Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1983, Qupperneq 33
DV. FIMMTUDAGUR 21. JULI1983.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Eltthvafl fyndið nýsagt, og auðvitað skellihiegið.
Séð yfir samkomuna i GarðahoM, en alls voru um eitt hundrað manns meattir.
Skandinavískum bömum skemmt
Norrœna félagid í Gardabœ hélt samkomu í Garðaholti sem er sam-
komuhús þeirra Garðbœinga þann 14. síðastliðinn fyrir börn frá Dan-
mörku og Svíþjóð. Börnin voru hingað komin á vegum C.I.S.V. (alþjl.
sumarbúðir barna) og norrœnnar samvinnu. Samkoman var haldin
þegar sœnsku börnin voru að fara aflandi brott en þau dönsku að koma,
en börnin dvelja hér í tvœr vikur. Að móttökunni lokinni, sem var aðeins
fyrir börnin, var kvöldvaka og var á henni mikið sungið og hvert land kom
með stutt atriði og stjórnuðu íslensku fararstjórar barnanna, þeir Björg-
vin Fr. Magnússon, Stefán Guðmundsson og Pálmar Olason sam-
komunni, en alls voru um 100 manns þar samankomnir. Á samkomu
þessari þakkaði Jóna Bjarkan formaður fararstjórum og auk þess
Vilbergi Júlíussyni, forsvarsmanni C.I.S. V., fyrir vel unnin störf.
CURTIS GIFTISIG EKKI!
Sviðsljósið sagði fró því fyrir
skömmu að hann Tony Curtis væri að
þvi kominn að gifta sig, í fjórða skipti,
og það var sko ekkert ábyrgðarlaust
slúður, heldur var þetta komið frá
gamla grallaranum s jálf um. Sagt var í
umræddri grein aö hann og vinkonan
hún Andrea Savio ætluðu aö fara til
Nice og gifta sig þar og eyða brúð-
kaupsdögunum, en títtnefnt og hvim-
leitt babb kom í bátinn, nefnilega það
að þau giftu sig ekki. Sviðsljósiö lagði
sig í líma við aö reyna að afla nánarí
upplýsinga en ekki tókst þaö svo við
neyðumst til að láta þetta hanga í
lausu lofti, í bili, þangað til áreiðan-
legar fréttir berast, því hér er sann-
leikurinn settur ofar öllu.
Tony og Andrea allt annað an sœl é svip.
Feliz i fyrsta og siðasta skipti i hringnum.
Hinn heppni óheppinn
Sumir menn standa ekki undir viðurnefnum sinum, og hann Fern-
ando Feliz var einn af þeim. Fernando var kallaður „hinn heppni" i
heimabæ sínum á Spáni. Stærsti draumur hins unga atvinnuleysingja
var að verða viðurkenndur sem mikill nautabani og stökk hann dag
einn inn í hringinn er nautaat var í fullum gangi, svona rótt til þess að
sýna að hann væri betri en El Cordobes. En raunin varð sú að hann var
ekki betri en El gamli þvi El er ennþá lifandi en hinn heppni er dauður.
Málið var nefnilega það að eftir einungis nokkurra sekúndna sprikl i
hringnum hafði nautið betur og ekki leið á löngu þangað til Fernando
var allur. Afleiðing dauða þess heppna urðu þær að nokkrum ötum var
aflýst, en annars gengur allt sinn vanagang.
SvansBakkablandid í Bjarnarfirði
myndir frá Listavöku í Strandasýslu
Ha/ffrfður SfgurOorOóttír og Magnús Rafnsson íheimasömdum kafía úr
„RagnhHdur fmr að fíjóta meOhún er fátæka unga stú/kan, sem er
nýbúfn e0 tesa eina ástarsögune og dreymir um rfddarann á hvfta hest-
inum. Hann er riki bóndasonurinn aO gera hosur sínar grænar fyrir
henni. ÞaO er ekki auOvelt fyrir hana aO gera upp á millí hans og nýja
hóraOslæknisins. DV-mynd: HörOurÁsgeirsson.
SvansBakkablandiO. Frú vinstri: Ólafur Inglmundarson og Haltfriöur
SigurOardóttír, bændur á Svanshóii, GuOrún Bachmann, Leifur Hauks-
son, Magnús Rafnsson ogArnlín Óledóttir, bændurá Bakka.
DV-mynd: HörðurÁsgeirsson.
Á Listavöku Strandamanna ný-
verið tóku ungir bændur á tveimur
bæjum í Bjamarfirði sig saman og
með skömmum fyrirvara settu þeir
saman tveggja tíma dagskró með
upplestri, söng og leik. Efnið var að
stórum hluta sótt í kveöskap og rit-
verk íslenskra kvenna, en sumt
heimasamið. öll dagskráin var
helguð konum og fléttaö saman
gamni og alvöru.
Bændumir voru frá bæjunum
Svanshóli og Bakka og kölluðu sig
SvansBakkablandið.en dagskrá sína
„Ragnhildur fær aö fljóta með.” Var
hún frumflutt í Arnesi í Trékyllisvík
mónudagskvöldið 27. júní og síðan
endurtekin á Boröeyri, Hólmavík og
, Laugarhóli í Bjarnarfirði, alls staöar
' við stórgóðar undirtektir.
Hópurinn fékk ýmislegt aðstoðar-
fólk til liðs við sig, þar á meðal nokk-
ur böm. EnnfremurKristínuBjarna-
dóttur leikkonu fró Reykjavík, sem
þessar vikumar dvelur á Ströndum
og veitir forstööu sumarhóteli á
Laugarhóli.
Á listavikunni var margt gert fyrir
bömin. Þannig var útileikhúsið
Svart og sykurlaust fengið frá
‘Reykjavík og flakkaði um sýsluna og
skemmti víða. A Jónsmessukvöld
var kynt myndarlegt bál á Hólmavík
og þar lét leikhópurinn sig ekki
vanta. -ihh.