Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Page 29
29
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1982.
Andlát
J6n Sigmundsson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri, Akranesi, andaðist að
sjúkrahúsi Akraness 24. janúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju
laugardaginn 30. janúar kl. 13.30
síðdegis.
Jón Tómasson frá Hrútatungu, Álfa-
skeiði 64 Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði fimmtudginn 28. janúar
kl. 13.30.
Kjartan S. Norðdahl, frá Úlfarsfelli,
lézt í Borgarspítalanum 24. janúar.
Páll Stefánsson, Borgarnesi, er látinn.
Sigmundur Sigfússon, flugumferðar-
stjóri, Ljósheimum 6, lézt á Borgar-
spitalanum þriðjudaginn 26. janúar.
Steingrímur Steingrimsson, Lindargötu
24 Reykjavik, andaðist mánudaginn
25. janúar á Landspítalanum.
Sveinbjörn Jónsson byggingameistari,
er látinn.
Agnar Norðfjörð, Kjartansgötu 6,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 28. janúar kl. 10.30.
Ágústa Margrét Jónsdóttir andaðist á
Landspítalanum sunnudaginn 24.
janúar1982.
Daði Steinn Kristjánsson, stýrimaður,
Akurholti 11 Mosfellssveit, lézt i
sjúkrahúsi í London 25. janúar.
Jódís Pálsdóttir, sem lézt 20. janúar sl.,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 28. janúar kl. 13.30.
Jóhanna Emilía Björnsdóttir, frá
Félagsgarði, Fáskrúðsfirði, Unufelli 25
Reykjavík, lézt laugardaginn 23.
janúar í Landspítalanum.
Jón Vattnes Kristjánsson lézt í Borgar-
spítalanum aðfaranótt 26. janúar.
Jón Magnússon frá Gerði, Vestmanna-
eyjum, Nestúni 17 Hellu, sem lézt i
sjúkrahúsi Vestmannaeyja 19. janúar
sl., verður jarðsunginn frá Landa-
kirkju laugardaginn 30. janúar kl.
14.00.
Fundir
Kvenstúdentarl
Fyrsti hádegisfundur okkar á þessu ári verður hald-
inn laugardaginn 30. janúar að Hlíðarenda við
Nóatún. Þar mun Steinunn Sigurðardóttir rit-
höfundur tala um einn frumleRasta or skemmtiIeR-
asta rithöfund íslands, Málfríöi Einarsdóttur, og
lesa úr bók hennar: Bréf til Steinunnar. Fjölmenn-
um. Stjórnin.
Fundaskrá
AA-samtakanna á
íslandi
Miðvikudagur
REYKJAVÍK
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsiB.
Hádcgisfunduropinn kl. 12.00
Tjamargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 18.00
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 21.00
Grensás, Safnaðarheimili kl. 21.00
Hallgrimskirkja kl. 21.00
LANDIÐ
Akranes, (93-2540) Suðurgata 102 kl. 21.00
Borgarnes, Skúlagata 13 kl. 21.00
Fáskrúösfjörður, Félagsheimiliö Skrúður kl. 20.30
Höfn Hornafirði, Miðtún 21 kl. 20.00
Keflavik, (92-1800) Klapparstig 7. Enska kl. 21.00
Kvenfélag
Árbœjarsóknar
heldur aðalfund sinn í safnaðarheimilinu
mánudaginn I. febrúar kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf og boöiö verður upp á pottrétt.
Stjórnin.
Aðalfundur Handknatt-
leiksdeildar Vals
Handknattleiksdeild Vals heldur aðalfund sinn aö
Hlíöarenda fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundur
Manneldisfólagsins
Árið 1981 var starfið fjölþætt hjá Manneldis-
félaginu. í vor var haldinn mjög fjölmennur félags-
fundur um flúor, áhrif hansá tennur ogálíkamann
í heild, en eins og kunnugt er eru ekki allir á eitt
sáttir um tannverndandi áhrif flúors né skaöleysi. í
maí voru á félagsfundi kynntar niðurstöður neyzlu-
könnunur Manneldisráðs, sem gerð var 1979-80. í
haust hélt félagið fund um alkóhól og áhrlf þess á
Hkamann og kom þar fram mikill fróðleikur um
áhrif áfengis á efnaskiptin, áhrif áfengis á ófædd
börn og um áfengisneyzlu íslendinga og
neyzluvenjur.
