Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1983, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1983, Side 25
DV. MÁNUDAGUR 3. JANUAR1983. 29 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Laufvangur 2, 1. h.t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Ingibjargar Þorkelsdóttur, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. janúar 1983 kl. 13.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Laufvangur 1, 3. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Helga Jóns- sonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. janúar 1983 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Breiðvangur 26,1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Alfreðs Dan Þórarinssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og Veðdeild- ar Landsbanka Isiands á eigninnf sjálfri fimmtudaginn 6. janúar 1983 kl. 16.00. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Breiðvangur 6, 2. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Ragnars Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar, Guðjóns Steingrimssonar hrl., Veðdeildar Landsbanka Islands og Guðjóns Ármanns Jónssonar bdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. janúar 1983 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Miðvangur 151, Hafnarfirði, þingl. eign Guðbjarts Jónsson- ar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar, Innheimtu rikissjóðs og Guðjóns Steingrimssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. janúar 1983 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 78., 82. og 87. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á Mánabraut 17, þingl. eign Borgþórs Björnssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. janúar 1983 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 79., 81. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á Kjarrhólma 22 — hluta —, þingl. eign Sigurðar Þorkelssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. janúar 1983 kl. 14.45. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 95., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á Reynigrund 1, þingl. eign Öðins Geirssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. janúar 1983 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 60., 63. og 64. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á Álfhólsvegi 57 — hluta —, þingl. eign Sturlu Snorrasonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. janúar 1983 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Búðarvegi 12 Fáskrúðsfirði hluta, þinglesin eign Friðmars Péturssonar talin eign Eiriks Stefánssonar, fer fram sam- kvæmt kröfu Innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn 10. jan. 1983 kl. 10 árdegis. Sýslumaðurinn Suður-Múlasýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Strandgötu 9 b Eskifirði þinglesin eign Guðjóns Jóhannssonar, fer fram samkvæmt kröfu Tryggingarstofnunar ríkis- ins, Árna Halldórssonar hrl. og Innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 7. jan. 1983 kl. 14. Bæjarfógetinn á Eskifirði. Um helgina Um helgina Sýnist mér fyrír handan haf... „ Allt mannkyn þráir frið, en sú þrá er blandin beyg,” sagði Gunnar Thoroddsen á gamlárskvöldi og öll var ræða hins reynda öldungs sveip- uð kvíðafullu myrkri aðsteðjandi ógna. Fremst af öllu var það beygur vegna vígbúnaðar og yfirvofandi styrjaldar og sparði sá gamli hvergi voðaþrungin orðasambönd í þeirri veru. Gunnar Thoroddsen er bragur karla, töfrar málsins leika honum á tungu, hann er hinn mikli leikstjóri stjórnmálanna og kann þá íþrótt öðrum leikstjórum betur að draga mál sitt jafnan þeim litblæ sem hæfir hverju hlutverki