Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1982, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1982, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 27. NOVEMBER1982. 3 I þetta eru í raun sannar lífsreynslusög- ur má því ætla að þær konur sem semja þessar sögur séu helst til aftar- lega á merinni hvað jafnréttisþróun snertir. Stílbragðið er ekki gott. Gæðin í þeim efnum eru hverfandi — og ekki bætir það þýðingu þessara rómana að þeir eru morandi í prent- og málvillum. En það er létt og átakalaust að lesa þetta efni ef áhuginn fyrir innihaldinu er fyrir hendi. Hitt er verra aö þegar litið er yfir allar þær sögur sem lesa má í þessum flokki númer tvö reynast þær allar keimlíkar að uppbyggingu og eðli. Að afklæða sem f lesta Af lokum skal geta þríðja og síðasta flokks afþreyingarbókmennta og ja&i- framt þess djarfasta. Hann má fylla meö tímaritum eins og Bangsa og vasabrotsbókum á borð við Kvenholli geðlæknirinn og Gleðihús Matty frænku. 1 þessum sögum er að finna ítarlegar hugleiðingar um kynhvötina og áhrifa- mátt hennar. Aðaláherslan er lögð á að afklæða sem flesta á sem fæstum min- útum. Karlmennirnir klæða konumar úr með augnaráöinu og öfugt. Mestu plássi er svo varið í samfaríraar sjálf- ar og aödraganda þeirra. Mjög lítið fer fyrir efnisþræði í sög- unum, enda eru þetta fyrst og fremst samræðislýsingar; uppáferðir á uppá- ferðir ofan. Pörin eru jafnan komin úr fötunum strax í annarri línu og eru allsber það sem eftir lifir af frásögnun- um. Orðalagið er heldur gróft og hin óvenjulegustu heiti eru notuð yfir kyn- færi sögupersónanna. Stíllinnerslakur og uppbygging sagnanna virðist ein- göngu ráðast af lengd hvers ástarleiks fyrirsig. Þetta er lesið...! Það er erfitt aö ímynda sér annað en að f ólk veröi leitt á þessum sögum eftir að það hefur lesið tvær eða þrjár þeirra. Innihald þeirra er alltaf það sama, blæbrigöamunur er varla grein- anlegur milli þeirra. En fyrst þessi rit eru gefin út þá virðast þau seljast í ein- hverjum mæli. Það er því ljóst að til er fólk sem hefur gaman af þessum grófa lestri. -SER. Texti: Sigmundur Ernir Rúnar sson Myndlr: Einar Ólason Gffuriegt úrval ar af alls konar afþreyingarblöðum — tímarítum og vasa- brotsbókum » sjoppum útí um allt land. Þetta ar ódýrt lesefni, kostar fri þrjátíu krónum tíl rúmlega hundrað kall, an hversu mikil gæðin eru er umdeilanlegt. O V-myndir Einar Ólason. Nýir tímar, nýir menn Sjálfstæðismenn hafa að undanfömu horft til fram- tíðaiinnar og valið unga menn til ábyrgðarstarfa. Geir H. Haarde er 31 árs gamall hagfræðingur og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. I því starfi og öðrum sem hann hefur gegnt hefur hann notið vinsælda og virðingar þeirra sem til þekkja, fyrir hæfni og dugnað. Geir hefur víðtæka þekkingu á þjóðmálum. Festa hans og lipurð munu koma að gagni á Alþingi. Styðjum Geir H. Haarde í prófkjðrinu Yeljum þingmenn framtíðaiinnar £ m Stuðningsmenn Hygginn lætur sér segjast SPENNUM BELTIN! yUMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.