Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1982, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR18. NOVEMBER1982.
19
Nýjar bækur Nýjar bækur
Skúli Guðjónsson
á Ljótunnarstöðum
Hver liðin
stund er
lögð ísjóð
Ut er komin hjá Skuggsjá minninga-
bók Skúla Guöjónssonar á Ljótunnar-
stööum sem hann hefur gefiö nafniö
Hver liðin stund er lögð í sjóö. Skúli á
Ljótunnarstööum er fyrir löngu þjóð-
kunnur fyrir erindi sín í útvarpi, grein-
ar sínar í blöðum og timaritum og þá
ekki síst fyrir bækur sínar. Viröist því
ástæöulaust að fjölyrða um nýja bók
frá hans hendi, en þetta er sjötta bókin
hans og enn kemur hann manni
skemmtUega á óvart.
Skúli segir hér m.a. frá barnaskóla-
námi sínu, en kennari hans þar var
Amdis Jónsdóttir sem þekktari er
sem „Elskan hans Þórbergs”. Rekur
Skúli á eftirminnilegan hátt kynni sín
af henni, frá fyrsta fundi þeirra til hins
síöasta. 1 þeirri frásögn kemur fram
hvemig kynnum hennar og Þórbergs
var háttaö.
öll frásögn Skúla er meö þeim hætti
aö maður sleppir ógjaman bókinni
fyrr en aUt er lesið, — töfrar máls og
stUs halda manni föngnum. Þetta er
ein þeirra bóka sem menn lesa aftur
og aftur — og aUtaf af jafnmikiUi
ánægju.
Hver liðin stimd er iögð í s jóð er sett í
Acta hf., prentuð í Prenttækni og bund-
in í BókfeUi hf. Káputeikningu gerði
Lárus Blöndal. Bókin er 212 bls. og gef-
in út hjá Skuggsjá.
Lausnarorð
eftir Marie Cardinal
Ut er komin hjá Iðunni bókin Lausn-
arorð eftir franska höfundinn Marie
Cardinal. Snjólaug Sveinsdóttir þýddi.
— Höfundur bókarinnar fæddist í Aisír
áriö 1929 og ólst þar upp. Hún stundaði
nám heima og í París og geröist síöan
háskólakennari í heimspeki. Á fertugs-
aldri tók hún að þjást af sálsýki sem
smám saman magnaðist uns þar kom
aö hún gekkst undir sálgreiningu. Frá
henni segir í þessari bók. Vegna sál-
greiningarinnar þarf hún aö gera upp
fortíð sína, uppruna sinn, uppeldi og
móður. Þeirri sjáifskrufningu lýsir
sagan.
Marie Cardinal býr nú í París og hef-
ur samið fleiri bækur sem hlotiö hafa
viöurkenningu og verið þýddar á mörg
tungumál. Hún hefur veriö formaöur
franska rithöfundasambandsins. Bók-
in er 218 blaðsíður. Prentrún prentaði.
Sýnir og
sálfarir
eftir Guðmund
Jörundsson
Ut er komin hjá Skuggsjá bókin Sýn-
ir og sálfarir eftir Guðmund Jörunds-
son útgerðarmann og skipstjóra. Guö-
mundur er landskunnur athafna- og
aflamaöur, einstakt prúömenni og
drengskaparmaður sem allir sem til
þekkja vita aö ekki hallar réttu máli.
Guömundur er alinn upp í Hrísey þar
sem Jörundur hákarlaformaður, afi
hans, stundaði sjóinn og síöar Jörund-
ur faðir hans sem einnig var kunnur
sjómaöur og útgerðarmaöur. Guð-
mundi kippir í kyniö, s jórinn varð einn-
ig hans starfsvettvangur. Hann var at-
hafnamaöur og farsæll skipstjóri og í
forustusveit íslenskra útvegsmanna
um nýja tækni og framfarir í sjávarút-
vegi.
En Guðmundur Jörundsson er einnig
mörgum kunnur fyrir dulargáfur. Og
þaö er sá þáttur úr lífi hans sem hann
hér segir frá. Þessar dulargáfur telur
hann sig hafa erft frá Kristínu Antons-
dóttur, móöurömmu sinni, og þær hafa
markað líf hans og mótað á margan
hátt.
Sýnir og sálfarir er 152 bls., sett og
umbrotin í Acta hf., prentuð í Prent-
tækni og bundin i Bókfelli hf. Lárus
Blöndal geröi hlíf öarkápu og útgefandi
erSkuggsjá.
