Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Blaðsíða 32
32
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1981.
Þeyr—M jötviður mær:
Tímamótaplata eins og síðarí plötumar
Þeyr hefur skipað sér í hásæti ís-
lenzkra poppara. Á meðan þróunin
verður eitthvað í líkingu við það sem
hún hefur verið hjá hljómsveitinni
undanfarið ár er þess vart að vænta
að þeim fimmmenningum verði velt
úr stalli goðanna. Platan Mjötviður
mær er um flest frábær. Skiptir litlu
hvar er borið niður. Þungur og pott-
þéttur bassa- og trommuleikur, sam-
fara seiðandi gítarleik og dulúðugum
söng. Þeyr er hljómsveit sem á sér
engan líka hérlendis og jafnvel þótt
víðar væri leitað.
Mjötviður mær verkar dálítið
kostulega á mann. Á henni getur að
heyra hluti, sem koma kunnuglega
fyrir og svo á hinn bóginn furðuverk
sem til þessa hafa ekki þótt „Þeys-
leg”. Er ekki fjarri lagi að áhrifa
þeirra Killing Joke pilta gæti aftur á
þessari plötu eftir KJ-æði, sem
hljómsveitina greip í sumar.
Platan ber þess öll merki að hún er
fagmannlega unnin og umfram allt
að hér eru á ferðinni drengir, sem láta
sér ekki einungis nægja að láta hug-
myndir skjótaSt, heldur eru þær og
framkvæmdar. Fyrir vikið er margt á
plötunni harla djarft og hlustandan-
um stundum beinlínis storkað.
Síðustu plötu Þeys, Iður til fóta,
lét undirritaður svo lítið að útnefna
plötu ársins. Hafi sá gripur átt nafn-
bótina skilið er næsta vist.að Mjöt-
viður mær hrifsar hana til sín hér og
nú. í rauninni er synd að Þursaflokk-
urinn skuli ekki hafa sent neitt frá sér
á árinu, því það er eina hljómsveitin
sem veitt gæti Þey verðuga keppni
(og hugsanlega farið með sigur af
hólmi í þeirri viðureign). Yfirburðir
Þeys i ár eru álíka miklir og Utan-
garðsmanna í fyrra, jafnólík og tón-
listin er nú hjá þeim flokkum.
Á plötunni Mjötviður mær kennir
vægast sagt margra grasa í þeim 12
lögum, sem þar er að finna. Engin
tvö laganna eru verulega keimlík —
margt sér til þess. Mikið er um alls
kyns „effecta” og raddir skemmti-
lega bjagaðar í mörgum tilvikum.
Gítarleikurinn sérdeilis kostulegur og
þó sennilega aldrei eins og í laginu
Þeyr.
Það er nóg. Samspil Sigtryggs og
Hilmars, bassa- og trommmuleikara
flokksins, hefur verið rómað áður og
ekki er ástæða til að skafa af lofinu
nú. Fantalega gott par. Magnús
söngvari fær meiri tækifæri en áður
og sérkennileg raddbeiting hans gefur
Þeysurum blæ, sem aðrir ná ekki.
Það er í rauninni ógerningur að
ætla sér að taka eitt laganna út úr og
benda á það sem betri en hln. Hins
vegar eru textarnir sumir hverjir
hnyttnir og í Þorsteini Magnússyni
hafa Þeysarar haganlegan orðasmið.
Þá eru þeir nafnar Hilmar Örn
Hilmarsson og Agnarsson hreint ekki
ónýtir til verks á því sviðinu.
Mjötviður mær er tímamótaplata
eins og síðari plötur Þeys hafa jafnan
verið. Þessi gripur kemur þó til með
að sitja mun lengur í huganum, mest
fyrir þá sök að hér eru fleiri lög á
ferðinni. Mig grunar einhvern veginn
að þetta sé plata sem smellt verði á
fóninn aftur og aftur og aftur og aft-
ur. . . unz annaðhvort nálin eða
plastið gefur sig. Til hamingju, Þeys-
arar! -SSv.
Skemmti-
legustu lög
Gáttaþefs
— Ómar Ragnarsson
syngur jólalög
SG-hljómplötur hafa gefið út
hljómplötu, sem nefnist „Skemmti-
legustu lög Gáttaþefs”, með Ómari
Ragnarssyni.