best. Upp á síðkastið er hann leiðtoginn sem teymir fólk sitt út úr mykri og von- leysi, hinn hærugrái hugsuður sem hlýönast kallinu á örlagastundu. En sá er munur á leikurum stjórn- málamanna og öðrum leikurum, að þeir fyrmefndu semja sína- rullu sjálfir, og stórmannlegt hefði mér þótt ef Gunnar hefði getið þess í textanum, að þær hörmungar sem á oss dynja og það myrkur sem hann er aö bögglast við að stýra oss í gegnum, það hafa vondir þingmenn yfir oss kallað á liðnum árum, og þar er Gunnar ekki allskostar syndlaus sjálfur. Eða gat hann þess að nokkru, þótt ekki blasti alveg við í fyrstu? Gaf hann um það vísbendingu hvemig til hefði tekist og hvernig horfa myndi fyrir þjóðarskútunni á næstu tímum? Vel má það vera. Ræðu sinni lauk hann á visu eftir Bólu-Hjálmar: Sýnist mér fyrir handan haf, o.s.frv. Þessi vísa er lokaerindi úr merkilegu kvæði sem flestir þekkja; Sálarskip- ið heitir það og skal það birt hér í heild, mönnum til glöggvunar og íhugunar, enda munu refirnir til þess skomir. Sálarskip mitt f er hallt á hlið og hrekur til skaðsemdanna, af því það gengur illa við andviðri freistinganna. Sérhverjum undan sjó ég slæ, svo að hann ekki fylli, en á hléborðiö illa ræ, áttina tæpast grilli. Önýtan knörrinn uppá snýst, aldan þá kinnung skellir, örvæntingar því ólgan víst inn sér um miöskip hellir. Bítur mér fyrirnesin naum, í Naustavík hjálpar hvergi, óláns því hrekst í stríðan straum og steyti á Smánarbergi. Sundur þá leysir feigðarflök og festir í j arðar iðri, eitthvað burt flæmist öndin slök, illverka reifuð fiðri. Sýnist mér f yrir handan haf hátignarskær og fagur brotnuðum s orga r öldum a f upp renna vonar dagur. Mikil er sú játning sem þetta kvæði Bólu-Hjálmars flytur og þá er vel ef spásögn lokavísunnar rætist að vori komanda, og marga flónsku er hægt að fyrirláta skáldi er þannig kveður. Þegar dró að mörkum hins gamla árs og þess nýja, hóf útvarpsstjóri sína tölu, fagurskrýdda viturlegum hugrenningum og varð honum margtalað um friðinn í heiminum. Víst er mönnum gott að sitja í friði að búum sínum, en þó er annaö betra til en friður, en það er frelsið, og því er nú verr og miður að þetta tvennt fer ekki alltaf saman. Það er ekki mann- sæmandi friöur þegar saklaust fólk í öðrum löndum lifir sinn ævidag undir byssuhlaupum hlakkandi ill- virkja. Og hvar væri Evrópa stödd ef ekki hefðu skylduræknir piltar skálmað fram undir gunnfánum gegn herjum Hitlers? Já, hvar væri mannkynið allt á vegi statt, ef ekki heföu verið til á öllum tímum hugprúðir menn sem þorðu að út- hella eigin hjartablóöi til þess að viö hinir mættum lifa og vera frjálsir? Ber okkur ekki einnig skylda til að heiöra minningu þeirra og gegna skyldum okkar eins og þeir gerðu? A vorum dögum engjast margar þjóðir undir hamri og sigö kúgaranna og það verður enginn mannsæmandi friður í veröldinni fyrr en við höfum rekið þá burt af löndum og það má mikið vera ef það verður gert með góðueinu. Frú Vigdís hélt sína nýársræðu í svo hörðu veðri að sjálfur Bessa- staöaskógur svignaði að baki hennar. Snotur fannst mér ræðan og hæfilega smágerð í sniðum ef undan er skilin nokkuð stórfelld frásögn af nýrri stöðu landans meðal þjóða eftir hefðarsamsætið mikla í Ameríku. Að kvöldi nýársdags brá fyrir Mar- gréti Thatcher í sjónvarpsfréttum. Hún virðist vera sæmilega á veg komin að stappa stálinu i Englend- inga, og er ekki vanþörf á eftir ára- tuga ódöngun. Margrét-Thatcher er bragur kvenna, sannkölluð leiftur- sóknarkona, hugrökk og sterk og væri betur að ein slík fyrirfyndist á þessulandi. Þegar sýnt þótti að þættimir um félagsheimilið yrðu s jónvarþinu lítill vegsauki, stakk víst einhver æringi upp á því aþ hér eftir