Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Page 28
28
DAGBLADID&VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1981.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Þetta var mikilvægur sigur
—sagði Jiirg Berger, þjáNari Diisseldorf, eftir að lið hans sigraði Duisburg 2-0
— Þetta var geysilega mikilvægur
sigur fyrir okkur og við munum mæta
tvíefldir til leiks eftir áramót, sagfli
Jurg Berger, þjálfari Fortuna Diissei-
dorf, eftir að Atli Eðvaldsson og félag-
ar hans höfðu lagt Duisburg að velli
2—0 i Diisseldorf. Það var Thomas
Allofs sem skoraði bæði mörk liðsins
— á 61. og 92. mín.
Atli Eðvaldsson lék með. Honum
tókst ekki sð skora þrátt fyrir tvö mjög
góð marktækifæri. Leikmenn liðanna
áttu erfitt með að fóta sig á isilögðum
Fiorentina
í ef sta sæti
Fiorentina skauzt upp í efsta sætið i
1. deildinni itölsku í gær, þegar liðið
sigraði Napoli 2—0 á heimavelli. Á
sama tima gerðu Inter og Juventus jafn-
tefli, 0—0, í Milano. Þau lið voru efst
fyrir umferðina. Roma sigraði Como
2—0 og náði stórliðunum að stigum.
AC Milano gengur ekki vel. Tapaði í
gær á útivelli, 2—0, fyrir Avellino. Þá
var mjög óvænt að Torno tapaði á
heimavelli fyrir Catanzaro, 1—2.
vellinum.
Það var erfitt fyrir knattspyrnumenn
að leika í V-Þýzkalandi vegna þess
hvað vellir þar voru slæmir — isilagðir
og voru sumir leikmenn eins og beljur á
'svelli. Það þurfti t.d. að fresta leik
Kaiserslautem og 1. FC Köln á elleftu
stundu og voru leikmenn Köln mjög
óhressir eftir að hafa ferðazt í sex tíma
til Kaiserslautern í langferðabíl. Þeir
sögðu að vitað hefði verið áður en þeir
lögðu af stað frá Köln að leiknum yrði
frestað og þeir hefðu því lagt á sig 12
tíma þreytandi ferðlag, fram og til
baka, að óþörfu.
Aðeins 4 þús. áhorfendur sáu Bayern
Mtlnchen leggja Bochum að velli i
Múnchen. Það var Udo Horsmann sem
skoraði mark Bayern á 74. mín. og var
það sannkallað heppnismark, knöttur-
inn fór í tvo varnarleikmenn Bochum
áður en hann hafnaði í netinu.
Frank Mills tryggði Borussia Mönch-
engladbach jafntefli 1—1 gegn Darm-
stadt á 74. mín. eftir að Bodo Mattern
hafði skorað fyrir heimamenn.
Úrslit urðu þessi í Bundesligunni á
laugardaginn:
Darmstadt-Mönchengl. 1 — 1
Dússeldorf-Duisburg 2—0
Bremen-Stuttgart 2—2
Leverkusen-Bielefeld 2—2
Dortmund-Núrnberg 3—1
Bayern—Bochum 1—0
Leikmenn Stuttgart náðu að tryggja
sér jafntefli (2—2) í Breman á elleftu
stundu því að Bremen hafði yfir 2—0
þegar 17 min. voru til leiksloka. Erwin
Kostedde og Rigobert Gruber skoruðu
fyrir Bremen en þeir Walter Kralsch og
Karl-Heinz Föster skoruðu fyrir Stutt-
gart.
Manfred BUrgsmöller átti stórleik
með Dortmund sem lagði Núrnberg að
velli — 3—-1. Hann skoraði fyrsta mark
Dortmund og lagði síðan upp mörk
fyrir Votava og Rolf Rllssmann. Warn-
er Heck skoraði fyrir Núrnberg.
Ditmar Demuth misnotaði víta-
spyrnu fyrir Bayern Leverkusen gegn
Bielefeld. Wöge og Norðmaðurinn
ökland skoruðu fyrir Leverkusen, en
þeir Hupe og Schock fyrir Bielefeld.
