Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Blaðsíða 48
Slökkviliðið á Akreyri barðist við eldinn íþrjár klukkustundir. Eins og sjá má á innfelldu myndinni
varð!
var reynt að bjarga því sem bjargað
(DV-mynd GS, Akureyri)
MILUONA TJON AF
ELDI í SJALLANUM
—Allar innréttingar ónýtar og einnig þakið
„Það er ljóst, að við dönsum ekki
hér í bráðina,” sagði Gunnar Ragnars,
stjórnarformaður Sjálfstæðishússins á
Akureyri, þegar alokkvistarfi var að
verða lokið í húsinu rétt upp úr
miðnætti aðfaranótt laugardagsins. Þá
hafði eldur leikið húsið grátt frá því kl.
tæplega 9 á föstudagskvöldið. Þak
hússins er ónýtt effir eldinn og sömu
sögu er að segja um diskótekið á efstu
hæðinni i vesturenda byggingarinnar.
Þá er talið að nær allar innréttingar
hússins séu ónýtar af vatni og reyk.
„Sjallinn”, stærsti og einn vinsælasti
skemmtistaður Akureyringa í tæplega
20 ár, stendur þá eftir lítið meira en
fokheldur. Tjónið nemur milljónum
króna.
Það var lítill gutti sem kom og
tilkynnti slökkviliðinu um eld í Sjálf-
stæðishúsinu kl. 20:53 á föstudags-
kvöldið, að sögn Gisla K. Lórenssonar
varaslökkviliðsstjóra sem þá var á
vakt. Nær á sömu mínútu var
slökkviliðið komið á staðinn, því Sjall-
inn er svo gott sem næsta hús við
slökkvistöðina.
Að sögn Stefáns Ingólfssonar, eins
af dyravörðum hússins, vissi starfs-
fólkið ekki af eldinum fyrr en
rannsóknarlögreglumaður snaraðist
inn i andyrið og spurði hvort þeir vissu
að eldur væri laus í húsinu. Þá var mik-
iU e ldur í suð-vesturhorni 3. hæðarinn-
ar, þar sem m.a, voru viftumótorar
fyrir eldhúsið. Sagðist Stefán hafa
gengið þarna um fáum mínútum áður,
án þess að verða var við nokkuð óeðli-
legt. Eldurinn átti síðan greiðan gang
með loftræstikerfi fram í diskótekið og
austur eftir þaki hússins. Þar fékk hann
gott æti, eins og einangrunarplast.
Mjög erfitt var að athafna sig við
slökkvistarfið. Eldurinn var uppi í
risinu, þar sem var mjög þröngt og
erfitt að komast að honum, auk þess
sem mikill hiti gerði slökkviliðs-
mönnunum enn erfiðara fyrir. Eftir
rúmlega þriggja stunda slökkvistarf
höfðu slökkviliðsmennirnir þó betur.
Gunnar Ragnars er stjórnarfor-
maður Akurs hf., sem á og rekur Sjálf-
stæðishúsið. Sjálfstæðisflokkurinn á
meirihluta hlutabréfanna í Akri hf.
Sagði Gunnar allt óákveðið um hvað
yrði gert, hvort núverandi eigendur
hússins stæðu að endurbyggingu þess
eða hvernig það yrði gert. Gunnar var
spyrður um þá rekstrarerfiðleika sem
Sjálfstæðishúsið hefur átt viðaðetja.
,,Það er rétt, við höfum átt við
vissa erfiðleika að etja en alls ekki
óviðráðanlega. Hins vegar höfum við
hug á að endurskipuleggja reksturinn
og til að hafa frjálsari hendur i því
sambandi, þá var á döfinni að segja
starfsfólki upp. Kom það m.a. til af
þeirri hugmynd að leigja húsið.
Bruninn kollvarpar öllum þeim hug-
myndum,” sagði Gunnars Ragnars.
-G.S. Akureyri.
„Fólkið varísjokki, það leyndi sér ekki”:
Þeir komu strax og
þefuðu okkuruppi
—segir Einar Jóhannsson vélstjóri, nýkominn
eftir krókaleiðum frá Póllandi
Einar Jóhannsson vólstjóri f morg
un: Komst með grisku flutningaskipi
fró Gdynia til Kiel, þaðan með járn-
brautarlest til Hamborgar. Flaug
sfðan til London.
