Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Blaðsíða 26
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF.
DAGBLADID& VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER1981.
í íþróttir íþróttir j [þrótti ir í Iþróttir.
KRISTÍN GÍSLADÓTTIR
BEZT í LUXEMBORG
þar sem stúlkur úr Gerplu urðu í þriðja sæti
Fimleikastúlkurnar úr Gerplu urðu í
þriðja sæti á alþjóðlegu fimleikamóti
sem fór fram í Luxemborg um helgina.
Steve Ovett, heimsmethafi í 1500 m
hlaupi, var skorinn upp á laugardag
vegna meiðsla I hné. Aögerðin tókst
I Þær urðu á eftir stúlkum frá V-Þýzka-
landi, sem urðu sigurvegarar, og belg-
I ískum stúlkum.
mjög vel en Ovett verður þó frá keppni
og æfingum í tvo mánuði. Hann
meiddist á æfingu fyrir 10 dögum.
Krístin Gisladóttir (14 ára) varð
sigurvegari i sinum aldursflokki hlaut
31,20 stig, og var árangur hennar talinn
sá bezti í keppninni.
Áslaug Óskarsdóttir varð þriðja í
16—18 ára flokki, hlaut 29,95 stig. Þá
vakti 11 ára gömul stúlka, Bryndís
Ólafsdóttir, mikla athygli i sínum
flokki — mikið efni á ferðinni. Bryndis
hlaut 27,10stig.
-sos.
Ovett í uppskurði á hné
NHASEV
VBIBARSFORnÐ!
Flugpúðinn hefurfarið í loftköstum um skíðalönd Evrópu að undanförnu
og hvarvetna valdið byltingu í sleðabrekkunum.
NÍÐSTERKUR EN LUNGAMJÚKÖR
Á honum eru engar skarpar brúnir eða fletir, þannig að slysahætta í sleða-
brekkum verður hverfandi lítil.
LÆTUR MJÖGVEL AÐ SUÓRN
Neðan á honum eru upphleyptargúmmímottursem komaívegfyrirað hann
snúist um sjálfan sig.
Þú breytir um stefnu með því að færatil líkamsþungann á „púðanum” eða
notar fæturna til stýringar.
RJ BLÆST HANN URPÁ BREKKUBRÚN
Loftlaus Flugpúðinn tekur sama og ekkert pláss, hvorki í bílnum né
geymslunni.
SNJÓR,GRAS EÐAVATN!
Flugpúðinn hefur þann eiginleika að geta runnið í hvaða snjó sem er og þú
getur líka rennt þér á honum niður blauta grasivaxna brekku og flotið á
honum í sundlauginni.
FUJGPÖÐINN EEST í TVEIMUR SRERÐUM
PÍRIR BÖRN 0G FUILORÐNA
Aukum öryggið í sleðabrekkunum. Góða skemmtun.
ÚTSÖUJSTAÐIR:
Reykjavík: Hilda hf. Borgartúni 22 ísaQörður: Sporthlaðan hf.
Akureyri: Sporthúsið hf. Selfoss: Sportbær
Keflavík: Sportportið. Húsavík: Víkursport sf.
Egilsstaðir: Verslunin Skógar Vestmannaeyjar:
Gunnar Ólafsson og Co. hf.
Þessar myndarlegu stúlkur urðu sigursælar f Luxemborg, en þær eru: Áslaug
Óskarsdóttir (16 ára), Kristfn Gísladóttir (14 ára), Kristfn Guðmundsdóttir
(14 ára), Bryndfs Ólafsdóttir (11 ára) og Hlfn Bjarnadóttir (10 ára).
DV-mynd S.
, Enn nýtt
Islandsmet
hjá Sigurði T.
— og Rut Stephens setti átta met á
innanfélagsmóti KR ígær
Sigurður T. Sigurðsson, KR, setti
nýtt íslandsmet f stangarstökki innan-
húss í gær. Stökk 4,88 m í KR-húsinu á
innanfélagsmóti félagsins. Eldra metið
átti hann sjálfur 4,81 m. Sigurður
reyndi næst við fimm metra og var
nærri að fara yfir þá hæð. Aðeins tíma-
spursmál hvenær það verður. Kristján
Gissurarson, KR, bætti bezta árangur
sinn í keppninni. Stökk 4,61 m. Atti
4,50 bezt áður. Þá stökk Elías Sveins-
son, KR, 4,01 m og tugþrautarmaöur-
inn Óskar Thorarensen 3,72 m.