-Viggó/-SOS.
Staðan er þessi i Bundesligunni :
Köin 16 10 4 2 34—12 24
Bayern 17 11 2 4 38- -26 24
Mönchengl. 16 7 7 2 30- -24 21
Bremen 17 8 5 4 29- -28 21
Hamburg 15 8 4 3 42- -19 20
Frankfurt 17 9 2 6 45- -32 20
Dortmund 17 7 4 6 28- -21 18
Bochum 16 5 6 5 27- -25 16
Braunschw. 16 8 0 8 26- -26 16
Stuttgart 17 5 6 6 22- -26 16
Kaiserslaut. 16 4 7 5 33- -33 13
Dússeldorf 16 4 5 7 25- -32 13
Leverkusen 16 4 5 7 21- -33 13
Núrnberg 17 5 3 9 25- -35 13
Darmstadt 17 3 6 8 20- -38 12
Bielefeld 16 3 5 8 16- -25 11
Karlsruhe 16 4 3 9 24—34 11
Duisburg 17 4 2 10 23—41 10
Hætturað
kippa mér
upp við
ákvarðanir
Csernai!
— segirÁsgeir
Sigurvinsson
— Ég er hættur að kippa mér upp við
ákvarðanir Pal Csernai þjálfara — það
er ekki mikið hægt að taka mark á hon-
um, sagði Ásgeir Sigurvinsson, sem
mátti sætta sig við að verma vara-
mannabekkinn hjá Bayern Múnchen
þegar liðið lék gegn Bochum á laugar-
daginn í Múnchen.
Ásgeir var í byrjunarliðinu daginn
fyrir leikinn en nokkrum
klukkustundum fyrir leikinn gegn
Bochum, tilkynnti Csernai — að Ásgeir
væri ekki með í byrjunarliðinu.
— Það þýðir ekkert að vera að
svekkja sig heldur að bíta á jaxlinn og
grípa hvert tækifæri sem maður fær,
sagði Ásgeir.
-sos.
Tveggja stiga for-
usta hjá Barcelona
—eftir sigur á Real Madrid í gær
Barcelona sigraði Real Madríd 3—1
á heimavelli í 1. deildinni á Spáni í gær.
Náði við sigurinn tveggja stiga forustu 1
1. deildinni. Úrslit urðu annars þessi:
Gijon-Cadiz
Castellon-Betis
Barcelona-R. Madrid
Racing-Bilbao
Sociedad-Osasuna
2—1
0—0
3—1
1—3
1—0
Atl. Madrid-Espanol
Sevilla-Valencia
Hercules-Zaragoza
1—0
2—0
0—1
Staða efstu liða:
Barcelona
Sociedad
R. Madrid
Zaragoza
16 11 3 2 46—14 25
16 10 3 3 31—16 23
16 10 2 4 28—16 22
16 8 4 4 23—20 20
Tueart illa slasaður
— Beattie hættur
Dennis Tueart, enski landsliðs-
kappinn hér á árum áður, meiddist
svo illa I leik Man. City og
Sunderland á laugardag að hann mun
ekki leika meira á þessu leiktímabili.
Jafnvel talið að hinn 32ja ára fram-
herji, sem verið hefur aðalskorari
Dennis Tueart — fjarvera hans veikir
lið Man. City mikið.
City að undanförnu, verði að leggja
skóna á hilluna.
Kevin Beattie, enski landsliðs-
maðurinn hjá Ipswich áður fyrr,
hefur orðið að hætta knaltspyrnunni
vegna alvarlegra meiðsla í hné.
„Beattie er bezti leikmaðurinn í sögu
lpswich,” sagði Bobby Robson,
stjóri félagsins, í gær, þegar tilkynnt
var að Beattie gæti ekki leikið
framar. Mjög sterkur varnarmaður,
sem skoraði mikið af mörkum, en
síðustu árin hefur Kevin Beattie átt
við þrálát meiðsli að stríða.
hsím.
Man. City tapaði fyrir botn-
liði Sunderland á heimavelli
— en Everton fór létt með Englandsmeistara Aston Villa
— Oldham í annað sætið f 2. deild
Vetur konungur réð enn nær alveg
rikjum á Bretlandseyjum á laugardag.
