Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1983, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1983, Qupperneq 5
DV. MÁNUDAGUR 3. JANUAR1983. 5 Nína Björk Arnadóttir hlaut aö þessu sinni styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisút- varpsins. Styrkveitingin fer fram ár- lega og nam upphæðin nú 60 þúsundum króna. Rithöfundasjóðurinn er myndaöur af framlagi Ríkisútvarpsins og rit- höfundalaunum sem Ríkisútvarpinu ber að greiða samkvæmt sanjningi en höfundar finnast ekki að. Alls hafa 57 skáld og rithöfundar hlotiö styrk úr sjóðnum. Fimm fulltrúar eiga sæti í stjórn Rithöfundasjóösins, tveir skipaðir af Ríkisútvarpinu, Andrés Bjömsson útvarpsstjóri og Ingibjörg Þorbergs dagskrárstjóri, tveir til- nefndir af Rithöfundasambandi Is- lands, rithöfundarnir Oiga Guðrún Arnadóttir og Þórir S. Guðbergsson og formaður Jónas Kristjánsson, for- stöðumaður Stofnunar Árna Magnús- sonar, skipaður af menntamálaráö- herra. Viö úthlutun styrksins á gamlársdag sagði Jónas Kristjánsson að á fyrri árum hefði styrknum oft verið skipt milli tveggja eða fleiri rithöfunda. A undanfömum ámm hafi hins vegar komiö fram eindregin tilmæli frá Rit- höfundasambandi Islands um að styrkurinn skuli falla óskiptur í hlut eins rithöfundar. Að baki þeim til- mælum lægi sú hugmynd að þá yrði fjárveitingin veigameiri og um yrði að ræða raunverulegan styrk til nýrra ritstarfa. -ÓEF. Uifetoria Vmttynicijt 12 Forseti íslands, Vigdis Finnbogadóttir, óskar Ninu Björk Árnadóttur tii hamingju meö styrkinn viö úthlutun hans á gamiársdag. DV-mynd GVA. Uthlutun úr Rithöf undasjóði Ríkisútvarpsins: Nína Björk hlaut styrkinn Veskja- þjófnaðir færast nú í vöxt Mikið viröist vera um veskja- þjófnaði í borginni þessa dagana og hefur lögreglunni verið tilkynnt um nokkra slíka þjófnaði. Veski var stolið hjá starfsmanni Vegagerðarinnar. Var veskið í yfir- höfn sem geymd var í fatahengi starfs- fólks. Þá var tilkynnt um veskjaþjófnað frá starfsmanni í aðalbanka Lands- bankans og einnig var sömu söguna að segja í Utvegsbankanum, aðalbanka. DV er ekki kunnugt um hve miklar upphæöir voru í veskjunum en engir munu hafa verið handteknir vegna þessara þjófnaða. Lögreglan minnir fólk á að vera á verði gagnvart f ólki sem kann að koma inn í fyrirtæki og stela veskjum í yfir- höfnum. -JGH. L KANARIEYIAR'TENERIFE EYJA HINS EILÍFA VORS — STÆRST OG FEGURST KANARÍEYJA VIÐ BJÓÐUM KANARÍEYJAFERÐ, SÓLSKINSPARADÍS í SKAMMDEGINU MED NÝJU SNIÐI FJÓRÐA VIKAN ÓKEYPIS - HÆGT AÐ STANSA í LONDON í 21/2 DAG Á HEIMLEIÐ ÁN AUKAKOSTNAÐAR OG HÓTEL MEÐ BAÐI OG SJÓNVARPI INNIFALIÐ. 10 dagar. Tvær lcrðir í einni ferð vika í sólskinsparadís og tveir og hálfur dagur í London. 17 dagar tvær vikur í sólskinsparadís og tveir og hálfur dagur í London. Einnig hægt að fá 24 og 30 daga ferðir. Já nú getið þér fengið tvær ferðir i einni og sömu ferðinni á ótrúlega hagstæðu verði. Fegursta sólskinsparadísin á Kanaríeyjum og viðburðaríkir dagar í heimsborginni London með heimsins mesta leikiistar- og tónlistarlíf og hagstæðar verslanir. Brottfarardagar: 18. jan., 1. febr., 8. febr., 15. febr., 22. febr., 1. mars., 8. mars., 15. mars, 29. mars, 12. apríl og 26. apríl. Hægt að velja um dvöl á glæsilegum f jögurra stjömu hótelum og íbúðum á stærsta og fjölsóttasta ferðamannastaðnum á Kanaríeyjum, Puerto de la Cruz. Þar eru tugir næturklúbba, diskóteka og hundruð frábærra matarstaða. Sjórinn, sólskinið og skemmtanalifið eins og fóik vill hafa það. Pantið snemma því plássið er takmark- að. Uppselt í sumar ferðirnar og lítið af sætum laust í margar hinna. //ÆrXoVX (Flugferðir) Aðalstræti 9, Miöbæjarmarkaðnum 2h. Símar 10661 og 15331.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.