Bókin Neyzluvenjur og heilsufar var gefin
fjölmörgum bókasöfnum landsins en hana gaf
félagiö út sem árangur ráðstefnu er haldin var með
því heiti fyrir nokkrum árum og er þar að finna flest
það sem vitað er um neyzluvenjur íslendinga,
heilsufar og matvælaframleiöslu fram á okkar daga.
Félagið gaf út á árinu bækling með heitinu
Matarvenjur og næringarþörf ungra bama og er
það safn erinda af félagsfundi um efnið sem dreift
var til félagsmanna og er falt öðrum á kr. 30.00 og
skal þá kaupa ritið hjá félaginu, pósthólf 289, 121
Reykjavík.
Fimmtudaginn 28. jan. heldur félagiö aðalfund
sinn í húsi Hússtjórnarkennaraskóla ÍsJands,
Háuhlíð 9. Fundurinn hefst með kaffiveitingum og
kynningu osta frá Osta- og smjörsölunni. Auk
venjulegra aöalfundastarfa verða kynntar hug-
myndir um félagsstarfið i vor en allar hugmyndir
félagsmanna eru vel þegnar. Félagsmenn eru hvattir
til að koma í ostaveizluna og á aðalfundinn. Nýliðar
eru velkomnir.
Migrenesantökin
halda fræðslufund
að Hótel Heklu í kvöld, 28. janúar, kl. 20.30. Fyrir-
lesari verður Helgi Valdimarsson læknir.
Kvenfálag
Laugarnessóknar
Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 1. febrúar i
fundarsal kirkjunnar kl. 20. Formannskuör.
Stjórnin.
Átthagasamtök Héraðs-
manna og Fólag Eskfirðinga
og Reyðfirðinga
halda árshátíð i Ártúni laugardaginn 30. janúar.
Húsið opnarö kl. 19.00. Aðgöngumiðar seldir í
bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18,
fimmtudag og föstudag frá kl. 16—18.
Æskan
Nýkomið er út janúarblaðið af Æskunni, 83.
árgangur, 58 síður að stærð. Meðal efnis er: Þegar
kviknaði á perunni hjá Edison; Nýi billinn;
Ásgrímssafn; Ævintýri; Rauði kross íslands; Gosi í
Þjóðleikhúsinu, Fjölskylduþáttur i umsjá Kirkju-
málanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík; Siðustu
nemendur skólameistarans; Ég er endurfæddur
kristinn maður — segir poppsöngvarinn Bob Dylan;
Skiðaiþróttin; Dýrin okkar; Skólabörn svara; Beztu
islenzku barnahljómplöturnar; Úrslit vinsældavals
Æskunnar; Bobbi vann stórkostlegan sigur; Utan-
garðsmcnn; íslenzk frímerki 1981; Hvað viltu
verða?; Prentlistin; Heilabrot; Gæludýr;
Frumstæðir vöruflutningar; Úrslit spurningakeppni
Umferðaskólans og Æskunnar; Myndasögur;
Gátur; Skrýtlur; Krossgáta o. m. fl. Ritstjóri er
Grímur Engilberts.
Tilkynningar
Sýning Sigurðar
K. Árnasonar listmálara
að Kjarvalsstöðum stendur til sunnudags 31. janúar.
Hefur þegar selzt nærri helmingur þeirra málverka á
sýningunni, sem ekki voru þegar fyrir I einkaeign.
Þetta er sjöunda einkasýning Sigurðar, en nærri sex
ár eru liðin frá hinni siöustu.
Söngflokkurinn Hrfm
— Hótel Borg
Söngflokkurinn Hrím mun halda sína fyrstu
tónleika á Hótel Borg fimmtudaginn 28. janúar.
Aðrir tónleikar verða síðan I Norræna húsinu,
sunnudaginn 31. janúar kl. 17.
; Hrím er nú rúmlega þriggja mánaða og hefur
komiö nokkrum sinnum opinberlega fram en þá
alltaf meö öörum.Tónlistin sem boðið er upp á er af
ýmsum geröum en mest ber á svokallaöri visna-
tónlist frumsamdri.
írskir og skozkir rælar skipa einnig öndvegissess
áprógram mi sveitarinnar.
