Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1983, Qupperneq 32
32
r
DV. FIMMTUDAGUR 28. APRIL1983.
Ágústa Ágústsdóttir, lifir mann sinn
ásamt 4 börnum þeirra. Ástmundur
var jarösunginn frá Dómkirkjunni í
morgun kl. 10.30.
Jónina Guðjónsdóttir, Njaröargötu 37,
veröur jarösungin frá Fossvogskapellu
föstudaginn 29. apríl kl. 10.30.
Hannes Guömundsson, Reykjavíkur-
vegi 7, verður jarðsunginn frá Hafnar-
fjaröarkirkju föstudaginn 29. apríl kl.
13.30.
Ólöf Jónsdóttir frá Katanesi, Vallholti
17 Akranesi, veröur jörðuö frá
Hallgrímskirkju í Saurbæ föstudaginn
29. aprílkl. 14.
Þuríður Magnúsdóttir veröur
jarðsungin frá nýju Fossvogskapell-
unni föstudaginn 29. apríl kl. 13.30.
Kristín Gísladóttir, Búðageröi 5
Reykjavík, veröur jarösungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 29. apríl kl.
15.
Benedikta Jónsdóttir, Hrafnistu
Hafnarfiröi, áöur til heimilis aö Reyni-
mel 49, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 29. apríl kl.
13.30.
Ingvar Magnússon, Skúlagötu 62, lést í
Landakotsspítala aöfaranótt sunnu-
dagsins 21. apríl. Jaröaö veröur frá
Fossvogskirkju föstudaginn 29. apríl
kl.1.30.
Sigrún Júnia Einarsdóttir, Hörgási 4
Egilsstöðum, erlátin.
Nauðungaruppboð
verður á neöangreindum eignum Helluprents hf. fimmtudaginn 5. maí
nk. að kröfu Haf steins Sigurðssonar hrl. og innheimtumanns ríkissjóös
og hefst kl. 14 aö aösetu Helluprents hf. viö Suðurlandsveg, Hellu.
Eignirnar eru 2 prentvélar af geröinni Heidelberg, skurðarhnífur,
tegund Adast, setjaravél, tegund M-.moíype, ljósmyndatæki frá
Optima, tegund Duplomat C9 Compugrapfiic, Compu Editwriter 7700
tölvusetjari, Rectoplan Diplomat plötukassi og Adast Domiuant 714 of-
setprentvél.
Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 55., 57. og 62. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1982 á
fasteigninni Litla-Hvammi Bildudal ásamt tilheyrandi lóðarrétt-
indum, þingl. eign Þórarins Óskarssonar, fer fram eftir kröfu Hákonar
Kristjónssonar hdl. vegna Sambands almennra lífeyrissjóöa á eign-
inni sjálfri föstudaginn 29. april 1983 kl. 17.
Sýslumaðurinn í Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 83., 85. og 87. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Aöalstræti 88 á Patreksfiröi ásamt tilheyrandi lóðarrétt-
indum, þingl. eign Kópaness hf. Patreksfirði, fer fram eftir kröfu
Tryggva Guðmundssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 29. apríl
1983 kl. 15.
Sýslumaðurinn í Barðastrandarsýsiu.
Andlát
Ástmundur Guðmundsson andaðist 19.
aprU sl. Hann fæddist 28. júlí 1910 á
Eyrarbakka. Foreldrar hans voru
GuðmundurGuðmundsson og Snjólaug
J. Sveinsdóttir. Ástmundur nam viö
Verslunarskólann og hóf störf í Héöni
1929. Nokkru síöar varö hann forstjóri
Stálsmiðjunnar og Jámsteypunnar.
Hann var stjómarformaöur SÍBS frá
1958 til 1982. Eiginkona Ástmundar,
/
Vi
GOLF
• GOLFPOKAR
kr. 1560,- og kr. 1860,-
• GOLFPOKA-
statíf
kr. 430,-
• GOLFKERRUR
kr. 1380,-
• PETRON
golfky/fur,
hagstætt verð.
UTILí
Glæsibæ
Sími82922
I gærkvöldi__________________I gærkvöldi
MIG LANGAR í KAPLAVÍN
Fátt var um fína drætti í hljóö-
varpi og sjónvarpi í gærkvöldi aö
mínu mati. Sjálfsagt finnst Dallas-
glápendum þetta óvarlega mælt en
þeir um þaö. Mér finnst þetta menn-
ingarlegt hrat og nærri því mann-
skemmandi. Þaö er sorglegt til þess
aö vita aö svona þáttur fær aö tröll-
ríöa dagskrá mánuö eftir mánuð og
ár eftir ár þegar vitað er um f jöldann
allan af tífalt betri sjónvarpsþáttum
sem eru úti í kuldanum. En samt
kom Ættaróöalið breska, sem betur
fer.
