Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1982, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR18. NOVEMBER1982.
5
Verðbætur
skerðast un
lOprósent
— laun hækka um 7,72% 1. desember
Verðbætur sem greiða ber á laun frá
1. desember næstkomandi skerðast um
tæp 10% vegna skerðingarákvæða
Olafslaga og bráðabirgöalaga ríkis-
stjómarinnar frá 21. ágúst síðastliðn-
um en launþegar munu þó aðeins fá
7,72% hækkun á laun í desember. Sam-
kvæmt skeröingarákvæðum Olafslaga
eru 0,99% dregin af hækkun fram-
færsluvísitölu við útreikning verðbóta
á laun sem búvörufrádráttur, 0,61% er
dregið af vegna verðhækkana á áfengi
og tóbaki og 0,48% vegna viðskipta-
kjararýrnunar. Samkvæmt bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar er það
sem þá er eftir helmingað og nemur sú
skerðing 7,71%. Alls nemur skerðingin
9,79%. Launþegar munu því fá 7,72%
kauphækkun í desember upp í 17,51%
hækkun á f ramf ærsluvísitölu. ÖEF
Leikritið Hjálparsveitin segir fri því þegar unga fólkið ákveður að bjóða
öidruðum ókeypis heimilishjálp. Myndin er tekin á æfingu Litla leik-
klúbbsins, ísafirði.
Nýtt íslenskt verk
frumflutt á Hnífsdal
— Hjálparsveitin eftir Jón Steinar Ragnarsson
Litli leikklúbburinn á Isafirði
frumsýndi í fyrradag leikritið Hjálpar-
sveitina. Höfundur er Jón Steinar
Ragnarsson, heimamaöur vestra.
Þetta er raunar annað íslenska
leikritið sem klúbburinn frumflytur á
þessu ári. Hitt var Or aldaannál eftir
Böðvar Guðmundsson og fóru Is-
firðingar með það á listahátíð i
Reykjavík og einnig til Danmerkur.
Hjálparsveitin er gamanleikur um
samskipti unglinga og aldurhniginna.
Ungmennafélagið Auður djúpúðga
ákveður að bjóða ókeypis heimilis-
hjálp í tilefni af ári aldraðra. Gengur
þar á ýmsu og margt spaugilegt
skeður.
Leikendur eru tólf og leikstjóri er
Jill Brooke Arnason. Lýsingu annast
Magni Guðmundsson en tónlistin í
verkinu er samin af Júlíusi Kristjáns-
syni, Samúel Einarssyni og fleirum.
Leikmynd er hönnuð af leikstjóra og
höfundi.
I tilefni af ári aldraöra verður öllum
leikhúsgestum, 67 ára og eldri, boðinn
afsláttur af miðaverði.
-ihh.
Tillaga á fundi efnahagsmálanef ndar
Norðurlandaráðs:
Norrænt samstarf
um gengisskráningu
Frá Herbert Guðmundssyni blm. DV á
Álandseyjum:
Tillaga um að Norðurlönd sam-
einuöust um að kanna áhrif gengis-
lækkana og settu á stofn samráðs-
stofnun um gengisskráningu hefur
verið lögð fram á fundi efnahagsmála-
nefndar Norðurlandaráðs sem nú
stendur yfir á Álandseyjum. Tillagan
er flutt af norska þingmanninum
Gunnar Berge.
Mikil óánægja hefur komið fram á
fundinum í garð Svía fyrir að hafa fellt
gengi sænsku krónunnar um 16% án
þess að hafa haft samráð við hinar
Norðurlandaþjóðimar en gengis-
fellingin hafði mikil áhrif á gengis-
skráningu gjaldmiðla þeirra. Menn
greinir á um hvort þjóðirnar geti haft
með sér frekara samflot um gengis-
skráningu. Anker Jörgensen, forsætis-
ráðherra Dana, sagði að Islendingar
væru í sérflokki í þessum efnum vegna
tíðra gengisfellinga en Danir hafa
einnig sérstöðu í þessum hópi vegna
aðildarinnar að Efnahagsbandalagi
Evrópu.
Páll Pétursson, sem sæti á í efna-
hagsmálanefndinni, sagði aö ef
tillagan yrði samþykkt gæfi hún
möguleika á aö fá álit margra hag-
fræðinga á gengismálum Islendinga.
Hins vegar hefði hún jafnframt í för
með sér að til þess að sinna þessu
samstarfi þyrftu Islendingar að hafa
fasta nefndá Norðurlöndum.
Tillaga þessi mun verða lögð fyrir
ráðherranefnd og síðan fyrir
Norðurlandaráðsþing sem haldið
verður í Osló á næsta ári. -ÓEF.
model skálholt
RTTdR
Vandað og glœsilegt
sófasett úr valinni
massífri furu í Ijósum
viðarlit eða brúnbœsað.
Sendum gegn póstkröfu hvert
á land sem er.
RJRUHÚSÍÐ HF.
Suðurlandsbraut 30 105 Reykjavik Simi 86605.
þrekhjól
fyrir þá sem
er annt um heilsuna
, , ! mmma Reiðhiólaverslunin_
Serverslunimeira AwffnniM
en hálfa öld / UirlwllVlir '
/ Spítalasííg 8 vió Oóinstorg símar: 14661,26888
Kjörið til líkamsræktar heimavið. Stöðugt og sterkt - mjúkt og breitt sæti,
öryggishlífar á keðju og hjóli - stillanlegt stýri og sæti -
stiUanlegur fótstigsþungi - hraðamælir og snúnings-
teljari - tekur lítið pláss. Varahlutaþjónusta.
Verð kr. 2.401 og 2.759.
SHHninutur á dag...
KALKHOFF þrekhjól er ódýr
og góð lausn fyrir þá sem
annt er um heilsuna.