yrðu einungis menn gersneyddir kimnigáfu fengnir til þess að setja saman skemmti- þætti. Áramótaskaupiö sannaöi aö ekki gefst sú aðferð betur en hinar og er þá úr vöndu að ráða. Annálamir voru nokkuð sæmilegir að þessu sinni. Sá erlendi var sýnu fremri, tæpt var á ýmsum skemmti- legum bröndurum mannlífsins, greint frá mörgum stærri málum og Afganistans getið í einni setningu, en það er einni setningu betur en stundumáður. Baldur Hermannsson Andlát Anna Magnúsdóttlr lést 27. desember sl. Hún var dóttir Guðrúnar Oddgeirs- dóttur og Magnúsar Jónssonar. Eftir- lifandi eiginmaður önnu er Njáll Guð- mundsson. Þau eignuöust tvö böm. Ot- för önnu verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag mánudag kl. 15. " 1 V Fé/agasam tökí FramletOi og Otvaga alls konar fólagsmarki. Guðlaugur Narfason, Baldursgötu 25 Rvík., verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 4. janúar kl. 15. Jón Eiríksson skipstjóri, Drápuhlíð 13, lést 30. desember 1982. Svanhildur Lilja Kristvinsdóttir hús- freyja, Halakoti, verður jarðsungin frá Selfosskirkju þriöjudaginn 4. janúar kl. 14. Jarösett veröur frá Laugardæl- um. Jón Bjami Sigurðsson, Garðabraut 13 Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 4. janúar kl. 13.30. Sverrir Sigurður Ágústsson flug- umferðastjóri, (Dalalandi 9), Efsta- landi 24 er látinn. Utförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 4. janúar kl. 15. Aðalsteinn Guðjónsson, Eskihliö 14, lést í Borgarspítalanum 29. desember sl. Ottó Pálsson, fyrrverandi kaupmaður á Akureyri, andaöist í Sjúkrahúsinu á Akureyri 27. desember. Utför hans verður gerð frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn4. janúarl983kl. 13.30. Jón Ragnar Finnbogason múrara- meistari, Kirkjuteigi 33, verður jarö- sunginn frá Laugameskirkju þriöju- daginn 4. janúar kl. 13.30. Verðlaunagripir / úrva/i 5 *''» *-*• Verðlaunapeningar m/áletrun. Mjðg kmgstmt vtrA. Leitið upptýsingm. me BALDVIN ba MAGNÚS E. | BALDVINSSON SF,- Laugavegi8 Simi 22804 UR — SKARTGRIPIR — GJAFAVÖRUR Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig á ýmsan hátt í tilefni af 80 ára af- mælt mínu 17. desember s/. Einnig þakka ég jóla- og nýárskveðjur. Gleðilegt nýtt ár. Soffía Sigurðardóttir, Skúlaskeiði 2 Hafnarfirði. Ágúst Sigurjónsson bifreiðarstjóri, Fossahlíð 3 Grundarfiröi, sem lést 24. desember, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju þriðjudaginn 4. janúar kl. 14. Ferð verður frá BSI kl. 7 sama dag. Tilkynningar Vinningar í hausthappdrætti Krabbameinsfélagsins Dregið var á aðfangadag í hausthappdrætti Krabbameinsfélagsins. Vinningamir, sem voru tíu talsins, komu á eftirtalin númer: Opel Rekord Berlina, árg. ’83 : 52734 — Toyota Tercel GL, árg. ’83 : 69036 — Bifreið að eigin vali fyrir 150.000 kr. : 3170. Húsbúnaður að eigin vali fyrir 25.000 krónur (hver vinn- ingur): 3984,72394, 77879,91739, 121124, 131714 Og 137512. Krabbameinsfélagið þakkar þeim fjöldamörgu velunnurum sínum sem tóku þátt í happdrættinu og óskar öllum lands- mönnum árs og friðar. Kvennaathvarf Opið allan sólarhringinn, simi 21205. Húsa- skjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Árnað heilla Níræður er í dag Hösktddur Eyjólfs- son, Hofstöðum í Hálsasveit. Hann dvelst í dag að Seljabraut 28, Reykja- vik.____________________ Höfuðkúpu- brotnaði — í veitingahúsinu Sigtúni 23 ára gamall maður höfuökúpu- brotnaöi í veitingahúsinu Sigtúni ummiðnættið á nýársdagskvöld. Maðurinn var að ganga niður stiga og missti fótanna með þeim afleiðingum að hann datt niður stigann. Hann var fluttur á slysa- deild Borgarspítalans, þar sem hannliggurnú. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.