Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Page 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNI1983.
31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Hopp og hí
Mikið hopp og hí verður í
Laugardalshöilinni næstkom-
andi föstudagskvöld ef að lík-
um lætur. Þar taka höndum
saman Bandalag íslenskra
listamanna og Lif og land og
efna til Jónsmessugleði. Sú
verður haldin i Laugardals-
höll næstkomandi föstudags-
kvöld og ætti hver aö fá eitt-
hvaðviðsitthæfi.
Heitar pizzur og ljúffeng
vín verða á boðstólum og
geta menn snætt undlr suð-
rænni músik. Leikþættir og
þjóðdansar verða á dagskrá
og dillandi fiðluleikur.
Kjaftakerlingarnar Edda
Björgvins og Helga Thorberg
leika lausum hala um stund
og síðast en ekki sist gefst
fólki kostur á að dansa undan
sér fæturna. Og vel á minnst,
það verður meira að segja
hægt að kaupa blóm handa
ástinni sinni á staðnum þvi
blómavagn mikill verður i
förum um Höllina.
Hver segir svo að landinn
kunnl ekki að gamna sér á
góðri stund?
Vond endalok
í ónefndum þéttbýliskjarna
hefur lögreglan hert mjög
eftirlit með ökumönnum.
Hafa ótrúlega margir staðar-
búar verið teknir fyrir
meinta ölvun við akstur.
Fyrlr nokkru gerðist það
að einn af frammámönnum
bæjarins var að koma úr gleð-
skap, hýr nokkuð en stilltur
vel. Hann steig upp í bifreið
sina og ók sem leið lá heim til
sin. En þegar maðurinn, sem
þyklr ekki með stærri mönn-
um, stöðvaði bifreið sína fyrir
utan hús sitt, þustu að ein-
kennisklæddir lögregluþjón-
ar. Varð manninum svo mik-
ið um þá sjón að hann stökk
inn í garð. Segja skreytnir, að
hann hafi gert gott betur og
þotið uppítré.
En hvað um það, prófið
missti hann og einatt síðan
kalla kvikindin í bænum hann
Liila klifurmús.
Kartöflunefnd
Sem kunnugt er náðist ekki
samkomulag í sex-manna-
Jónas Bjamnson.
nefnd um verð á kartöflum til
framleiðenda, en nýtt verð
hefði átt að taka gUdi 1. júní.
Var málinu vísað tU yfir-
nefndar.
Hin eiginlega kartöflunefnd
hefur nú verið stofnuð. t
henni eiga sætl: Páll Guð-
brandsson Hávarðarkoti,
Þykkvabæ, tilnefndur af fuU-
trúum framleiðenda i sex-
manna-nefnd og Jónas
Bjarnason, tUnefndur af
hálfu ncytenda. Oddamaður
nefndarlnnar er skipaður af
hæstarétti og sá er Guðmund-
ur Magnússon rektor.
Úr felum?
Nýlega kom út tímaritið
„Úr felum”. Þetta merkisrit
er gefið út af Samtökum ’78
sem samanstanda af homm-
umog lesbíum.
Eins og nafn blaösins bend-
ir tU er verið að draga það
fólk sem þessum hópi tilheyr-
ir fram i dagsljósið. En það er
greinUega hægara sagt en
gert því í umræddu hefti
blaðsins kemur fram að gjald
fyrir áskrift er 270 krónur ef
menn fá það sent i glæru
plasti. Fyrir 50 krónum meira
er hins vegar hægt að fá það
sent í ógagnsæju og ómerktu
umslagi.
Eddu-tilboó
Þrótt fyrir þær lífsins
dásemdir sem m.s. Edda hef-
ur upp á að bjóða, eins og
glöggt hefur komið fram í
fjölmiðlum, mun þátttaka í
ferðum vera heldur dræm.
Hefur sá orðrómur siast út tU
stærri fyrirtækja að starfs-
fólk getl fengið vænan afslátt
ef það ferðist í hópum með
Eddunnl.
Eins bafa einstakiingar þá
sögu að segja að þeir hafi
mætt á síðustu stundu niður á
ferðaskrifstofu eða jafnvel á
hafnarbakkanum og látið
„bjóða í sig”. Þannig hafi
fólk ferðast á mjög hagstæð-
- um kjörum, eða fyrir kr. 500 í
stólog 2700 í klefa.
Umsjón:
JóhannaS, Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Bíóhöllin — Óttinn:
Miðlungsmynd án
mikillar spennu
Hoiti: Phobia (Óttinn)
Framleiðendur: Larry Spiegel og Mel
Bergman.
Leikstjóri: John Huston.
Kvikmyndun: Reginald H. Morris.
Tónlist: Andre Gagnon.
Leikarar: Paul Michaol Glaser, Susan Hogan,
John Colicos.
Ottinn er að mínu mati aðeins miðl-
ungsmynd og á langt í land með að
vera hörkuspennandi „þriUer”, eins
og komist er aö orði í auglýsingu um
hana.