Ung stúlka úr Dölunum, Rut
Stephens, setti hvorki fleiri né færri en
átta met á mótinu í gær. Hún er að
verða 14 ára. í þrístökki án atrennu
stökk Rut7,86m. Þaðer íslandsmet og
auk þess telpna-, meyja- og stúlkna-
met. Eldra íslandsmetið átti Helga
Halldórsdóttir, KR, 7,57 m. Þá stukku
þær Helga og Rut 1,30 m í hástökki án
atrennu. Jöfnun á íslandsmeti Helgu
en telpna-, meyja- og stúlknamet hjá
Aukaleikur Nýja-
Sjálands og Kína
— Ný-Sjálendingar sigruðu Saudi-Arabíu 0-5 í HM
Þaö þarf að fara fram aukaleikur um
24. og lokasætiö i úrslitakeppni HM i
knattspyrnu á Spáni næsta sumar. Ný-
Sjálendingar unnu það mikla afrek í
gær að sigra Saudi-Arabíu 5—0 í
Riyadh. Urðu þar með jafnir Kína að
stigum. Markamunurinn hinn sami og
Kina og Nýja-Sjáland þurfa þvi að
leika um 24. sætið á hlutlausum velli.
Ný-Sjálendingar skoruðu öll mörkin
sín fimm í fyrri hálfleiknum á heima-
velli arabanna. Tókst hins vegarekkii
að auka muninn í síðari hálfleik. Eitt
mark til viðbótar hefði nægt þeim.
Wynton Rufer skoraði fyrsta markið á
16. mín. og næstum á sömu minútunni
skoraði Brian Turner. Þeir Rufer og
Dallas vann
Portland
Dallas Mavericks sigraði Portland
Trail Blazers, liðið sem Pétur
Guðmundsson leikur með i bandaríska
körfuknattleiknum, með 102 gegn 95 á
laugardag. Af öðrum úrslitum má
nefna að Philadelphia 76ers sigraði
Boston Celticsl23—118. Los Angeles
l.akers vann San Diego Clippers 106—
100.
-hsim.
Steve Wooddin skoruðu síðan tvö
mörk með mínútu millibili upp úr
miðjum hálfleiknum. Rétt fyrir hálfieik
skoraði Turner fimmta markið úr víta-
spyrnu. Þar við sat þrátt fyrir mikla til-
burði Ný-Sjálendinga til að auka
muninn.
Lokastaðan í riðlinum varð þannig:
Kuwait 6 4 11 8—6 9
Kína 6,3 1 2 9—4 7
N-Sjáland 6 2 3 1 11—4 7
S-Arabía 6 0 1 5 4—16 1
Eina stig sitt fengu Saudi-Arabar á
heimavelli Ný-Sjálendinga. Kuwait
hafði fyrir nokkru tryggt sér sæti í úr-
slitum í HM. Það er í fyrsta skipti sem
Arabalandið ieikur í úrslitum. Kína og
Nýja-Sjáland hafa heldur aldrei tekið
þátt í úrslitakeppninni.
-hsim.
Bogdan áfram
hjá Víkingi?
Vikingar eru nú þegar byrjaðir að
ræða við hinn snjalla handknattleiks-
þjálfara BOGDAN — um það hvort
hann sé tilbúinn að vera eitt ár til við-
bótar með Víkingsliðið, en Bogdan hef-
ur náð frábærum árangri með Víkinga
undanfarin ár. Viðræður eru nú aöeins
á byrjunarstigi. -SOS
Sigurður T. Sigurðsson.
Rut auk jöfnunar íslandsmetsins. í
aukatilraun stukku báðar 1,35 m, sem
ekki verður tekið gilt sem íslandsmet en
sýnir hvert þær stefna.
-hsím.