Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Blaðsíða 36
Athyglisverð tilraun starfsmanna Lýsishf. við Grandaveg:
Vörubílnum ekiö um
allt á úrgangslýsi
„Það er aiveg rétt að við höfum
gert tilraunir með að láta vörubíla
okkar keyra á lýsi í stað olíu. Það er
ekki komin nein reynsla á þetta, en
tilraunir okkar sýna að þetta er
hægt,” sagði Tryggvi Ólafsson
forstjóri Lýsis hf. í viðtali við DV í
morgun.
Starfsmenn Lýsis hf. hafa verið að
gera tiiraunir með þetta frá því
snemma í fyrra. Var fyrst farið af
stað með gamlan bil af gerðinni
Scania árgerð 1955, en nú má einnig
keyra einn af nýjustu vörubilum
fyrirtækisins um allt á lýsi.
„Við höfum prófað að nota
úrgangslýsi í stað svartolíu á kyndi-
katlana hér inni í verksmiðjunni, og
það gafst mjög vel,” sagði Tryggvi.
„Það var síðan farið að spjalla um
það í gamni meira en alvöru, hvort
ekki mætti þá alveg eins nota
úrgangslýsið á bílana okkar.
Útkoman úr því varð sú að ákveðið
var að gera tilraun á elzta bílnum.
Blandað var saman 60% lýsi og 40%
dísilolíu og hann gekk vel á því. Þá
var sett á hann hreint lýsi og hann
síðan keyrður á þvi í sumar með
góðum árangri.”
Það var síðan hugmyndin að gera
tilraunir með þetta á nýjum bíl nú i
vetur, og sjá hvernig það kæmi út i
frosti og kulda.
Voru gerðar breytingar á bílnum til
þess eins, meðal annars settir á hann
tveir tankar. í öðrum er lýsi en hinum
díselolía. Þarf aðeins að snúa einum
krana til að færa á milli þeirra.
Bíllinn er settur i gang og dreoið á
honum með disiloliu en lýsið er
notað þegar keyrt er.
„Við höfum ekki enn náð að gera
tilraunir með þetta í vetur, og það á
eftir að prófa þetta við ýmsar aðrar
aðstæður,” sagði Tryggvi. „Það er
því ekki hægt að fullyrða neitt um
árangurinn á þessu stigi. það er þó
hægt að segja að það er mun minni
útblástursbræla af bílnum þegar
honum er ekið á lýsinu en af dísil-
olíunni auk þess sem bílinn er ódýrari
i rekstri á þennan hátt.”
_L I _
r
Astand loðnu-
stofnsins aldrei eins
bághorið:
,Lögðum til að
veiðum yrði hætt’
— segir Hjálmar
Vilhjálmsson
fiskifræðingur
„Okkur telst til að það séu ekki
nema 150 þúsund tonn eftir af
hrygningarstofninum fyrir austan
land og líkast til fer þetta nærri því
að vera það eina sem eftir er,”,
sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur er DV ræddi við hann i
morgun.
Rannsóknarskipið Bjarni
Sæmundsson er nýlega komið úr
rannsóknarleiðangri á loðnustofn-
inum og niðurstaða hans sýnir svo
ekki verður um villzt að ástand
loðnustofnsins hefur aldrei verið
eins bágborið.
„Þegar við höfum gert tillögur
um hámarksafla höfum við miðað
við að um 400.000 tonn séu eftir.
Stofninn er hins vegar kominn langt
niður fyrir það mark þannig að
ástandið er orðið býsna alvarlegt.
í ályktun sem fylgdi niðurstöðum
okkar Páls Reynissonar, sem vann
að þessum mælingum með mér,
lögðum við eðlilega til að veiðum
yrði hætt en það er ekki okkar að
taka ákvörðun þar um,” sagði
Hjálmar.
-SSv.
—....“b* V1 « «i gaugaiTai
DV-mynd EÖ.
o iimuiii ijunrittnna runai § gær. u v-myna ttnar
FRIÐUR SAMINN í VAKTAVINNUDEILUNNI:
LÖGREGLUMENN SAM-
ÞYKKTU 8 TÍMA HVÍLD
Lögreglumenn í Reykjavík sam
þykktu á fjölmennum fundi i gær að
gangast undir hið umdeilda vaktafyrir-
komulag, sem þeir hafa deilt um við
ríkið síðustu mánuði.
Deilan stóð aðallega um hvíldartím-
ann. Taldi lögreglan sig eiga rétt á 10
tima hvíld en rikið kom með á móti að
sumir í Iiðinu skiluðu ekki 40 stunda
vinnuviku með því.
„Það er kominn friður á í þessu máli
en samkomulagið sem við gerðum
okkar á milli gildir í eitt ár,” sagði
Björn Sigurðsson, formaður Lögreglu-
mannafélags Reykjavíkur, í viðtali við
DV eftir fundinn. „Deilan stóð um
hvíldartimann og ýmislegt annað en
samkomulagið hljóðar upp á að hvild-
artíminn verði hér eftir 8 tímar í stað 10
tíma,”sagði hann.
Lögreglumannafélagið í Reykjavík
er að innrétta stórt félagsheimili að
Brautarholti 30 og því hefúr verið fleygt
aö ríkið hafi boðið fram ýmsa fyrir-
greiðslu í sambandi við það og annað ef
lögreglumenn vildu semja. Við
spurðum Björn hvað hann vildi segja
um það.
„Viðkvæmi punkturinn og
spenningurinn í þessu var að menn
vildu ekki tengja saman hvíldarákvæði
og félagsheimilið og ég tel að það hafi
verið siglt alveg fram hjá því með þessu
samkomulagi,” sagði hann.
-klp-
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 27. JAN. 1982,
r
Askrifendagetraun
Dagbladsins& Vísis:
Izuzu
Gemins
bíllinn
dreginn út
íkvöld
Enn hafa attir tækifæri
tilaöverameö
Getraunaseðlarnir hafa streymt inn
að undanförnu í áskrifendagetraun
Dagblaðsins & Vísis. í dag eru allra
síðustu forvöð að skila inn seðlum, þvíi
hinn glæsilegi vinningur, Isuzu Gemini-
bíllinn verður dreginn út eftir kl. 22 í
kvöld
Þeir sem enn eiga eftir að skila inn
seðlum geta komið þeim á afgreiðslu
blaðsins, að Þverholti 11, fyrir kl. 22 í
kvöld. Hinir, sem vilja taka þátt i
getraunaleiknum en hafa enn ekki
gerztáskrifendur.eiga ennþá möguleika
á að vera með. Þeir geta hringt í síma
86611 til kl. 20 í kvöld, eða síma 27022
til kl. 22 og gerzt áskrifendur. Þar með
eru þeir orðnir þátttakendur í áskrif-
endagetrauninni.
Stórplast-
báturbrann
Ellefu tonna plastbátur eyðilagðist í
eldi í morgun í Garðabæ. Var verið að
innrétta bátinn, sem var nýr, hjá fyrir-
tækinu Barco í Garðabæ.
Er slökkvilið Hafnarfjarðar kom að
um sjöleytið í morgun logaði glatt í
bátnum. myndaðist nokkur hiti og
sprungu rúður í nærliggjandi húsi.
-KMU.
Þingmennirnir ættu líklega
auðveldara með að kyngja
efnahagspakkanum ef þeir
tækju inn lýsi eins og bUarnir.
hressir betur.