Á plötunni eru sautján lög, nokkur
þeirra saman í syrpu. Ómar semur
sjálfur flesta textana á plötunni.
Meðal laga má nefna „Kátt er í
hverjum bæ, Ég er svoddan jóla-
sveinn, Bráðum koma blessuð jólin,
Jólasveinn taktu í húfuna á þér,
Krakkar mínir, komið þið sæl,
Gáttaþefur og börnin, Ég vildi ég
væri, Ó Grýla og Gáttaþefur kveð-
ur”.
Útsetningar sáu Jón Sigurðsson og
Magnús Ingimarsson um. Telpur úr
Álftamýrarskóla og Langholtsskóla
syngja með Ómari. Brian Pilkington
hannaði umslagið.
Meðhelg-
um hljóm
— Fóstbræður syngja
jólasálma
„Með helgum hljóm” heitir hljóm-
plata, sem Karlakórinn Fóstbræður
hefur gefið út.
Á plötunni er að finna marga
þekktustu sálmana, sem sungnir eru á
jólum. Sálmarnir skiptast í aðventu-,
jóla- og nýárssálma, og að lokum eru
þrír barnasálmar. Alls eru sextán
sálmar á plötunni, en fáir þeirra hafa
áður heyrzt í útsendingu fyrir
karlakór.
Stjórnandi Fóstbræðra er Ragnar
Björnsson, en Jón Þórarinsson, tón-
skáld og fyrrverandi stjórnandi kórs-
ins, raddsetti og útsetti flest laganna.
Söngurinn var hljóðritaður í Fé-
lagsheimili Fóstbræðra af Sigurði
Rúnari Jónssyni. Alfa pressaði plðt-
una, en Prisma sá um prentun. Rafn
Hafnfjörð tók Ijósmyndina á umslag-
inu. Fálkinn hf. sér um dreifingu.
„Það er engin þörf
aökvarta"
— nýhljómplata með Böðvari Guðmundssyni
Mál og menning hefur sent frá sér
hljómplötu með lögum og textum
Böðvars Guðmundssonar og syngur
hann sjálfur lögin á plötunni sem
fengið hefur nafnið Þaö er engin þörf
afl kvarta.
Að langmestu leyti eru þetta nýir
söngvar af fjölbreyttu tagi. Hér er
bæði að finna baráttu- og ádeilu-
söngva, nýstárlegar söguskýringar,
náttúrustemmningar, erfiljóð og
vögguljóð. Leikið er undir á hin fjöl-
breyttustu hljóðfæri af fjölda hljóð-
færaleikara. Á kápu gerir Böðvar
Guðmundsson grein fyrir tilurð text-
anna, en þeir fylgja með plötunni á
sérstöku blaði.
Einar Einarsson stjórnaði upptök-
unni og sá um hljóðblöndun ásamt
Sigurði Rúnari Jónssyni. Upptöku
önnuðust Guðmundur Árnason.
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
og Sigurður Rúnar Jónsson. Hljóm-
platan er pressuð hjá Alfa i Hafnar-
firði. Umslagið hannaði Auglýsinga-
þjónustan hf. en Prisma sá um prent-
un.
Jóhann Helgason — Tass:
Fátt nýtt undir nálinni
Jóhann Helgason hefur um langt
skeið verið einn okkar beztu og virt-
ustu poppsöngvara. Á nýútkominni
breiðskífu sinni, Tass, er Jóhann
samur við sig í flestum laganna.
Söngur hans sérstakur og yfirbragð
laganna rólegt í flestum tilvikum.
Það er valið lið hljómlistarmanna,
sem aðstoðar Jóhann á Tass. Upp-
tökur fóru fram í Bandaríkjunum í
sumar undir stjórn Jakobs Magnús-
sonar og tæknilega er platan næsta
fullkomin. Allt pottþétt, en fyrir
minn smekk er platan í rólegra lagi og
dálítið flöt — engir toppar á henni,
nema ef vera skyldi Victim.
Á Tass eru bæði lögin, Take your
time og Burning love, sem voru á
lítilli plötu, sem Jóhann gaf út í
haust. Hún fékk ágætis viðtökur,
enda fyrrnefnda lagið bara hresst. Þá
er lagið Sail on einnig á Tass, en það
er gamalt lag frá Jóhanni.Varla verð-
ur skilið við lög plötunnar án þess að
minnast á lag að nafni She’s done it
again. Billy Joel-keimurinn af því er
engu líkur og ekki kæmi á óvart þótt
grindin væri tekin úr einu laga hans.
