Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Side 17
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1982.
Lesendur
Lesendur
Ragnar er hvorki hrifinn af Purrki Pillnikk né pönkurum yfirleitt og hefur silthvað um þá anduö sína aö segja.
DV-mynd: K.Ö.E.
Svar til formanns Frama:
Ulf ur í sauðargæru?
— hvernig verður ástandið þegar leigubílum
hefurfækkað um 150?
Hjörtur Aöalsteinsson skrifar:
Mig langar til þess að svara Úlfi
Markússyni, formanni Frama, því að
það fer fyrir honum eins og stjórn-
málamönnum okkar. Hann byrjar á
að vitna í gamlar og úr sér gengnar
reglugerðir sem samdar voru við allt
aðrar aðstæöur en nú ríkja.
Um það má nefna nokkur dæmi
svo sem auknar fjarlægðir innan
borgarmarkanna og aukin samskipti'
við nágrannabæjarfélög: meiri að-
sókn að skemmtistöðum og fjölgun
þeirra svo að um munar.
Að vísu kann að vera rétt hjá Úlfi
að ég sé ekki nægilega kunnugur
málum er snúa að leigubflstjórum, en
ég er ekki ókunnugur um það sem að
neytandanum snýr.
Ég held að ÚÍfur verði að beygja
sig undir þaö álit margra notenda
leigubíla að það sé eitthvað bogið við
skipulagið á þeim málum. Slíkt vill
nú oft verða þegar menn starfa lengi
að sama verkefni. Hæfileikinn til
þess að meta eigin verk(í raunsæju
ljósi vill þá glatast.
Siöan skilst mér ég fara rétt með
það að til þess að hljóta náð út-
hlutunarnefndar þurft maður að hafa
ekið leigubíl hjá öðrum í 2—3 ár.
Þetta er vitanlega eftirsóknarverð
tekjutrygging þeirra sem gamlir eru í
starfinu, en er þetta sanngjarnt? Er
ekki miðaldahugsunarhátturinn
þarna annars vegar.
Ætli flestum sé ekki kunnugt um
þann barning sem það er að fá leigu-
bíl eftir lokun skemmtistaða?
Hvernig ætli ástandið verði þegar
leigubílum hefur fækkað um 150?
Úlfur okkar Markússon skyldi þó
'aldrei vera í sauðargæru?
Þessar pönkhljómsveitir eru viðrini,
sem gætu ekki einu sinni lært að
syngja, þótt meðlimirnir gengju í söng-
skóla í 50 ár.
Textarnir eru síðan ekki skárri;
eitthveít óskiljanlegt bull sem mætti
halda að væri samið á staðnum og síðan
heyrist varla neitt fyrir glamri, ólátum
og barsmíðum.
Þegar einni „hljómsveitinni” datt
síðan í hug að fórna einhverjum sak-
lausum hænsnum og svíni og ata allt út
í blóði þá keyrði nú um þverbak — og
þetta allt til þess eins að vekja athygli.
Þeir gera sér aldeilis grein fyrir hversu
óathyglisverðir þeir eru fyrst gripa þarf
til slikra bragða.
Laddi og þeir sem gerðu áramóta-
skaupið í þetta skiptið eiga þakkir
skilið fyrir þátt sinn um pönkið. Það
var raunveruleg. lýsing á hvernig þessir
bjálfar eru og haga sér. Oftast eru þetta
ræflar eða börn ríks fólks sem nenna
hvorki að hanga í skóla né vinna og
hafa enga hæfileika fram yfir að haga
sér eins og fífl.
ERU PÖNKARAR
RÆFLAR 0G VIÐRINI?
—svo segir eiim andstæðinga pönksins og allra þess fylgrfiska
„Ætli flestum sé ekki kunnugt um þann barning sem þaö er að fá leigubll eft-
ir lokun skemmlistaöa? Hvernig ætli ástandiö veröi þegar leigubílum hefur
fækkað um 150?” — spyr Hjörtur Aöalsteinsson.
Ragnarskrifar:
Ég er einn af mörgum sem algjörlega
eru á móti pönkinu sem tröllríður nú
landinu. T.d. er beinlínis hneykslanlegt
að sjá hvernig sumir unglingar klæða
sig í þeim tilgangi einum að vekja
athygli, fyrst allt annað virðist bregðast
þeim. Að fáránlega glingrinu ógleymdu
og gömlu druslunum þá eru þeir allir
útkrotaðir í setningum á borð við:
„Kill Jesus Christ”.
