Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1982, Blaðsíða 33
DV. FIMMTUDAGUR18. NOVEMBER1982.
33
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Nýlega gerðist það að
Albert Guðmundsson
alþingismaður þuriti að fara
með bilinn sinn í stillingu hjá
Sambandinu. Af einhverjum
ástæðum var Olafur Ragnar
Grimsson með Albert í bíln-
um.
Þegar Albert kom á verk-
stæðið sté hann úr bílnum,
gekk að nærstöddum starfs-
mönnum og sagði: „Ég er
með vanstilltan mann hér
semþarf að stilla.”
Olafur Ragnar sat inni í
bílnum og heyrði því ekki
orðaskipti. En þegar hann
stuttu síðar kom út sá hann
framan í skellihlæjandi andlit
starfsmanna. Verkstæðið
glumdi af hlátri en Ólafur
Ragnar skildi ekkert.
• ••
Luxair eldar
ofan í Flugleiða-
Flugleiðir hættu um siðustu
mánaðamót rekstri flugeld-
húss sins í Lúxemborg. Kost-
aði það uppsagnir nokkurra
starfsmanna.
Flugfélagið verður eftir
sem áður að fá mat i Lúxem-
borg. Hefur máliö verið ieyst
með því að semja við Luxair
um að elda ofan í farþega
Flugleiða.
• ••
Afsökunarbeiðni
Umsjónarmaður Sand-
korns vill biðja Gisla Helga-
son afsökunar vegna kiausu
JÓLAGETRAUIM „jóbÓLFS
Viðhöfum klætt9(Jólasveinar1 og8)þekkta menni dulargerfi
jólasveina, eins og við hæli er. i jóiabiaöi Þjóðólfs verður birtur get-
raunaseðill, sem sendist blaðinu útlylltur, og eru þátttakendur beön-
iraö skrá á hann nöln allra „jólasveinanna" i réttriröó og senda blað-
inu fyrir 15. janúar n.k.
sem i boði eru, er ferð með hefðbundnu
leiguflugi SAMVINNUFERÐA fyrireinn
á árinu 1983 að upphæö 15.000 krónur.
Getraunir fyrir unglinga og önnur fyrir börn veröa í
jóiabiaöinu.____
Pólitík jafnvel í
jólagetraun
VERÐLAUNIN
sem birtist í fyrradag. Það
var athugunarleysi
umsjónarmanns að haga
orðum þannig að þau gátu
reynst særandi. Það var alls
ekki ætlunin að draga dár að
fötlun Gísla sem er reyndar
ekkl blindur heldur sjónskert-
nr.
Þá var það rangt að Gísli
hefði stigið í pontu á flokks-
þingi Framsóknarflokksins.
Það mun hafa verið tvíbura-
bróðir hans, Arnþór Helga-
son. ###
Hagkvæmasti
staðurinn kemur
ekki til greina
Nefnd um staðarval álvers
komst að þeirri niðurstöðu að
fimm staöir kæmu helst til
greina undir álver: Helguvík,
Vogastapi, Vatnsleysuvík,
Geldinganes og Amarnes-
hreppur í Eyjafirði. Hins
vegar afskrifar nefndin þann
stað sem hún sjáif telur þann
hagkvæmasta, nefnilega
Grundartanga. Ástæðan er
hversu stutt er siðan jám-
blendiverksmiðjan tók þar til
starfa.
Akumesingar em ekki allir
reiðubúnir til að kyngja þess-
ari niðurstöðu. Hafa nú
heyrst raddir á Skaganum
um að koma á fót hópi til að
skoða mál þetta.
• ••
Verslanir tíunda i
í kirkjubyggingar-
sjóð
Fjáröflunaraefndin fyrir
kirkjubyggingu i Fella- og
Hóiasókn í Breiðholti hefur
ailar kiær úti. Nýlega tókst
henni að fá þrjár stórar mat-
vömverslanir í hverfinu til að
leggja ákveðinn hundraðs-
hlnta af veltu cins f östudags i
kirkjubyggingarsjóð. Þetta I
era verslanirnar Kjöt og
fiskur, Hóiagarður og |
Straumnes.
Sum biöð láta ekkert tæki-
færi ónotað tii að koma að
pólitíkinni. Svo virðist til
dæmis um blaö framsóknar-
manna á Suðurlandi, Þjóðóif.
Þar er jafnvel jólagetraunin
ekki látin ónotuð i pólitisku
skyni. Birt er mynd af stjóra-
málaandstæðingum, jóla-
sveinagervi teiknað inn á og
lesendur látnir geta sér til um
hvað „jólasveinamlr” heita.
Umsjón:
I • KristjánMár Unnarsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir
Franska kvikmyndavikan—Harkaleg heimkoma
Gamanmynd með
litlum húmor
Heiti: Harkaleg hoimkoma (Retour en force).
Leikstjóri: Jean-Marie Poiró.
Handrit: Joan-Maríe Poiró og Josiane Balasko.