A.m.k. kemur þetta afar kunnuglega
fyrir mín eyru.
Þótt Tass sé á flestan hátt plata,
sem hægt er að mæla með er þó á
henni áberandi ljóður, sem virðist
vera að ryðja sér aðeins til rúms á ný
hér heima. Allir textar eru á ensku.
Það er hreinasti óþarfi tungunnar
vegna. Hitt má svo alltaf verja, að
textahöfundar hérlendis eru flestir
hverjir hrottalegir bögubósar. Þar er
e.t.v. skýringin á því að Jóhann kýs
að hafa textana á énsku.
Þess er varla að vænta að Tass
verði enhver metsöluplata. Tónlistin
á henni er góð og gild en höfðar ekki
til yngri kynslóðarinnar í dag. Það er
út af fyrir sig virðingarvert að gefa út
plötu án tillits til þesshvað neytendur
vilja. Vandaðri gripir eru varla á
ferðinni þessa dagana og með það í
huga geta þeir, sem hallast að þessari
tegund tónlistar, höndlað sér eintak
og verið vissir um að verða ekki fyrir
vonbrigðum.
-SSv.
Grýlumar:
PLATAN ÓSANNFÆRANDI í
SAMANBURÐIVIÐ TÓNLEIKA
Fyrsta kvennapopphljómsveit ís-
lendinga hefur sent frá sér plötu. Það
er ástæða til að óska þeim stúlkum til
hamingju. Hins vegar verð ég að játa
vonbrigði mín með plötuna sjálfa.
Grýlurnar eru margfalt betri á tón-
leikum!
Styrkleiki þeirra stúlkna kemur
ekki nægilega vel fram á plötunni. í
samanburði við margar aðrar plötur
nýútkomnar er upptakan flöt og
ekki sannfærandi (nema eintakið
mitt sé svona hrottalega gallað).
SG-hljómplötur hafa gefið út nýja
plötu með Kötlu Maríu. Platan heitir
„Litli Mexíkaninn”.
Á hljómplötunni eru ellefu norsk
lög, en Óskar Ingimarsson samdi alla
textana. Ólafur Gaukur útsetti lögin
og stjórnaði hljómsveitarundirleik.
Fjölmenn strengjasveit leikur undir
Hljóðfæraleikurinn er um flest ein-
faldur og átakalítill og ekki er verið
að rembast við hluti, sem ekki ganga
upp.
E.t.v. er þetta harkalegur dómur,
en eftir að hafa skemmt mér prýði-
lega við tónlist þeirra Grýla á Borg-
inni fyrir skemmstu er samanburður-
inn plötunni verulega í óhag — jafn-
vel þótt hljómburðurinn hafi ekki
alltaf verið upp á það bezta í Gyllta
salnum.
Grýlurnar eru hljómsveit sem er i
stjórn Graham Smith, en auk þess
koma við sögu þeir Pétur Hjaltested,
Tryggvi Húbner, Sigurður Karlsson
og Pálmi Gunnarsson.
Hljóðritun fór fram hjá Hljóðrita
hf. Tæknimenn voru þeir Tony Cook
og Gunnar Smári.
mjög örri framför. Sérstaklega er at-
hyglisvert að sjá til trommuleikarans,
Lindu Bjarkar Hreiðarsdóttur. Til-
þrif hennar á Borginni komu líkast til
flestum hraustlega á óvart. Herdís
Hallvarðsdóttir kann auðsýnilega að
meðhöndla bassann, en gitarleikur
Ingu Rúnu fer fyrir ofan garð og neð-
an á plötunni. Hún var heldur ekki
nærri nógu áberandi á tónleikunum
hver svo sem skýringin kann að vera.
Ragnhildur Gísladóttir er driffjöður
flokksins og gaman er að heyra hana
sýna á sér aðra hlið en skallapopps-
röddina, sem farin var að festast
óþægilega við hana.
Nú er í raun ekkert annað að gera
en bíða og sjá hvað úr Grýlunum
verður. Saman hafa þær þraukað í
rúmlega hálft ár og gott betur. Stefn-
an hlýtur að vera tekin áfram upp á
við — þannig hefur hún verið siðan
ferillinn hófst. -SSv.
LITU MEXÍKANINN