfleikinn með því
að taka Sigurð Sveinsson, sem hafði skorað 7
mörk og verið óstöðvandi, úr umferð og
fékk Pálmi Jónsson það hlutverk. Þá tóku
þeir Pál Ólasson einnig úr umferð en því var
hætt fljótlega. — Við réðum ekki við það, að
leika fjórir gegn fjórum, sagði Geir.
Þróttarar komust yfir, 14—11, en FH-ingar
náðu að jafna, 14—14. Þegar Þróttarar voru
komnir í 17—15 fóru FH-ingar í gang. Þeir
jöfnuðu 17—17 á 15. mín. en þegar 12 mín.
voru tii leiksloka voru Þróttarar yfir, 18—17.
IFrábær lokasprettur
; FH-ingar voru síðan sterkari á loka-
:sprettinum, þeir léku mjög vel, vörn þeirra
var sterk og þá varði hinn 20 ára markvörður
þeirra, Haraldur Ragnarsson, mjög vel.
Sóknarleikurinn var beittur og skoruðu FH-
ingar Fimm mörk (22 x 18) í röð, án þess að
Þróttarar gætu svarað fyrir sig og loka-
tölurnar urðu síðan 24—19 fyrir FH.
FH-liðið er mjög skemmtilegt — leikur
léttan handknattleik. Með liðinu leika margir
ungir og efnilegir leikmenn, eins og Þorgils
Óttar Mathiesen, Valgarður Valgarðsson og
Kristján Arason. Markvörðurinn Haraldur
Ragnarsson var einnig traustur (varði 14
skot) og svo Guðmundur Magnússon.
Leikmenn Þróttar hafa oft leikið betur.
Sigurður Sveinsson átti mjög góðan leik,
áður en Pálmi Jónsson tók hann úr umferð
— og gerði það svo vel að Sigurður skoraði
ekki eitt einasta mark í seinni hálfleik.
Ólafur Benediktsson átti mjög góðan leik í
marki Þróttar, varði 17 skot. Páll Ólafsson
var óvenjudaufur, en hann á við meiðsli að
stríða í hendi — gat ekki skorað.
Mörkin í leiknum skoruðu þessir
leikmenn:
I FH: — Kristján 7/3, Valgarður 4, Guð-
Imundur M. 4, Þorgils Óttar 3, Pálmi 2, Hans
2, Sveinn B. 1 og Sæmundur 1.
| ÞRÓTTUR: — Sigurður 7, Gunnar
Gunnarsson 4/2, Magnús M. 2, Ólafur H. 2,
iLárus 2, Jens 1 og Páll 1/1.
< -sos.
■I ■ I ■ ■ « m
Jóhann Ingi
með atvinnu-
tilboð
frá Spáni
Jóhann Ingi Gunnarsson, hand-
knatlleiksþjálfarinn kunni, hefur
verið spurður um, hvort hann sé
tilbúinn að gerast þjálfari á Spáni
— hjá 1. deildarliðinu Malaga. Það
var þjálfari Atletico Madrid,
mótherja Víkings í Evrópukeppni
meistaraliða, sem hafði samband
við Jóhann Inga og tilkynnti
honum að Malaga-liðið hefði áhuga
á að fá hann til sín. Forráðamenn
Malaga ætla að senda Jóhanni Inga
atvinnutilboð nú næstu daga.
-SOS.
Iinia.. — rí
NÝKOMIÐ -
NÝKOMIÐ
Teg.1496
loðfóðraðir
v Litir: blátt og kakígrsant
Stœrðir: 36—46
Verð kr. 389,-
Póstsendum
Laugavegi 89. Simi 22453. Austurstrœti 6. Sími 22450.
Teg.1206
Vaðstígvól m/lausu
svampfóðri
Litir: rautt/svart, gult/svart
St. 24-27 kr. 135,-
St 28-33 kr. 145,-
St. 34-37 kr. 155,-
Teg.1205
Loðfóðruð vaðstígvél
Litir: blátt og gult
Verð:
St. 24-27 kr. 125,-
St. 28-33 kr. 135,-
St. 34-37 kr. 145,-
Teg.1502
Loðfóðruð nylon/vinyl
með rennilás.
Litir: blátt, brúnt og
kakigrænt.
Stærðir: 36—41
Verð kr. 398,-
Teg.547
Loðfóðruð kvenstigvél
Litur: óli vugrænt leður
Verð kr. 548,-
Dökkbrúnt rúskinn
Verð kr. 498,-
Stærðir: 36—41
Veið:
St 24-29 kr. 215,-
St 30-32 kr. 225,-