I gærkvöldi
I gærkvöldi
MYNTBREYTING
EÐA MYNDBREYTING
Margir hafa vafalaust fagnað þvi
að fá að sjá framan í Sigrúnu
Stefánsdóttur á skjánum í gærkvöld
— gleraugun farin og komin með
linsur. Gaman er að sjá ný andlit á
skjánum og þá ekki verra að þau séu
gömlu andlitin með nýju formi. Með
þeim gömlu vita menn hvað þeir
hreppa og helzt fannst mér að þarna
væri á ferð sú sama Sigrún og fyrr.
Svo geta menn skipt sér í fylkingar
um hvort Sigrún er betri með gler-
augu eða linsur. Þarna gæti orðið hiti
í kolunum og framboð við sveitar-
sjórnarkosningar komið til greina.
Sigrún fjallaði um myntbreyting-
una og vaxtarrækt. Mér heyrðist sem
menn segðu yfirleitt frekar „mynd-
breytingin” en „myntbreytingin” og
eru það orð að sönnu. Réttnefni væri
að þessi atburður kæmist i íslands-
söguna sem „myndbreytingin 1981”,
það er seðlar komu ú' með nýjum
myndum en lítið sem ekkert annað
augu
fylgdi þessari breytingu.
Ef marka má dr. Jóhannes Nordal
má búast við að slíkar breytingar
þurfi á 11 —12 ára fresti miðað við
40—50 prósent verðbólgu á ári. Enn
hugsa mjög margir í gömlum krón-
um, einkum ef stórar upphæðir eru á
á ferðinni, svo sem verð á íbúð. Eftir
10 ár munu þeir enn finnast sem
hugsa i verðmætunum fyrir 1981.
Þetta mun renna stoðum undir
tilurð nýrrar stéttar sérfræðinga. Yf-
irleitt eru menn hættir að geta gert
skattskýrslur — nema sérfræðingar.
Að því kemur að menn verða svo
ruglaðir eftir myntbreytingar að þeir
geta almennt ekki gert sér grein fyrir
hvað nokkur hlutur kostar — og sjást
þess þegar merki. Þá munu vafalaust
verða til sérfræðingar, á góðu kaupi,
sem geta reynt að segja fólki hvað
hlutirnir kosti, til dæmis bíll eða
íbúð. Þetta munu verða bjartir tímar
— fyrir sérfræðingana.
Haukur Helgason.
Orösending til umsjónar-
manna skemmti- og
sýningarstaða
Það hefur verið venja DV í föstudagsblaöi aö birta
upplýsingar frá listasöfnum, skemmtistöðum, Ijós-
mynda- og málverkasýningum. Oft hefur reynzt
erfitt að ná í rétta aöila á þessum stöðum. Biður þvl
umsjónarmaður dagbókar þá sem hafa með þetta aö
gera að senda upplýsingar til DV Síöumúla 12—14
eða að hríngja í síma 86611 eða 27022 þegar nýjar
sýningar hefjast. Einnig ef skemmtiatriði eru á
skemmtistöðum eða aðrar breytingar frá síöustu
helgi. Þá þurfa þær upplýsingar að berast i síðasta
lagi fyrir hádegi á fimmtudögum.
Samtök áhugafólks um
áfengisvandamálið
Laugardaginn 3. okt. ’81 voru gefin
saman í hjónaband Sigurborg M. Guð-
mundsdóttir og Jón Kristinn Jensson.
Þau voru gefin saman af séra Sigurði
Guðmundssyni í Þjóðkirkjunni í Hafn-
arfirði. Heimili ungu hjónanna er að
Skólabraut 1, Hafnarfirði.
Ljósmynd MATS — Laugavegi 178.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband
Andrea Magnúsdóttir og Ólafur Val-
garó Ingimundarson. Þau voru gefin
saman af séra Árna Pálssyni í Kópa-
vogskirkju. Heimili ungu hjónanna er
að GrevegárdsvSgen 74, Götaborg —
Sviþjóð.
Ljósmynd MATS — Laugavegi 178.
Brúðhjónum skal bent á að sendi þau
brúðarmynd til birtingar í Dagblaðið
og Vísi, fá þau í brúðargjöf frá DV
áskrift á blaðinu i einn mánuð.
Fræðslu og leiðbeiningastöð SÁÁ. í Siðumúla 3—5,
Reykjavik. Viðtalstímar leiðbeinenda alla virka daga
frá kl. 9—17. Sími 82399.