MSRÍNÖ L. STEfÁNSSOtf
Manni litli
í Sólhlíð
eftir Marinó L. Stefánsson
Bókaútgáfan Skjaldborg á Akureyri
hefur nýlega sent frá sér Söguna um
Manna litla í Sólhlíö. Höfundur hennar
er Marinó L. Stefánsson, kennari í
Reykjavík. Káputeikning og myndir
eru eftir Arna Indriöason.
Söguna um Manna litla í Sólhh'ö
þekkja margir því aö hún hefur tvisvar
verið lesin í morgunbamatíma Ríkis-
útvarpsins og hlotið miklar vinsældir.
Margir útvarpshlustendur komu að
máli viö höfundinn og grennsluöust
fyrir um hvort sagan yröi ekki gefin út.
Hún er mjög læsileg og sett meö skýru
og greinilegu letri.
Fyrsti kafli hennar segir frá fjög-
urra ára afmæli Manna litla, en þegar
henni lýkur er Manni aö verða f jórtán
ára.
SKUGGSJÁ
Elizabeth
Taylor
ástir, líf og leikur
Ut er komin á vegum Iöunnar bókin
Elizabeth Taylor, ástir, lif og leikur.
Þetta er ævisaga hinnar heimsfrægu
kvikmyndastjömu sem Kitty Kelley
hefur skráö. Ingibjörg Jónsdóttir
þýddi. I bókinni er rakinn litríkur ferill
Elizabethar, jafnt í einkalífi sem á
kvikmyndatjaldi um áratugaskeiö.
Sem kunnugt er hefur þar gengið á
ýmsu og um þau mál segir svo á kápu-
baki m.a.: „Sjö sinnum hefur hún
gengið í hjónaband, hvert öðru storma-
samara. Hemjulaus ólifnaöur hennar
og fimmta eiginmannsins, Richards
Burton, olli þviliku hneyksli aö heims-
sögulegir atburðir á stjómmálasviöinu
féllu í skugga hans. Jafnvel Vatíkanið
gat ekki látið hann óátalinn. Með kenj-
um sinum og heimtufrekju gerði hún
einn stærsta kvikmyndaframleiðanda
heims nær gjaldþrota.”
Eiizabeth Taylor, ástir, líf og leikur
er stór bók, skiptist í 28 kafla, rúmar
300 blaðsíöur auk þrjátiu og tveggja
myndasíöna úr lífi leikkonunnar og af
henni í ýmsum frægum hlutverkum.
Prentrún prentaði.
ITTITPT.T.TJI.
Boðsdagar
hjá þremur
stórþjóðum
Ferðaþættir eftir Braga Sigurjóns-
son, fv. ráöherra, eru komnir út hjá
Skjaldborgu, Akureyri.
Höf undur þeirra segir s vo í f ormála:
„Þættirnir em að meginefni ritaöir
þegar eftir hverja ferð og sumir birtir í
vikublaöinu Alþýðumanninum á sínum
tíma, en nú frískaðir upp með saman-
burði viö skráöar dagbækur í hverri
ferð. ..”
Sagt er frá Bandaríkjaferð 1952,
Kinaför 1956 og Rússlandsreisu 1973.
I Bandarikjunum vora ferðafélagar
Braga 11 blaðamenn frá þátttökuríkj-
um Atlantshafsbandalagsins. Sam-
ferða honum til Kína voru Jakob
Benediktsson, Jörandur Brjmjólfsson,
Magnús Jónsson, Brynjólfur Bjarna-
son, Olafur Jóhannesson, Bjöm
Þorsteinsson, Kristján Bender og Jón
Helgason.
En í Rússlandsreisu fylgdu Braga
þeir Eysteinn Jónsson, Steinþór Gests-
son, Garðar Sigurösson og Benóný
Arnórsson.
Bókin er prýdd fjölda ijósmynda af
ferðalöngunum á f jarlægum stöðum.
TEPPAHÖLUN
Ármúla 22 — Sími 32501
Vönduð og ódýr teppi.
Ágúst Einarsson
útgeröarmaöur
Baráttumaður ábyrgðar og
skynsemi í atvinnumálum
Ágúst á erindi á Alþingi
Styðjum Ágúst í prófkjörinu
SIMI18977
Studningsmenn
OPIÐ PRÓFKJÖR
Alþýðuflokksins 27. og 28. þ. m.
Breytingunum lokið
Full búð af nýjum vörum
Barnakjólar: stœrdir 110—140. Verð kr. 792,-
* Sendum ípóstkröfu
Vellc°mið gwrocard um allt land.
grciða m Fataverslun fjölskyldunnar hf.
lcredltK Hamraborg 14 - 200 Képavogi - Simi 46080