Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Blaðsíða 32
32
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Flak flugválarinnar.
stúlkurnar verði kærðar fyrir vikið.
Á eftir sagði Erica að þær stöllur
hefðu verið að halda upp á afmælis-
dag hennar, og hefði henni skyndi-
lega dottið í hug að hressa dáiitið upp
á áhorfendur i hléinu.
— En mér datt aldrei í hug að það
yrðu önnur eins læti út af konu-
brjóstum, sagði hún. — Og þvi miður
týndi ég brjöstahaldaranum mínum í
öllum látunum. Þetta var alveg
spánýr brjóstahaldari og ég er viss
um að einhver hefur tekið hann með
sér sem minjagrip.
Vill ckki
feta í
fótspor
föðurins
Sonur Clarks heitins
Gables, John, er nú
orðinn tvítugur og
stundar háskólanám í
Santa Monica,
Kaliforníu. Hann segist
ekki hafa nokkra löngun
til að leika í kvikmyndum
en mikinn áhuga á*
umhverfisverndun og
könnun óræktarlanda.
Clark Gable dó
skömmu áður en
drengurinn fæddist og leit
því aldrei augum sitt
fyrsta og eina barn. Ekkja
hans og móðir Johns,
Kay, giftist aftur fyrir
nokkrum árum.
heitins
Kay og John, 12 ára: Hann er
nú kominn í háskó/a.
McEnroe er geö-
vondur og erfidur
Tennisstjarnan John
McEnroe þarf ekki að láta
sig dreyma um að græða
jafnmikið á auglýsingum
og starfsbróðir hans, Björn
Borg. Ástæðan fyrir því er
sú að skapofsi hans hefur
gert hann mjög óvinsælan
á meðal amerískra
auglýsenda.
McEnroe undirritaði'
nýlega samning við
Dunlop fyrirtækið þar sem
hann lofaði að auglýsa
tennisspaðana þeirra
næstu þrjú árin og fær
hann um 30 milljónir
króna fyrir vikið. Hins veg-
ar hafa talsmenn fyrir-
tækisins kvartað sáran
undan samvinnunni við
McEnroe. Hann var svo
skapvondur og erfiður við
upptöku á auglýsinga-
mynd að myndatakan tók
tíu klukkustundir í staðinn
fyrir tvær.
John McEnroe: Miklu skapverri en
BjörnBorg.
Erica: Fegurstu br/óst sem sézt hafa á vellinum.
Óvænt skemmtiatriði
68.000 manns fylgdust spenntir
með landsleik Ástralíumanna og
Englendinga i rugby í Twickenham á
Englandi. En enginn hafði búizt við
þvi skemmtiatriði er boðið var upp á i
hléinu.
Skyndilega stökk ung stúlka, Erica
Rue, fram á völlinn og tók aö kasta
klæðum. Vinkona hennar, Sara,
fylgdi fast á eftir en tókst aldrei að ná
jafnlangt i fatafækkun og Erica því
einn af áhorfendum var fljótur til að
vefja þjóöfánanum um nakin brjóst
hennar.
Bæði vallargestir og þær þúsundir
manna sem fylgdust með leiknum i
sjónvarpsútsendingu voru sammála
um að aldrei hefðu fegurri brjóst sézt
á veilinum en lögreglunni fannst þó
tilhiýðilegt að stöðva þetta óvænta
skemmtiatriði. Ekki er þó álitið að
Björgun sem nálg-
ast kraftaverk
Fjölskyldan var komin i sorgar- það fyrst til bragðs að fela sig í skógin-
klæðin og stórmenni landsins voru um.
farin að búa sig undir jarðarförina. Það
reyndist þó alveg óþarfi því daginn eftir
að opinber tilkynning hafði verið gefin
út um að Ghazali, utanrikisráðherra
Malasíu, hefði látizt í flugslysi birtist
hann sjálfur ljóslifandi.
Flugvélin, lítil Cessna, fórst í fjalla-
héraði 30 mílum norð-austur af Kuala
Lumpur, eða á umráðasvæði skæru-
liða. Lík flugmannsins og öryggis-
varðar ráðherrans fundust í vélinni en
hvorki fannst tangur né tetur af
ráðherranum sjálfum. Enda segist
Gazali alls ekki geta útskýrt það krafta-
verk að hann skyldi bjargast.
— Það siðasta sem ég man er að hjól
flugvélarinnar snertu trjátoppana, segir
hann.
Slysið þykir að mörgu leyti hið dular-
fyllsta. „Ghaz kóngur”, eins og
landsmenn hans kalla hann, var á leið
til stjórnmálafundar í heimahéraði sínu
í norð-austur hluta landsins. En vélin
fylgdi ekki flugáætluninni og þegar
slysið átti sér stað flaug flugmaðurinn
vélinni einum 1000 fetum lægra en
ráðlegt er á þessum slóðum.
Björgunarmenn fundu Ghazali þrjá-
tíu klukkustundum eftir að slysið varð.
Hann var skrámaður og dauð-
uppgefinn en að öðru leyti heill á húfi.
Hafði hann óttazt það svo mjög að
falla í hendur skæruliðum að hann tók
Ghazali: Óþarfi að undirbúa jarðarför.