DV-mynd Gunnar V. Andrósson.
„Landið var lokað. Það komst
enginn út úr því, það voru hreinar
línur. Hvorki út né inn. Pólverjarnir
tilkynntu okkur jjetta,” sagði Einar
Jóhannsson vélstjóri. Hann kom til
landsins 1 gær eftir krókaleiðum frá
Póllandi ásamt Má Gunnarssyni vél-
stjóra. Þriðji vélstjórinn, Björn Jóns-
son, er enn i Póllandi og verður þar við
störf fram yfir hátíðir.
,,Við vorum í Gdynia. Við ætluðum
þaðan á mánudag en fengum ekki að
fara fyrr en á miðvikudag. Þetta var
dálítið ævintýralegt. (Jtlendingaeftir-
litið sá til þess að við kæmumst í grískt
flutningaskip. Við þurfum að bíða um
borð í því í heilan sólarhring áður en
það fór. Komumst svo með því til Kiel í
Þýzkalandi. Þaðan fórum við með
járnbraut til Hamborgar og síðan með
flugvél til London.
Við vorum í algjöru sambandsleysi.
Allir símar voru lokaðir, sjónvarpið
var tekið af. Fólkið var í sjokki. Það
leyndi sér ekki.
Skriðdrekar komu í stöðina. En ég
veit ekki til þess að nokkur hafi verið
tekinn í skipasmíðastöðinni hjá okkur.
En það var annars staðar. Annars frétti
■maður afskaplega lítið. Maður komst
ekki neitt.
Við fréttum af þessum atburðum
strax um morguninn þegar við fórum á
fætur. Við bjuggum í landi. Þeir komu
strax og þefuðu okkur uppi. Við
máttum ekki búa í landi og þurftum að
flytja í skipið. Svo var okkur bannað
að fara út milli kl. 22 og 6 um morgun-
inn. Það ríkti útgöngubann,” sagði
Einar Jóhannsson vélstjóri.
-KMU.
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 21. DES. 1981.
Kveikt í
verzlun
Rannsóknarlögreglan rannsakar nú
hvort íkveikja af mannavöldum hafi
orsakað miklar skemmdir á Uppsetn-
ingabúðinni við Hverfisgötu í gær-
morgun.
íbúi í húsinu tilkynnti um mikinn
reyk í búðinni ,um kl. átta um
morguninn. Þegar að var komið var
eldurinn á tveim stöðum. Var sýnilegt
að einhver hafði.farið inn í búðina því
efnisstrangar og annað höfðu verið
færðir til og eldurinn kraumaði á fleiri
stöðum.
Reykkafarar réðu niðurlögum
eldsins og urðu miklar skemmdir af
völdum reyks og vatns á húsinu og
lager verzlunarinnar.
-klp-
BSRB:
Talið eftir
hádegi i dag
Útlit er fyrir mjög góða þátttöku í
allsherjaratkvæðagreiðslu BSRB um
aðalkjarasamning. í morgun höfðu
borizt 9000 seðlar. Er stefnt að því að
talning geti hafizt eftir hádegið.
Að sögn Ágústs Guðmundssonar
sem sæti á i kjörstjórn höfðu um 8000
seðlar borizt fyrir helgi. Var unnið að
því um helgina að bera þá saman við
kjörskrá. í morgun höfðu svo borizt
1000 seðlar til viðbótar. Sagði Ágúst
að von væri á enn fleiri seðlum fyrir há-
degið, þannig að þátttakan virtist ætla
að verða geysigóð. Mætti gera ráð fyrir
að um 10.000 af 11.000 félagsmönnum
innan BSRB tækju þátt í allsherjarat-
kvæðagreiðslunni.
Stefnt er að því, að hefja talningu
eftir hádegið. Er búizt við að úrslit í
allsherjaratkvæðagreiðslunni liggi fyrir
ídag.
-JSS.
LOKI
Er það satt að lögreglan hafi
pantað rútur fyrir 60 þegar
hún var beðin að handtaka
jólasveina ó Alþingi?
hressir betur.