Aðeins sjö deildaleikir háðir á
Englandi og fjórir á Skotlandi. Tveir
leikir í 1. deildinni ensku, báðir i
Lancashire á upphituðum völlum
Everton og Man. City. Þá var einnig
leikið í Bolton og Oldham, útborgum
Manchester, i 2. deildinni.
Leikmenn Man. City höfðu
möguleika á að nálgast mjög
forustuliðin í 1. deild, þegar þeir fengu
neðsta liðið, Sunderland, í heimsókn.
En það fór á aðra leið. Sunderland
sigraði mjög óvænt og skoraði tvívegis
á síðustu 10 mín. leiksins í 2—3
sigrinum. Annar útisigur Sunderland á
leiktímabilinu.
Stan Cummins skoraði eina markið
í fyrri hálfleik fyrir Sunderland. Það
var á síðustu mín. hálfleiksins. í byrjun
síðari hálfleiksins náði City sér vel á
strik. Trevor Francis skoraði tvivegis á
47. og 57. mín. En það nægði ekki.
Nýliðinn Barry Venison kom inn sem
varamaður hjá Sunderland og jafnaði
með annarri spyrnu sinni í leiknum, að
sögn fréttamanns BBC á Mine Road.
Hins vegar segir í fréttaskeyti Reuters
að Gary Rowell hafi skorað markið.
Rétt í lokin skoraði Venison svo sigur-
mark Sunderland og 29.462 áhorfendur
voru sem lamaðir á áhorfendasvæðun-
um. Heldur betur óvænt eftir mikla sig-
urgöngu Man. City síðustu vikurnar.
Úrslit í leikjunum á laugardag urðu
annars þessi:
1. deild
Everton-Aston Villa 2—0
Man. City-Sunderland 2—3
2. deild
Bolton-Charlton 2—0
Chelsea-Blackburn 1 — 1
Oldham-Orient 3—2
3. deild
Bristol Rov.-Carlisle 0—1
Við sigurinn komst Carlisle í efsta
sæti deildarinnar.
4. deild
Torquay-Port Vale 0—1
Englandsmeistarar Aston Villa tapa1
og tapa. Áttu litla möguleika gegn
Everton á laugardag. Mortimer og
McNaught enn meiddir, Peter Withe í
leikbanni og Gary Shaw var nú settur
úr liðinu. Verið slakur að undanförnu.
Aðeins skorað eitt mark i siðustu 11
leikjum Villa. Meiðsli einnig hjá Ever-
ton, McMahon ekki með en í stað hans
lék ungur Skoti, Allan Irwine, og átti
frábæran leik.
Eftir aðeins 8 mín. fékk Everton
vítaspyrnu. Leikmenn Villa mótmæltu
svo stíft að ekki var hægt að taka
spyrnuna fýrr en tveimur mín. siðar.
Alan Evans bókaður fyrir mótmæli.
Trevor Ross tök vítaspyrnuna. Spyrnti
yfir markið. Það leið þó ekki á löngu
þar til Everton náði forustu. Mick
Lyons skallaöi í mark á 21. mín. eftir
hornspyrnu Paul Lodge. Talsvert
hvasst — og kalt — og í síðari hálfleik
lék Villa undan vindinum. Það breytti
engu. Everton gaf tóninn nær allan
leikinn. Peter Eastoe átti hörkuskot í
þverslá áður en hann skoraði síðara
mark Liverpool-liðsins á lokaminútu
leiksins. Lið Aston Villa nú aðeins
skuggi þess liðs, sem varð Englands-
meistari í vor.
Neville Southall, markvörður frá
Bury, sem stjóri Everton, Howard
Kendall, keypti, þegar hann tók við liði
Everton, fyrstu kaup hans, var valinn í
liðið í stað Jim Arnold og átti prýðileg-
an leik. Arnold var keyptur frá,
Blackburn I sumar. Everton-liðið var
annars þannig skipað: Southall,
Stevens, Ratcliffe, Lyons, Higgins,
Kendall, Ross, Lodge, Irvine, Eastoe
og Sharp. McBridge varamaður en
kom ekki inn á. Aston Villa. Rimmer,
Swain, Gibson, Evans, Blake,
Bremner, Covans, Bullivant, Donovan,
Geddis og Morley. — Noel Blake er
tvítugur blökkumaður frá Jamaíka.
Lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu,
sterkur strákur. Terry Bullivant var
keyptur frá Fulham fyrir 2—3 árum.
Lék sinn sjöunda leik með aðalliðinu.
Áhorfendur 16.538. Meðaltal Everton
23.136.
f 2. deild komst Oldham í annað
sæti með sigrinum á Orient. Það var
ekki auðveldur sigur. Orient hafði yfir I
hálfleik, 1—2, og skoraði Giles bæði
mörk liðsins. Paul Heaton fyrir
Oldham. Undir lok hálfleiksins lentu
Roger Wylde, Oldham og Bobby
Fisher, Orient, í slagsmálum. Báðir
reknir af velli. í s.h. jafnaði Heaton í
2—2 og Jim Steel skoraði sigurmarkið.
Bolton komst af botninum í deildinni.
Tony Henry, áður Man. City, skoraði
fyrra mark Bolton, Jeff Candler það
síðara. Áhorfendur voru 6.700 í
Oldham, 5085 í Bolton. Fæstir áhorf-
endur í Bolton I 12 ár. Á Stamford
Bridge voru áhorfendur 11.700. Lee
skoraði fyrir Chelsea, Ian Little jafnaði
fyrir Blackburn.
Staða efstu og neðstu liða í 1. deild
er nú þannig:
Swansea 19 10
Man. Utd. 18 9
Ipswich 16 10
Southampton 18 9
Tottenham 17 9
Nottm. For. 18 8
Man. City 18 8
3 6 30—28 33
5 4 28—15 32
2 4 28—19 32
3 6 32—27 30
2 6 26—19 29
5 5 23—23 29
4 6 24—20 28
A. Villa
Wolves
Birmingham
Notts. Co.
Sunderland
Middlesbro
18 4 7 7 22—23 19
17 5 4 8 11—23 19
16 4 6 6 23—23 18
17 4 5 8 24—31 17
19 3 5 11 16—33 14
18 2 6 1 0 16—30 12
í 2. deild hefur Luton 41 stig eftir 18
leiki. Oldham 36 eftir 19 leiki. Síðan
koma Watford með 34 stig úr 18
leikjum og QPR með 33 stig úr 19
leikjum. Grimsby er neðst með 17 stig
úr 16 leikjum. Orient og Wrexham hafa
18 stig, Bolton 19 eftir 19 leiki eins og
Orient. Wrexham hefur leikið 18 leiki.
-hsim.
Happell ráðinn
la ndsliðsþ jálf -
ari Austurríkis
Ernst Happell, þjálfari Hamburger
SV og fyrrum þjálfari Standard Liege,
hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari
Austurríkis og mun hann stjórna
Austurrikismönnum i HM-keppninni á
Spáni 1982. Happell, sem var þjálfari
Hollendinga i HM í Argentínu 1978,
hefur fengið sig lausan frá Hamburger
SV.
Happell tekur við landsliðsþjálfara-
starfinu af Werber Holz sem var látinn
taka pokann sinn í sl. viku, eins og
hefur komið fram í DV.
Viggó/SOS
Irene Epple
í ef sta sætinu
Doris de Agostini, Sviss, sigraði i
bruni heimsbikars kvenna i Saalbach i
Austurrfki á laugardag. Keyrði á
1:13.71 min. Maria Gaudenier, Frakk-
landi, varð önnur á 1:13,96 min. og
Irene Epple, V-Þýzkalandi, þriðja á
1:14.00 mín. Hún hefur forustu i stiga-
keppninni. Hlotið 104 stig. Önnur er
Erika Hess, Sviss, með 96 stig og þriðja
Hanni Wenzel, Lichtenstein, með 77
stig. Þær eru langefstar. Hanni Wenzel
slasaðist á hné á föstudag og verður frá
keppni í þrjár vikur.