Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Blaðsíða 43
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1981. 43 Andlát Sigurður Hannesson bóndi Stóru- Sandvík í Flóa varð bráðkvaddur 11. desember 1981. Hann var fæddur í Stóru-Sandvík 4. apríl 1916. Foreldrar hans voru Hannes Magnússon og Sigríður Kristín Jóhannsdóttir. Sigurður kvæntist Hólmfríði Þórðar- dóttur. Þau eignuðust sex börn, eitt þeirra lést í bernsku. Sigurður verður jarðsunginn í dag 19. desember frá Stokkseyrarkirkju kl. 14.00. Jóna Magnúsina Þóroddsdóttir frá Flateyri, Blönduhlíð 21, lézt 13. desember 1981. Hún var fædd 7. janúar 1901. Foreldrar hennar voru María Ólöf Bjarnadóttir og Þóroddur Davíðsson, þau eignuðust 11 börn. Jóna giftist Janusi Þorbjörnssyni, þau eignuðust eina dóttur. Jóna stundaði saumaskap auk ýmissa annarra starfa. Hún verður jarðsungin í dag frá Foss- vogskirkju kl. 13.30. Eirikur ttjarnason iézt 11. desember 1981. Hann var fæddur 7. desember 1909 að Bóli í Biskupstungum. Aðeins 9 ára eignaðist Eiríkur sína fyrstu harmóniku og hefur hann víða spilað síðan. Hann kvæntist Sigríði Björns- dóttur og voru þau brautryðjendur kvikmyndasýninga austanfjalls. Eiríkur var hótelstjóri í Hveragerði. Ólafur Hansson prófessor, Tómasar- haga 35, lézt í Landspítalanum 18. desember. Óskar Gunnarsson, Reynihvammi 10 Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni mánudaginn 21. desember kl. 13.30. Sæunn Sigurðardóttir frá Hnífsdal, vistheimilinu Kumbaravogi, verður jarðsungin mánudaginn 21. desember frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Margrét Guðmundsdóttir andaðist að Elliheimilinu Grund þann 13. desember. Hún var fædd 28. júlí 1900 á Seltjarnarnesi. Verður hún jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, 21. desember, kl. 10.30. Elin Sigurjónsdóttir lézt 14. desember. Hún var fædd 4. október 1900. Útför hennar verður gerð frá Laugarnes- kirkju í dag 21. desember kl. 10.30. Anna Guttormsdóttir, Ljárskógum 2, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. des. kl. 1.30. - Ásgeir Jóhannsson, Mánavegi 5, Selfossi, verður jarðsunginn þriðjudaginn 22. desember. Kiveðjuathöfn verður í Selfosskirkju kl. 12. Jarðsett í Kálfholti kl. 2. Björg Guðmundsdóttir frá Hofsósi, sem andaðist 15. desember, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 22.. desember kl. 14. Eirikka Eiríksdóttir, Barmahlíð 1, er^ látin. Guðbjörg G. Konráðsson, Laufásvegi 60 Reykjavik, sem lézt sunnudaginn 13. desember sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 22. desemberkl. 1.30. Guðmundur Jóhannesson læknir, Sigluvogi 4, Reykjavík, sem lézt 13. desember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 22. desemberkl. 15. Guðrún Brandsdóttir frá Bessa- stöðum í Vestmannaeyjum andaðist á Hrafnistu 16. desember sl. Halldór Einarsson frá Kárastöðum í Þingvallasveit verður jarðsettur frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. desemberkl. 10.30. Ingibjörg Ágústa Gissurardóttir, Sólvangi Hafnarfirði, andaðist í Vifilsstaðaspítala 17. desember. Vetrarsólhvörf í dag: Myrkrið víkur Skemmstur sólargangur á árinu er i dag, 21. desember. í morgun birti klukkan rétt rúmlega tíu. Nóttin tekur aftur völdin tíu mínútum fyrir fimm síðdegis. Kortér vantar upp á að dagsbirtan nái að vara í sjö klukkustundir. Myrkr- ið ríkir hinar sautján stundir sólar- hringsins. En nú fer daginn að lengja á ný. Um áramótin er hann tíu mínútum lengri en í dag og mánuði síðar tveim timum lengri. Og þá eru ekki nema tæpar tólf vikur í sumardaginn fyrsta. -kmu. Týndiveski í Sel jahverf i Ungur piltur var svo óheppinn að týna veskinu sínu, sennilega í Selja- hverfi. Hann hafði tekið út orlof sitt þann sama dag, þannig að aleiga hans, 600 krónur, var í veskinu. Veskið er lítið, brúnt og í þvi eru skilríki. Skilvís finnandi er vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 73650 eða við lögregl- una í Reykjavík. Um helgina Um hclgina Enska knattspyrnan léleg aldrei þessu vant Þá er enn ein helgin liðin með kurt og pí. Eins og vanalega sat ég fyrir framan sjónvarpið meiri hluta laug- ardagsins. Útvarpið var aftur á móti útundan enda hvernig er hægt að fylgjast með tveimur fjölmiðlum í einu? Ég spyr. Að vísu hefi ég þann vana að hlusta á BBC World Service á laugardögum frá klukkan 3—5 en þá er leikjum í ensku knattspyrnunni lýst. Núna féllu fiestir leikirnir niður, þannig að ég varð við ósk konunnar og fór í verzlunarleiðangur til að koma 1 veg fyrir að fjölskyldan færi í jólaköttinn. Að sjálfsögðu kom ég því þó fyrir þannig að við værum komin heim á réttum tíma til að horfa á íþróttirnar hjá Bjarna Fel. Bjarni stóð sig með prýði eins og vanalega. Þættirnir hjá honum eru orðnir fjölbreyttari en í fyrravetur og er það vel. Ensku knattspyrnuna horfi ég alltaf á. Leikur Swansea og Nottingham Forest var leiðinlegur þar sem að leikmenn gátu sig hvergi hreyft vegna íss á vellinum. Enda voru mörkin skoruð eftir horn- spyrnur og vítaspyrnu. Mér fannst ekki mikið til um fyrsta þátt Ættar- setursins, en sá þáttur vinnur á og nú sleppi ég honum helzt ekki. Myndin THX 1138 var mér ekki að skapi en dr. Strangelove var góð á köflum. Sunnudagsmessan var fyrst á dag- skrá á sunnudaginn. Á sunnudögum horfi ég lítið á sjónvarp, helzt Húsið á sléttuni og fréttirnar. Að vísu bætti ég mér þetta upp með kvik- mynd sem var sýnd í vídeói hússins: Being there með Peter Sellers. Alveg úrvalsmynd. Sellers er alltaf góður. Þeirri mynd lauk ekki fyrr en klukkan 1.30 á mánudagsnóttina og lýkur um leið þessum pistli mínuin. Eirikur Jónsson. Hy'kvenna - rædax nn Kjörbók kvenna á öllum aldri Okkur fannst vanta góða handbóká íslensku um konur. Hvað finnst þér? Viltu vita eitthvað meira um öryggi getnaðarvarna, „móðurlífsbólgur”, þungunarpróf, gervibrjóst, hormóna- meðferð, kynlífsráðgjöf, tíðni legháls- krabbameins, lesbísk sambönd, smokkinn og pilluna, ófrjósemis- aðgerð á körlum, fullnægingu, barnsfaðernismál, fóstureyðingu, fæðingarorlof, kynlíf eftir fæðingu? Nýi kvennafræðarinn er staðfærð og að miklu leyti endursamin íslensk gerð af dönsku handbókinni Kvinde, kend din krop. Þetta er alþýðlegt fræðirit, ætlað jafnt ungum stúlkum sem fullorðnum konum, hvatning til kvenna um að afla sér þekkingar á líkama sínum og félagslegri stöðu. Hér er opinskátt tekið á málum sem varða allar konur en hafa alltof lengi verið feimnismál. Álfheiður Ingadóttir, Dagný Kristjánsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Ingunn Ásdísardóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Nanna K. Sigurðardóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Steinunn Hafstað, Anna T. Rögnvaldsdóttir. MállMlog menning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.