Kvikmyndun: Yves Lafaye.
Tónlist: William Scheller.
Aðalhlutverk: Victor Lanoux, Bornadette
Lafont og Pierre Mondy.
Árgerð: 1980.
Það virðist ekki vera i eðli Frakka
að gera góðar gamanmyndir, alla-
vega hafa þær þá ekki borist hér upp
á klakann. Eini frambærilegi
gamanleikstjóri og leikari sem
Frakkar hafa getað boðið okkur upp
á er hinn nýlátni snillingur Jacques
Tati en myndir hans eru með minnis-
stæðustu gamanmyndum er undir-
ritaður hefurséö.
Eina gamanmyndin á frönsku
kvikmyndahátíöinni er Harkaleg
heimkoma og ef sú mýnd er það
besta sem Frakkar gátu fundið fyrir
okkur til að kynna franska
kvikmyndalist þá hefðu þeir frekar
átt að velja eina til viðbótar af al-
varlegri geröinni því myndin er
meðalmennskan uppmáluð og mikill
munur á henni og bestu mynd há-
tíðarinnar, Dívu.
Myndin segir frá Adrien Blaussac
(Victor Lanoux), náunga sem
nýsloppinn er úr fangelsi eftir að
hafa setið inni í 8 ár fyrir innbrot
sem hann framdi ásamt öðrum en
tók á sig sökina. Hann býst við að
hitta fjölskyldu sína og endurheimta
dágóða upphæð sem félagar hans
eiga að hafa geymt fyrir hann. En
Adrien kemst brátt að raun um að
fjölskyldan hefur ekki hegöað sér
eins og hann gerði ráð fyrir og
félagar hans eru tregir til að skila
honum peningunum sem hann telur
sigeiga.
Adrian hefst handa við að endur-
heimta fjölskyldu sína og reyna aö
komast yfir þá peninga, sem hann
heldur sig eiga inni hjá fyrrverandi
félögum sínum og snýst myndin eftir
það að miklu leyti um samskipti
Adriens við elskhuga konu sinnar
sem hefur hýst fjölskyldu hans í sex
ár og innbrot sem hann fremur í
samkrulli meö syni sinum, en
innbrotiö er svo illa unniö að þaö
verður hvorki kómískt né spennandi.
Þetta er þriðja mynd leikstjórans
Jean-Marie Poiré og segir í kynning-
arriti frönsku kvikmyndavikunnar
að hann sé búinn að ávinna sér nafn
sem gamanmyndaleikstjóri. Nú, ef
svo er þá hafa Frakkar öðruvísi
húmor en ég hef, ég náði að vísu að
brosa út í annað en varla meira. Það
eru að vísu atriði sem sóma sér vel í
gamanmynd, t.d. útfærslan á
klassísku gamanmyndaatriði þegar
tveir menn með stærðar glerrúðu á
milli sín arka út á götu í miðjum bíla-
eltingaieik en slík atriöi eru alltof fá.
Og þótt efniviðurinn sé farsa-
kenndur nær myndin rétt aöeins að
verða miðlungsgamanmynd og hvað
er ieiðinlegra en að sitja yfir gaman-
mynd sem ekki er hiæjandi að.
Ekki bæta leikararnir þaö upp.
Það er aðeins einn ieikari sem sýnir
einhver tilþrif sem gamanleikari, er
það Pierre Mondy, sem strætis-
vagnastjórinn er haldið hefur
fjölskyldu Adriens uppi í sex ár.
Hilmar Karlsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir
■iiiiiiiiiimiiiliuiiiiuiiiii ■■■■■■■■■■■■■■.
i Hjónamiðlun og kynning [
er opin frá kl. 1—6 alla daga.
5 Síminn er 26628. Geymiöauglýsinguna. g
Kristján S. Jósepsson.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
GlElÉiaaElGjaE]ÉlGJÉ!aEleIé1n]ElG]e]aíDÍHlÉlÉ]G]E]G]Í]GlE
Blaðburðarböm
NÚ ER VERIÐ AD RÁÐA FYRIR
VETURINN
Látið skrifa ykkur á biðlista
BLAÐBERAR OSKASTI EFTIRTALIN HVERFI STRAX
Eiríksgata
Aragata
Aðalstræti
Gunnarsbraut
Hverfisgata
AFGREIÐSLAN
ÞVERHOLT111
SÍMI27022
[Élg@E@Elg@|g[g[gIgIgE@[g[g[g@@[g|g@lg@[gE@IgE[gl
MIKIÐ ÚRVAL
ALLS KOINIAR
JÓLAVÖRUM
Efni í jólaklœdnað, baby flauel, rönd-
ótt efni og ullarefni, ennfremur efni
í jóladúka og löbera.
Geríð svo vel að lita inn.
•£5Í VEFNAÐARVÖRUBÚÐIN
r ... Laugavegi 26
uvn (áðuí Grundarstig 2I.
Simi 14974.