Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Side 40
40
DV. FIMMTUDAGUR 3. MARS1983.
SÚ BESTA
Ljóshærða snoppufríða leikkonan eigenda í Bandaríkjunum. Þær leik-
Goldie Hawn hefur verið útnefnd leik- konur sem hafa unnið þennan titil áð-
kona ársins 1982 af félagi leikhús- ureruJaneFondaogFayDunaway.
Ursula „Undress”
— mundu mig, ég man þig
„Eg minnist þeirra allra með
viröingu,” sagði Sean Connery með
sönnum heiðursmannatóni nýlega við
blaðamenn.
Og spurningin, sem þeir höfðu lagt
fyrir hann var þessi: „Hver er þín
uppáhalds Bond-stúlka? ”
Sean gat þó ekki stillt sig um að
skera úr um það, hver væri sú sem
hefði skarað framúr. „Ursula Andress
er vafalaust sú sagði hann.”
Menn eru þó á því að Bondstúlkan
Barbara Carrera í nýju Bondmynd-
inni, Never say never again, hljóti að
vekja athygli Connery, og kannski að
hún nái öðru sætinu á lista hans yfir
þærBond-stúlkur.
Já, það er aldrei aö vita nema
Barbara nái að velgja Ursulu undir
uggum. En maður skyldi nú aldrei
segja aldrei í þessum efnum.
Kynntust á óvenjulegan hátt:
Hún þiýsti stórum
hm'fí upp aö honum
— á meðan tengdapabbinn tilvonandi „heilsaði”
honum með haglabyssu
„Konan mín Carol og ég hittumst
við furðulegustu aöstæður sem ég
held að hjón hafa hist við til þessa.
Hún stóð í myrkrinu og hræddi mig
meö stórum og ógeðslegum hnífi,”
sagði I. W. Heathcote við blaðamenn í
Bandaríkjunum nýlega.
Hann sagði ennfremur að tengda-
faðir sinn hefði staöið við hlið sér
meö haglabyssu og þrýst henni
þéttingsfast í síöuna á sér.
Já, þetta leit illa út fyrir
Heathcote, en málið átti eftir að,
skýrast og meira en það, hann og
Carol gengu í hjónaband og hafa ver-
iö giftíátjánár.
Vorum að drekka og
skemmta okkur
Hvernig var þá eiginlega þessi
misskilningur til kominn? „ Jú, ég og
tveir kunningjar mínir höfðum veriö
að drekka og skemmta okkur fram
eftir nóttu, er þeir sögðu skyndilega,
að þeir vissu um stúlku sem upplagt
væri að heimsækja,” sagði
Heathcote og hélt áfram:
„Þegar við komum akandi að
heimili hennar fóru þeir út úr bíin-
um en ég beið á meðan. Þaö var
dimmt í kringum húsiö, en ég sá þó
félaga mína ganga að glugga stúlk-
unnar og það tókst ekki betur til en
svo að þeir brutu rúöuna hjá henni.
m
„ Brostu, gullið mitt.
ár.
' Þau Carol og Heathcote hafa nú verið gift i átján
Hún öskraði eins og
hún gat
Stúlkan öskraði eins og hún gat og
faðir hennar birtist skyndilega með
haglabyssu inni í herbergi hennar.
Eg ákvað aö bíöa eftir kunningjum
minum, en þeir komu ekki að bíln-
um. Eg ákvaö þó að hinkra aðeins
lengur.
Þar sem ég sat í bílnum, spenntur
og óþolinmóöur, vissi ég ekki fyrr en
hurðin var opnuð og haglabyssu
þrýst í síðuna á mér. Og auk þess var
stórum og ógeðslegum hnifi ýtt að
mérafstúlkunni.
Og ekki nóg með það. Lögreglan
mætti á staðinn og handtók mig. Eg
varð síðan að dúsa alla nóttina í
fangageymslu.
En næsta dag þegar allir upp-
götvuöu hvernig í pottinn var búið,
varmérsleppt.
Sástúlkusem ég
kannaðist við
Tveimur vikum síðar var ég í
veislu. Skyndilega sá ég stúlku, sem
ég kannaðist við, sjálfa næturdrottn-
inguna, en í þetta skiptið var hún
ekki með hnífinn.
Við tókum tal saman og ég bauö
henni út næsta kvöld. Það rann fljót-
lega upp fyrir okkur, að við elskuð-
um hvort annaö, og þremur vikum
síðar bað ég hana um að giftast mér
oghúnsagðijá.
Nú erum við tengdapabbi bestu
vinir og við Carol eigum þrjú yndis-
leg börn. Svona eftir á að segja,
viðurkenni ég vissulega að mig
grunaði aldrei um nóttina að nætur-
drottningin ætti eftir að veröa konan
mín,” sagði Heathcote að lokum.
Ursuia Andress og Sean Connery iBondmyndinni Ooktor Nei. Gárungarnir
minnast hennar sem hinnar fákiæddu.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið