Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1982, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1982, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR18. NOVEMBER1982. 35 Ásdis Loftsdóttir sýningarstúlka ávarpaði Unni Arngrimsdóttur á 20 ára starfsafmæli hennar og færði henni blómvönd. Sviðsljósið Sviðsljósið, DV-myndir EinarÓlason. Módelsamtökin sýndu hinn fjölbreytilegasta fatnað á starfsafmæli Unnar, ...tH virðulegs klæðnaðar brúðhjóna. allt frá jogging-fötum.... Unnur Amgrímsdóttir held- ur upp á 20 ára starfsafmæli — Módelsamtökin kynntu starfsemi sína og sýndu fatnað frá 14 fyrirtækjum Módelsamtökin kynntu starfsemi sína á skemmtistaönum Broadway á dögunum. Aö sögn Unnar Arngríms- dóttur eru 20 ár liðin frá því aö hún byrjaöi í bransanum, eins og hún oröaöi þaö, en Módelsamtökin koma ekkifyrren síöar. „Viö vorum aö kynna starfsemi okkar þama á Broadway en hún er fólgin í tískusýnmgum, auglýsinga- myndatöku og svo námskeiöahaldi fyrir konur og karla,” sagði Unnur Amgrímsdóttir í samtali viö DV. „Við erum meö 40 manna hóp núna. Auðvit- að eru konur þar í miklum meirihluta en viö eram á öllum aldri. A Broadway var sú elsta sem sýndi tæplega fertug en yngsta manneskjan sem sýndi meö okkur í þetta sinn var fjögurra ára gamaltbam.” Unnur sagöi aö á 20 ára starfsafmæli hennar, sem haldiö var upp á á Broad- way meö kynningarkvöldi, heföi verið sýndur fatnaöur frá 14 fyrirtækjum í Reykjavík. ás. STYKKIS- 1 Leikfélagið Grímnir H01MUR! 1 setur upp Skugga-Svein — rúm öld síðan leikritið var fyrst sett upp í Hólminum Leikfélagiö Grímnir í Stykkishólmi tók nýlega til sýningar leikritið Skugga-Svein eftir Matthías Jochums- son. Leikstjóri sýningarinnar er Jón Júlíusson, ljósameistari er Kristinn Daníelsson og gerð leikmyndar sá Jón Svanur Pétursson um. Þeir þrír eru allir reyndir menn úr atvinnuleikhús- unum á höfuðborgarsvæðinu en sá síöastnefndi er fæddur í Stykkishólmi og tók þátt í uppfærslum Grímnis á árunum 1967—1972 en hefur verið fast- ráðinn leiktjaldamálari viö Þjóöleikhúsiö síðastliöin sjö ár. Alls taka sextán leikarar þátt í sýningunni en aðalhlutverkið, Skugga- Svein, leikur Eyþór Lárentsínusson. Leikritiö samdi Matthías Jochums- son upphaflega áriö 1861 og hét það þá Utilegumennirnir en hann endursamdi það þrisvar og hlaut þaö um síöir nafnið Skugga-Sveinn. Matthías sagði um leikrit sitt i bréfi til Steingríms Thorsteinssonar: „Þó þetta rit mitt sé í raun og veru ómerki- legt, gjöröi það þó hvínandi lukku, ég var æptur fram á senuna, og klappaö yfir mér, svo ég varö áttaviltur.” Og enn gerir Skugga-Sveinn hvínandi lukku því aö sýningunni hefur verið tekiö mjög vel. Auk Stykkis- hólmsbúa hafa áhorfendur komið frá nærliggjandi sveitum á Snæfellsnesi í Félagsheimiliö í Stykkishólmi þar sem leikritiö er sýnt. En þetta er ekki í fyrsta sinn sem Skugga-Sveinn og félagar gera það gott í Stykkishólmi. Fyrir rúmum hundraö árum eöa veturinn 1880—1881 voru Utilegumennirnir fyrst sýndir þar og fór Sveinn Jónsson snikkari, bróöir Björns ráðherra, með hlutverk Skugga-Sveins. Frú Clausen, kona dönsk að ætt og menntun, mun hafa leiðbeint leikemjum. Skugga-Sveinn var alltaf leikinn meö fárra ára milli- bili í Stykkishólmi og voru sýningar í þá daga kallaðar, ,kómedíuspil”. Sem sagt: Skugga-Sveinn lætur enn á sér bæra í Stykkishólmi rúmri öld eftir aö Stykkishólmsbúar settu upp leikinnífyrsta sinn. ás. A triði úr Skugga-Sveini. D V-mynd: Bæring Cecilsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.