Fræðslu- og leiðbeiningastöð Síðumúla 3—5,
Reykjavík. Upplýsingar veittar i síma 82399.
Kvöldsimaþjónusta SÁÁ alla daga ársins frá kl.
17—23 í sima 81515.
Athugið nýtt heimilisfang, SÍÐUMÚLl 3—5,
Reykjavík.
Getum við orðið þér að liöi?
Er ofdrykkja í fjölskyldunni, í vinahópnum eða
‘ meðal vinnufélaga? Ef svo er — mundu aö það er
hlutverk okkar að hjálpa þér til að hjálpa öðrum.
Hringdu í fræðslu- og leiðbeiningastöðina og leitaðu
álits eða pantaðu viðtalstima.
Haföu það hugfast að alkóhólistinn sjálfur er sá
sem minnst veit um raunverulcgt ástand sitt.
Samtök áhugafólks
um áfengisvandamálið.
Barnaspítalasjóður
Hringsins
í desember sl. færöi Barnaspitalasjóður Hringsins
Umsjónarfélagi einhverfra barna kr. 250.000 að
gjöf. Hannes Ástþórsson arfieiddi Barnaspitalasjóð-
inn að öllum sinum eignum og er þetta beint framlg
þaöan. Fjárhæðinni skal varið til kaupa á húsbúnaði
og tækjum til notkunar i hinu nýja meðferðarheimili
einhverfra (geðveikra) barna aö Trönuhólum 1,
Reykjavík.
Kvenfélagiö Hringurinn, sem stjórnar Barna-
spitaiasjóðnum, er löngu þjóðkunnt fyrir starf i
þágu sjúkra barna og hafa geðveik börn áður notið
þess eins og vel kom fram við uppbyggingu Geð-
deildar Barnaspitala Hringsins.
Starfshappdrœtti
Frjálsfþróttadeildar ÍR.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
1. Sólarlandaferð til Benidorm með Ferðamiðstöð-
inni, kr. 12.000.- Nr. 5468
2. Bosch borvél frá Gunnari Ásgeirssyni, kr. 3.500,-
Nr. 1476.
3. TRS 80 forritanleg vasatölva frá Tandy
Radishack, kr. 3.000.- Nr. 625
4. SANYO ferðaútvarp og segulband frá Gunnari
Ásgeirssyni, kr. 2.500.- Nr. 559.
5. Vöruúttekt í BIKARNUM, kr. 2.000.- Nr. 3001.
6. Vöruúttekt í BIKARNUM, kr. 2.000.- Nr. 5887.
7. Vöruúttekt í BIKARNUM, kr. 2.000.- Nr. 602.
Vinningshafar snúi sér til gjaldkera deildarinnar,
Guðmundar Ólafssonar, sími 85281 (h) / 84000 (v).
Frá íslenzku óperunni
íslenzka óperan hefur nú fcngið nýjan hljómsveit-
arstjóra að Sígaunabaróninum, Robin Stapdton frá
London. Kemur hann í stað Alexanders Maschat
sem hverfur nú til annarra verka í Austurriki. Steple-
ton er íslenzku óperunni og styrktarfélögum henn-
ar að góðu kunnur því aö hann stjórnaði í febrúar í
fyrra hátiðartónleikum óperunnar til minningar um
hjónin Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánsson-
ar. Eins og vænta má mun sýningin taka þó nokkr-
um breytingum við hljómsveitarstjóraskiptin.
Stapleton stjómar sýningu í fyrsta sinn föstudags-
kvöldið 22. janúar.
Hann hefur starfað við Royal Opera House í
Covent Garden frá 1968. Þar hefur hann stjórnað
óperum eftir Puccini, Verdi og Weber. Einnig hefur
AKUREYRI
VERZLUNARHÚSNÆÐI
Verzlunar- og skrifstofuhúsnæði á jarðhæð, u.þ.b. 50
ferm., óskast til leigu á góðum stað í miðbæ Akureyrar.
Samband óskast haft við auglýsingaþjónustu DV í síma
91-27022.
H—700
Skólavörðustig 19,
KVIKMYNDAMARKAÐURINN
VIDEO • TÆKI • FILMUR_
sími15480
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14-S 21715. 2351b
Reykjavík: Skeifan 9 S 31615, 86915
Mesta úrvalið, becúi þjónustan
Við útvegum yðut afslátt
á bilaleigubilum erlendis
Árnað heilla