Síðan er hlægilegt að sjá þessa litlu
patta, varla eldri en 10—13 ára, klippta
með hanakamb eða litaðan skalla. Svo
hangir þessi lýður niðri á Hlemmi dag-
inn út og inn og með alls kyns merkileg-
heit við fullorðna og þykist verða meiri
af.
Um helgar, þegar búið er að loka á
Hlemmi, er næsti áfangastaður
„Halló” og þar drekka þeir sig síðan
blindfulla. Ég vorkenni þeim for-
eldrum sem þurfa að hafa svona börn á
heimili sínu.
Ekki eru þessar pönkhljómsveitir
skárri sem spretta upp eins og gor-
kúlur, en eru hver annarri lélegri og
varlahægt að kalla sumt hljómsveitir.
Tökum sem dæmi Purrk Pillnikk. Ég
hef aldrei á ævinni heyrt þvílíkt og
annað eins fruss og að kalla þetta söng.
17
ER ALLT ÓFÆRT A NÝJU ÁRI?
Hringdu þá í síma 1 86 10
□
□
□
Bókhald
Launamiðar
Skattframtöl
□ Tollskýrslur
□ Verðútreikningar
□ Launaútreikningar
H. GESTSS0N
viðskiptaþjónusta —
Hafnarstræti 15, 101 Rvík.
Sími 1 86 10.
n 7siststsutLstsutsiszstsiststsisuutsmstststsiststsiststJtst.s7rstsiststststststns p
MÁLVERKA- 0G MYNDAINNRÖMMUN
Mikið úrval af speglum í römmum.
INNRÚMMUN
SIGURJÓNS
flRMULA 22 - SÍMI31788
MYNDA 0G
MÁLVERKASALA
FYRIRTÆKJA- 0G
STOFNANAKEPPNI BSl
Fyrirtækja- og stofnanakeppni BSÍ verður haldin sunnu-
daginn 31. janúar nk. í TBR-húsinu og hefst mótið kl.
13:30.
Keppt verður í tvíliða og tvenndarleik í tveim flokkum,
þannig að þeir sem tapa i fyrsta leik falla í B-flokk og halda
áfram þar.
Þátttökugjöld er kr. 500,- sem greiðast á mótsstað.
Virðingarfyllst,
Badmintonsamband íslands.
ÆwHREmsm
SÍMAR 45461-40795
Húsfélög — (búðasamtök
Tökum að okkur hreinsanir á sorpgeymslum-sorprennum og sorp-
tunnum. Hreinsum af öll óhreinindi — eyðum ólykt með kvoðu-
hreinsiefni. Hreingerningar: í fyrirtækjum, stofnunum og heima-
húsum — einnig stigaganga. Teppahreingerningar með háþrýstidjúp-
hreinsitækjum og sogafli. Einnig handhreinsun ef óskað er. Hús-
gagnahreinsanir. Gluggahreinsanir: Tökum að okkur að hreinsa
glugga að utan og innan. Náum 4 hæðum án tilstands, sama gjald.
Einnig viljum við minna fyrirtæki, stofnanir, húsfélög og ibúóarsam-
tök á að við tökum að okkur dagleg þrif og ræstingar. Félagasamtök
athugið ef ykkurvantar þrif eftir veizluhald eða þess háttar um helgar,
þá er bara að hafa samband. Náum vatni úr teppum og gólfi eftir flóð
Froðuhreinsum — sótthreinsun — hreinsistöð á hjólum —hvert á
land sem er. Fiskiskip — fiskvinnslustöðvar — sláturhús — bakari —
ölgerðir — mjólkurbú.
Tilsölu
Af sérstökum ástæðum er til sölu Bronco
órg. 74
(endursmíðaður VI). Véi upptekin ekin 7 þús. km. 4ra hótfa blönd-
ungur, heitur ás, fíækjur, BMW sæti, Hurst skipting, fíber bretti
og hliðar, ný kúpiing, hemry duty demparar, sórstaklega styrktur.
Ný sprautaður, ný klæddur.
Til sýnis og sölu á Bílasölunni Braut
Símar: 33761 og 81510.