Ég byrjaöi aö sjálfsögöu á fréttun-
um í hljóðvarpinu eins og alltaf.
Þetta magasín er nú löngu búiö að
slíta barnskónum og virðist þroskast
vel. Líklegt veröur aö telja aö þetta
fyrirkomulag kvöldfrétta hafi unniö
sér hefö sem fær aö vera í friöi næstu
árin.
Daglegt mál tengdi fréttatíma
ríkisfjölmiölanna tveggja. Nú var
helsta umræöuefniö notkun fleirtölu
þegar hún á alls ekkert aö vera. Mér
hefur stundum fundist hann Árni
blessaöur full íhaldssamur í um-
vöndun sinni á stundum. Þaö er
nefnileg lögmál íslenskunnar sem
annarra tungumála aö taka ákveön-
um breytingum. Þess vegna er ekki
alltaf ástæða til aö stökkva upp á nef
sér. I fleirtölumálinu er ég Árna þó
hjartanlega sammála. Farið er aö
troöa fleirtölunni inn á ólíklegustu
stööum, eins og hann benti á.
Fréttir í sjónvarpi hafa tekiö
furöulitlum breytingum frá því ég sá
þær fyrst fyrir allnokkrum árum.
Hiö eina er aö fréttamyndir utan úr
heimi eru nú miklu nýrri en þær
voru, þökk sé gervihnettinum
Skyggni. Sjálfsagt er ekki mikiö
hægt aö gera til að hressa upp á
fréttirnar en kannski aðeins, ef menn
legðu höfuöin í bleyti.
Á eftir fréttunum var ágætis
heimildarmynd um Innri-Mongólíu,
gerö af Ástralíumönnum. Hún bjarg-
aöi kvöldinu algjörlega fyrir mér.
Fróðlegt var aö kynnast þeim af-
komendum Djengis Khan og mikið
langar mig til aö smakka á kaplavín-
inu þeirra. Annars vara ég viö aö
taka svona heimildarmyndir of al-
varlega sem lýsingu á stööunni í dag.
Eg kvekktist illilega í fyrra þegar ég
horföi á danska heimildarmynd um
íslenska siöi í landbúnaði. Myndin
var tekin á einhverju koti viö
Heklurætur þar sem tæknin haföi riö-
iö hjá, rétt eins og í Uppsölum Gísla.
Menn gengu um í fínustu lopapeys-
um og stigu glímu úti á túni. Eg sá
þessa mynd úti í Noregi, reyndar var
hún sýnd um svipað leyti í Svíþjóö og
mikiö skammaðist ég mín fyrir aö
vera frá þessu miöaldaskeri.
Dallas kom á eftir Mongólíu. Eg
slökkti á sjónvarpinu. Hljóövarpiö
haföi ekkert upp á aö bjóöa heldur
svo þrautalendingin var plötuspilar-
inn. Þaö er líka ekki á hverjum degi
sem maöur fær í hendurnar kántrí
fráSkagaströnd!
Jón Baldvin Halldórsson
Guðrún Einarsdóttir, Skólavörðustíg
26, andaöist þriöjudaginn 26. apríl.
Guðmundur Bjarnason, Markarflöt 33
Garðabæ, lést aöfaranótt 26. apríl.
Bryndís Björgvinsdóttir, Sviöugörö-
um, lést í Borgarspítalanum þriöju-
daginn 26. apríl.
Þóra Ágústa Ölafsdóttir lést aö Sól-
vangi, Hafnarfiröi, hinn 25. apríl.
Ingvar Jónsson, Hrafnistu, sem
andaðist 19. apríl, verður jarðsunginn
frá Fossvogskapellu mánudaginn 2.
maí kl. 4.
Böövar Pétursson, fyrrverandi
kennari, Hátúni 10B, áður til heimilis
aö Hjaröarhaga 24, lést þann 21. apríl.
Hann verður jarösunginn frá Foss-
vogskirkju þann 3. maí kl. 15.
Guðmundur Sigurösson, vistmaður á
Kópavogshæli, lést á Borgarspítal-
anum hinn 19. apríl. Jaröarförin hefur
fariö fram í kyrrþey.
Ferðalög
Frá Feröafélagi
íslands
Miövikudaginn 27. apríl kl. 20.30 veröur kvöld-
vaka á vegum Feröafélagsins á Hótel Heklu,
Rauöarárstíg 18.
Efni: Jón Jónsson jaröfræöingur: „Litastum
á svæöi Skaftárelda”, í máli og myndum.
Þann 8. júní nk. eru tvö hundruö ár frá því
gosið hófst í Lakagígjum.
