Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Síða 33
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1982.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Farrah Fawcatt: Sýnir hörku í
skilnaöarmáHnu.
Farrah vill
meiri peninga
Farrah Fawcett og Lee Majors höfðu
verið gift í 10 ár þegar annar komst í
spilið og Farrah sótti um skilnað frá
manni sínum. Þessi annar er kvik-
myndaleikarinn Ryan O’Neal og
deila þau Farrah og Lee hart um eignir
sínar.
Lee Majors hefur boðið fyrrverandi
konu sinni i nokkrar milljónir Banda-
rikjadala gegn því að hún falli frá til-
kalli til annarra eigna. En það vill
Farrah ekki sætta sig við. Hún krefst
líka sins hluta í búgarði sem metinn er á
rúmlega 30 milljónir króna og 10
milljóna króna í skaðabætur fyrir
þann tíma sem hún var „bara
húsmóðir.
Farrah hefur því kosið að skjóta
skilnaðarmálinu fyrir dómstóla og
kemur það fyrir rétt í Los Angeles í
marz. Lögfræðingar þeirra segja að svo
mikið hatur sé hlaupið í málið að
hjónin fyrrverandi muni ekki skirrast
við að fletta ofan af öllum tiltækum
hneykslismálum í sambandi hvort við
annað.
Oh...
þessar
konur...
... geta aldrei gert neitt upp á sitt
eindæmi, gátu þessir liótæku lög
reglumenn verió aó hugsa þegar þeii
skiptu um dekk á bifreió einnar
Reykjavíkurnteyjarinnar við Um-
feróarmióstöóina um helgina.
Eflaust má ætla að fljóðiö hafi
hugsaó á móti „að það væri nú í lagi
að nota þessa karlmenn, þegar þeir
væru á annað boró fyrir hendi. Þeir
hefðu hvort eó væri lítið annaó með
tímann aó gera en að þræla fyrir
okkur kvenmennina!"
SER.
„Komin smáspenna í mig"
- segir Sólveig Leifsdóttir sem
Dagsvarkinu að Ijúka
baki.
■ og i annað hundruð snjóiausar kirkjutröppur að
Siðan er rætt um landsins gagn og nauðsynjar — og væntanlega rætt
um það hvort áfíka snjómagn þurfi að moka úr tröppunum að morgni.
FANNFERGK) NYRÐRA-SN JÓLEYSIÐ SYÐRA
,,Eg er floginn til fjallanna
nyrðra, þvi ég finn engan snjó hérna
syðra,” segir i ágætu kvæði
hljómsveitarinnar Þokkabótar — og
víst er að margur skiðamaðurinn hér
syðra hefur raulað þessar linur upp á
síðkastið með tárin í augunum,
. Það ntá raunar ætla, þegar skíða-
brekkur Suðurlandsins eru skoðaðar
að Vetur konungur hafi kvatt og
sumar sé gengið í garð. Aðra sögu er
að segja af Norðurlandinu. Þar vaða
menn klofháa skafla — og slika tíð
færa skíðamenn þar nyrðra sér að
sjálfsögðu í nyt. Þeir hafa rennt sér á
skíðum sínum alit frá siðustu haust-
mánuðum — á meðan sunnanmenn
hafa horft upp á skíði sin rykfalla i
geymslum. Svo virðist sem engin
breyting verði á þvi næstu vikur.
Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa
ekki farið varhluta af fannferginu
nyrðra. Þeir hafa mátt hafa sig alla
við til þess að ryðja skðflunum úr
kirkjutröppunum — og raunar víðar.
Meðfylgjandi myndir tók Gísli Sigur-
geirsson af köppunum þegar þeir
höfðu lokið mokstrinum einn daginn
— væntanlega vissir unt að slíkt og
hið santa þyrfti að gera næsta dag.
-SER.
brátt mun taka þátt í alþjóðlegri
hárgreiðslukeppni í Lundúnum.
Alþjóðleg hárgreiðslukeppni
verður haldin i byrjun næsta
mánaðar í þvi merka húsi Royal Hall
i Lundúnum. Meðal keppenda, sem
koma frá nærri 140 þjóðlöndum,
verður einn íslendingur, Sólveig
Leifsdöttir að nafni. Sólveig hlaut
íslandsmeistaratitilinn í hárgreiðslu á
síðastliðnu ári.
Blaðamaður sló á þráðinn til
Sólveigar og var hún spurð hvort hér
væri um sterkt mót að ræða.
,,Já, þetta er bæði sterk og
viðamikil keppni. Þetta er eins konar
óopinber heimsmeistarakeppni og
þátttakendur hennar eru allt meistar-
ar frá sínum heimalöndum.”
Og í hverju verður keppt?
,,Það verður keppt i nútíma-
greiðslu annars vegar eða „gala”-
greiðslu eins og hún er jafnan nefnd
og hins vegar sígildri greiðslu. Auk
þess verður keppt í almennri
klippingu.”
Verðlaunin?
„Þau verða að sjálfsögðu stór og
mikil. Það verður eingöngu boðið
iupp á peningaverðlaun og fyrstu
verðlaun munu nema um 125.000
ííslenzkum krónum.”
Þú gerir þér vart vonir um þau?
„Nei, ekki get ég nú sagt það.
Þetta er svo stór og ströng keppni. Ég
vona samt að ég hafni ekki í síðasta
sæti heldur svona einhvers staðar
efra megin við línuna. Annars er
áðalatriðið að taka þátt í þessu, þvi
ég á eflaust eftir að læra mikið á
þessu.”
Hefur þú tekið þátt í sams konar
keppnum áður?
„Nei, ekki svona sterkum mótum
eins og þetta kemur til með að verða.
En að sjálfsögðu hefur maður tekið
þátt í mörgum hárgreiðslukeppnum
hér heima, en þær eru ekkert í likingu
við það sem þarna verður um að
ræða.”
Ertu ekki eilitið spennt fyrir
keppnina?
„Jú, því er ekki að neita. Það er
komin smáspenna í mig. Annars fer
ég vestur á firði í þessari viku og þar
ætti ég að geta slakað svolítið á fyrir
keppnina.”
Sólveig, sem að öðru jöfnu vinnur
á hárgreiðslustofunni Gigju við
Stigahlíð, var að lokum spurð að því
hver hártízkan væri um þessar
mundir.
„Já, því er erfitt að svara,” segir
hún, ,,og hvað skal segja. Að niínu
mati er hártizkan náttúrlega orðin
mjög breytileg frá degi til dags. Fólk
fylgist ekki eins grannt með
nýjungum í henni núna og áður var.
Það má eiginlega segja að núorðið
láti hver og einn klippa sig eftir eigin
ihöfði.”
-SER.
Ljósmyndin er tekin á isiandsmeistaramótínu i hirgreiðslu í fyrra og sýnir meistarann, Sólveigu Leifsdóttur, á-
samt módefí sínu sem raunar er systir hennar, Halla að nafni.
\
I
1
I
I