Efnið býður í sjálfu sér upp á tals-
verða spennu, en leikstjóranum
kunna, John Huston, tekst einfald-
lega ekki að laða hana fram og úr
verður mynd sem rennur í gegn án
óvæntra og magnþrunginna atriða.
Myndin hefst á því, að læknir að
nafni Peter Ross (Paul Michael
Glaser), tekur að sér að komast að
því hvað valdi ótta fimm dæmdra
morðingja. Reynir hann að sýna
fram á að ótti sé lykUUnn að glæp
þeirra.
Glæpamennirnir fimm þjást af
mismunandi sálrænum ótta eins og
hræðslu í mannþröng, lofthræðslu,
innilokunarkennd, svo eitthvað sé
nefnt.
Ross hefur meðferðina á glæpa-
mönnunum, en þá gerist það að sá
þeirra sem lengst er kominn í með-
ferðinni er myrtur á skelfUegan hátt.
Spurningin er nú: Hver er söku-
dólgurinn? Lögreglan telur að sam-
fangi, og einn í fimm manna hópi
Ross, hafi verið að verki.
Síöan gerist þaö aö fleiri í hópnum
eru myrtir og nær aUa myndina er
það hulin ráögóta hver er morðing-
inn.
Aö taka á efninu með þeim hætti,
að sýna aldrei framan í morðingjann
og láta áhorfandann um aö geta og
taka þátt í leiknum þar meö, hefur
margsinnis verið gert áður. Oft hefur
árangurinn verið miklar spennu-
myndir, en einnig hefur verr tekist
upp og er Ottinn dæmi um siíka
mynd.
Leikstjórinn John Huston, sem nú
er orðinn 74 ára að aldri, er gamall
refur í faginu og þekktur leikstjóri.
Eftir hann Uggja úrvalsmyndir eins
og The Treasure of Sierra Madre,
Escape to Victory að ógleymdri
African Queen.
Leikararnir sýna að mínu mati
engin sérstök tilþrif. Aðalhlutverkið
leikur óþekktur leikari (hér á landi
að minnsta kosti), Paul Michael
Glaser og kemst hann þokkalega frá
sínu hlutverki. Er kannski heldur til-
gerðariegur á köflum.
I sjálfu sér er ekkert frekar um
myndina að segja. Hún er eins og áð-
ur segir miðlungsmynd sem skUur
lítið eftir sig.
Jón G. Hauksson.
Einn úr fimm manna hópi Ross geðlæknis hefur hér sloppið úr fangelsi og meðhöndlun geðlæknisins. Hann er hér á
flótta og skýlir sér með því aö taka konu sem gísl.
Þjóðminjasafni
gefin mynd af
Einari Péturssyni
— manninum, sem handtekinn var með
hvítbláin 1913
Á fögrum vormorgni fyrir sextíu ár-
um, þann 12. júní 1913, reri Einar Pét-
ursson verslunarmaður á Utlum kapp-
róðrarbáti út á Reykjavíkurhöfn með
hvítbláan fána við hún. Menn af
danska eftirUtsskipinu „Islands Falk”
handtóku Einar, því þeir töldu, að Is-
lendingar hefðu ekki rétt tU að flagga
öðru en „Dannebrog”. Handtakan
vakti mikla reiði hjá Reykvíkingum.
Bláhvítir fánar voru dregnir að húni
um aUan bæinn og um kvöldið var
haldinn fjölmennur borgarafundur í
porti Miöbæjarbarnaskólans tU aö
mótmæla því, að dönsku hervaldi
skyldi beitt á íslenskri höfn. Eftir fund-
inn gekk lúðraflokkur um götur bæjar-
ins og lék ættjarðarlög en mannfjöldi
fylgdi syngjandi á eftir.
Einar Pétursson lést árið 1961. Nú
hefur kona hans, Unnur Pétursdóttir
og börn þeirra, Pétur, Guðrún og Unn-
ur gefiö Þjóðminjasafni Islands styttu
af Einari ti[ minningar um þennan dag
sem varð eins konar fánadagur Is-
lands. Styttuna gerði listamaðurinn
Gestur Þorgrímsson.
-IHH.
Unnur Pétursdóttir, Þór Magnússon þjóðmingjavörður og Gestur Þorgrímsson
virða fyrir sér styttu af Einari Péturssyni sem gefin er til minningar um merkan
atburð.
Sviffluga Sigmundar Andréssonar.
íslandsmet f svifflugi
Sigmundur Andrésson sló nýlega Is-
landsmet Þórðar Hafliðasonar í svif-
flugi. Met Þórðar var 172,5 kílómetrar.
Sigmundur bætti það hins vegar um ■
tæplega 12 kilómetra, flaug 184,1 kíló-
metra. Fór hann frá Sandskeiði að stað
rétt fyrir austan bæinn Foss í Hörg-
landshreppi í Vestur-Skaftafellssýslu.
Hæst náði Sigmundur að fljúga í 4
þúsund metra hæð. A lofti var hann í 6
klukkustundir og 23 mínútur. Flugið
austur tók hins vegar aðeins um fjórar
stundir, en um tvær stundir notaði Sig-
mundur til að hringsóla yfir Sandskeiði
ognágrenni.
-DS.