Myndagetraun og verölaun veitt fyrir rétt-
arlausnir.
Haukur og Ólafur
raftækjaverslun
AUGLÝSIR
Raflagnir
í úrvali
t.d. ELCO rofar, tenglar, fjöltengi og fatningar
bæði á ioft og veggi, einnig höfum við rofa.
vegg- og loftdós'ir.
SIEMENS rofa, tengla, töflurofa, töflutengla,
varrofa og lekaliða.
TICINO rofar, tenglar og klær.
BJARG rofadósir og veggdósir. Plaströr,
hóikar beygjur, töflustútar, loftplötustútar
o.fl. o.O.
TONGSRAM Ijósaperur, yfir 20D gerðir.
SVLVANIA flúrperur frá 8 til 65 vött. i
FAM ryksugur og fylgihlutir.
HOBART rafsuðuvélar og rafsuðuvir i úrvali.
M0T0R0LA afternatorar í bfla, báta og
vinnuvélar, 6-32 V, 30-120 amper.
PARIS - RHONE startarar í franska bíla.
NOACK rafgeymar i flestar brfreióir.
VACO verkfæri.
STANLEY verkfæri.
METABO rafmagnsverkfæri.
DAV hleðslutæki i ýmsum stærðum.
RULE dráttarspil á bíla og einnig til að draga
með báta á vagna.
ÖNNUMST EINNIG ALLAR ALMENNAR
RAFMAGNSVIÐGERÐIR OG NÝLAGNIR í
HÚS OG VERKSMIÐJUR.
Haukur og Ólafur
raftækjaverslun
Ármúla 32 —Sími 37700 — Reykjavík
Dagsferðir sunnud. 1. maí
1. Kl. 11: Skíöagönguferð frá Bláfjöllum um
Lönguhlíö aö Kleifai vatni. Komiö meö í
ánægjulega skíöagöngu meðan enn er snjór.
Verö kr. 200.
2. Kl. 10: Akrafjall og umhverfis Akrafjall
(ökuferö). Verö kr. 400.
Fariö frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin.
Farmiöar viö bíl. Frítt fyrir böm í fylgd full-
orðinna.
Feröafélag Islands.
Fundir
JC Reykjavík
Lokafundi hjá JC Reykjavik sem halda átti í
kvöld hefur verið frestað til laugardagsins 30.
apríl og verður í Víkingasal Hótel Loftleiða og
hefst kl. 12.30 með borðhaldi. Rökræðueinvígi
verður á milli JC Reykjavík og JC Vest-
mannaeyjum. Stjórnin.
Aðalfundur hf. Skallagríms
veröur haldinn laugardaginn 30. apríl 1983 kl.
14 að Heiðarbraut 40 Akranesi (bókasafn
Akraness). Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundar-
störf, 2. Hlutafjármál (tillaga um innköllun
eldri hlutabréfa og útgáfu nýrra hlutabréfa),
3.önnurmál.
Málarafélag Reykjavíkur
Aöalfundur Málarafélags Reykjavíkur verö-
ur haldinn aö Lágmúla 5, í dag, 28. apríl, kl.
20. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, 2.
Önnurmál.
Stjórnin.
Kvenfélag Lágafellssóknar
heldur aöalfund sinn í Hlégarði mánudags-
kvöldiö 2. maí nk. og hefst hann með borð-
haldi kl. 19.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Kon-
ur eru beðnar að tilkynna þátttöku sína í síma
66486, Margrét, eða 66602, Hjördis.
Kvenfélag
Langholtssóknar
boðar til fundar þriðjudaginn 3. maí kl. 20.30 í
safnaðarheimilinu. Dagskrá: venjuleg
fundarstörf, skemmtiatriöi, myndasýning frá
30 ára afmæli félagsins, kaffiveitingar. Gestir
fundarins veröa konur úr kvenfélagi Breiö-
holts. Stjórnin.
JC Reykjavík
Lokafundur JC Reykjavik veröur á laugar-
daginn 30. apríl í Víkingasal Hótel Loftleiöa.
Hefst fundurinn kl. 12.30 meö borðhaldi. Rök-
ræðueinvígi fer fram milli JC Reykjavikur og
JC Vestmannaeyja.
Stjórnin.
Tilkynningar
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins í Reykjavík
er meö veislukaffi og hlutaveltu í Drangey,
Síöumúla 35, sunnudaginn 1. maí kl. 14. Mun-
um á hlutaveltuna sé skilað í Drangey
miövikudaginn 27. apríl eftir kl. 19.30.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
heldur sína árlegu kaffisölu í félagsheimili
kirkjunnar nk. sunnudag, 1. maí, og hefst hún
ki. 15, aö lokinni guösþjónustu í kirkjunni. Fé-
lagskonur treysta á fólk aö koma við og kaupa
sér kaffisopa og styrkja meö því framgang
kirkjubyggingarinnar. Tekið á móti kökum og
brauði eftir kl. 10 á sunnudag.
Hjálpræðisherinn
Gospelsöngvarinn Björnar Heimstad talar og
syngur á hverju kvöldi fram til 1. maí. Allir
hjartanlega velkomnir.
Hallgrímskirkja
Opið hús verður fyrir aldraöa í dag frá kl.
14.30. Sýnd verður íslensk kvikmynd.
Safnaöarsystir.
Karlakórinn Þrestir
Aörir tónleikar karlakórsins Þrasta í Hafnar-
firöi verða í Bæjarbíói í kvöld. Tvennir
tónleikar eru eftir, á föstudagskvöld kl. 20.30
og laugardag kl. 16. Stjórnandi er Herbert H.
Agústsson, undirleikari Sveinbjörg Vil-
hjálmsdóttir og einsöngvarar Inga María
Eyjólfsdóttir og John Speight.
Flutt veröa bæöi innlend og erlend verk, svo
sem Lát koma vor, Ave Maria, Lát sönginn
hvellan hljóma, Londonderry Air, Nú hnígur
sól, Hermannakór úr óperunni Desem Bristo
og atriöi úr Valdi örlaganna.
Tónleikar kórs
tónlistardeildar
Oslóarháskóla
Kór tónlistardeildar háskólans í Osló er
staddur hérlendis í tónleikaferö. Hann heldur
tónleika i Skálholti i kvöld kl. 21 og Landa-
kirkju næstkomandi laugardag kl. 17. Stjórn-
andi er Knut Nystedt og organisti Vidar Fred-
heim. Kórinn hefur á undanförnum árum
farið margar feröir til annarra landa.
Blómasalur
Hótel Loftleiða
Finnska vísnasöngkonan Barbara Helsingius
heldur síöari tónleika sína hér á landi í kvöld
kl. 21 í Blómasal Hótel Loftleiöa. Barbara er
hér á vegum Vísnavina.
Fjáröflunarkaffi
til eflingar minningarsjóöi Ingibjargar
Þórðardóttur verður sunnudaginn 1. maí kl.
15—17 í safnaðarheimili Langholtskirkju.
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins í Reykjavík
er meö veislukaffi og hlutaveltu í Drangey,
SíÖumúla 35, sunnudaginn 1. maí kl. 14.
Veski týndist
Ljósbrúnt veski meö öllum skilrikjum tapað-
ist aöfaranótt sumardagsins fyrsta, sennileg-
ast fyrir utan veitingahúsiö Klúbbinn. Finn-
andi láti vita í síma 27628.
Frá Skíðaráði
Reykjavíkur
Skíöaráö Reykjavíkur heldur hina árlegu
firmakeppni sína 1. maí nk. í Bláfjöllum.
Keppt verður í göngu og svigi og keppir hvert
fyrirtæki annaðhvort í göngu eða svigi.
Dregiö veröur um þaö í hvorri greininni hvert
fyrirtæki keppir. Keppendur frá félögunum úr
Reykjavik keppa fyrir fyrirtækin og draga
keppendur út fyrirtækin sem þeir keppa fyrir.
I svigi er útsláttarkeppni, þ.e. tveggja brauta
keppni, en slík keppni er mjög skemmtileg á
aö horfa. Vegleg verðlaun eru veitt þeim
fyrirtækjum sem hreppa fyrstu sætin.
Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku i
firmakeppninni og félögin í Reykjavík hafa
ekki þegar haft samband við, geta tilkynnt
þátttöku til Skíöaráðsins (Viggó Benedikts-
son, formaöur, sími 17100, Bergþóra
Sigmundsdóttir, sími 45229).
Þátttökugjalderkr. 1.000,-.
Friðarvika Samhygðar
I gær hófst friðarvika sem hreyfingin Sam-
hygð stendur fyrir. í þessari viku munu tugir
Samhygðarfélaga tala viö fólk úti um allt land
og gefa öllum kost á því aö taka þátt i skrif-
legri áskorun til Islendinga um aö miðviku-
dagurinn 4. maí veröi dagur án ofbeldis.
Þennan dag skorar Samhygö á aila Islendinga
aö sýna hver öðrum umburðarlyndi, gagn-
kvæma virðingu og þeir beiti hvorki sjálfa sig
né aöra þvingunum.
Þessi dagur verður fyrsta skrefið í átt til
raunverulegs friöar á Islandi og þar með
þjóðfélags sem er laust viö hvers kyns of-
beldi.
Samhygð. Hreyfing sem vinnur með lífinu.