Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1983, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1983, Page 14
ar 14 pooi CTi70*írirvrr,Tf} DV. MÁNUDAGUR19. SEPTEMBER1983. Fyllingarefni Nú höfum við allt fyllingarefni sem ykkur vantar, ásamt möl- uðu undirlagsefni. Amokaö frá kl. 7.30 til 22.00 mánudaga til fimmtudaga. Föstu- daga og laugardaga kl. 7.30 til 18.00. Allar uppl. gefur skrifstofa okkar frá kl. 9—12 alla virka daga. K R A F L A H F. Malarnám við Krísuvíkurveg. Sími 50876. Sendill á ritstjórn DV óskar að ráða sendil til snúninga innanhúss á ritstjórn blaðs- ins í Síðumúla 12—14. Vinnutimi er œskilegur frá 7 til 10 eða styttri timi eftir nánara samkomulagi, Umsóknum só skilað á ritstjórn fyrir 21. sept. merkt. „Sendill". Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð 1983 hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvem byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru oröin 20% en síðan eru viðurlögin 5% til viðbótar fyrir hvern byrjaöan mánuð, talið frá og með 16. október. F JÁRMÁLARÁÐUNE YTIÐ, 16. september 1983. Félagsráðgjafi óskast. Félagasamtök óska eftir að ráða félagsráðgjafa, eða starfs- mann með reynslu í félagsmálum, í hálft starf til reynslu í 6 mán. Verkefni starfsmannsins yrðu m.a. persónuleg fyrir- greiðsla fyrir einstaklinga. Umsóknir skilist til afgreiðslu blaðsins merkt „F-5000” fyrir föstudaginn 23. sept. Aukatekjur Vinnið ykkur inn allt að dkr. 2.000,- á viku með auðveldri heimavinnu. Upplýsingabæklingur með 100 tillögum kostar ísl. kr. 200,- með átta daga skilafresti. Ekkert póstburðargjald ef peningar eru sendir strax, annars sent á eftirkröfu og þá bætist burðargjald við. DAUGAARDTRADING Claus Cortsensgade 1, DK 8700 Horsens. Danmark. Höfum opnað snyrtistofu í Skeifunni 3 C. Þar bjóðum við upp á það nýjasta í snyrtimeðferð frá Frakklandi. Andlitsböð, húðhreinsun, bak- hreinsun ásamt ýmsum meðferðarkúmm, hand- snyrtingu, fótsnyrtingu, andlitssnyrtingu (make up), litanir, plokkun og vaxmeðferð. Einnig fóta- aðgerðir, réttingu á niðurgrónum nöglum með spöng, svæðanudd og alhliða líkamsnudd. Einnig bjóðum við upp á Super Sun sólbekki og gufubað. Við vinnum með hinar þekktu snyrtivömr frá Sothys og Stendhal. Verið velkomin. Steinfríður Gunnandóttir, snyrtifræðingur. Vinsamlegast pantið síma Menning Menning Menning ERLENDAR BÆKUR MárJónsson Barnæska franskrar skáldkonu Tvfjfari En Sarraute leyfir sér ekki að vera ein, það er ekki langt úr minningunni yfir í skáldskapinn; ýkjur og stíl- skraut, því að hún er áttræð sem skrifar. Barnið hugsar ekki í löngu máli, bamið lifir og finnur til, en ger- ir ekki upp í orðum. Sarraute vill endurvekja skynjun sjálfrar sín, bams í tungutaki sjálfrar sín, full- orðinnar, án þess að eyðileggja eða hylja það sem raunverulega var og gerðist. Til þess leggur hún sér til tvífara, aðra rödd sem grípur frammí við og við, gerir athuga- semdir og spyr hvort rétt sé með far- ið, veit sitthvað meira og vill vita nánar, lætur hana ekki komast upp með yfirhylmingar eöa uppgerö. Sumir kaflanna eru samtal þessara tveggja radda Sarraute, hvort- tveggja er hún sjálf, í öðrum köflum eru minningarnar einar. Upphaf og endir I upphafi bókar spyr tvifarinn: „Er það satt, ætlar þú virkilega aö gera það? Ætlar þú að fara að vekja upp minningar frá bamæsku þinni...”, og Sarraute segir í viðtali að áður en hún byrjaði að skrifa hafi hún spurt sig: „Á ég aö vera að þessu?” Hana langaði tU þess og kom sér að verki. I bókarlok spyr tví- farinn af hverju hún hætti þama og hún svarar að hún viti þaö ekki al- veg, hana langi annað og að frá ungl- ingsárunum muni hún alltof mikið. Bókin endar í þrípunkti. Alltaf þegar hún byrjar á nýrri bók, segir Sarraute, er hún viss um að sér takist ekki aö klára. Hún tók sér frí eftir að „Enfance” kom út, en nú er hún aftur tekin til við að skrifa, ó morgnana á hverjum degi, situr Nathalle Sarraute, 81 ára, var ásamt Beckett og fíeirum «4n mf frum- viö ó kaffihúsi, segist ekki geta lifað kvöðlum „nýju skáldsögunnar" i Frakklandl á sjötta áratugnum. Hún án þess að vera að berjast við að þykir koma tHgroina sem Nóbelsverðleunahafi. koma saman bók. Nathalie Sarraute: Enfance. Paris, Gailimard, 1983. 257 s. Seint í vor kom út í Frakklandi bókin „Enfance” eða „Barnæska” eftir Nathalie Sarraute, þekktan rit- höfund um árabil, og var vel tekið. Hún seldist og fékk góöa dóma. Inn- an um þann sæg sem nú er gefinn út af æviminningum og reynslusögum í Frakklandi var þetta eitthvaö öðru- vísi og annað, eins og við var að bú- ast frá Sarraute, segja þeir sem til þekkja: kærkomið. Ekki þetta „Eg fæddist þennan og þennan dag, á þessum og þessum stað, gerði þetta og þetta.. .”. Sarraute reynir að muna, reynir að upplifa þaösem var, það sem var fyrir baminu Natöchu eða Nathalie og hún reynir að segja frá. Hún fæddist árið 1902 vestarlega í Rússlandi og þegar hún var tveggja ára flutti fjölskyldan til Parísar. Foreldrar hennar slitu fljótlega sam- vistum, móðir hennar fór og hún varð eftir hjá föður sínum. Um tíma var hún hjá móður sinni og manni hennar í Pétursborg, en átta ára flutti hún alfarin til föður síns og konu hans í París. Þar lýkur bókinni að hún er tólf ára að byrja í nýjum skólaog líðurvel. Minningar og sálin Á löngum ritferli sinum hefur Sarraute einbeitt sér að því að koma orðum að því sem hún þegar í fyrstu bók sinni árið 1939 nefndi „tropism- es”. Orðið er notað í líffræði um hreyfingar jurta og annarra óæðri lífvera að og frá ljósi, en Sarraute á við vissar ósjálfráðar orölausar tiifinn- ingar, sem koma svo oft upp í hug- ann, bærast þar og blakta, en eru horfnar án ummerkja innan skamms. Birtast kannski aftur seinna. Viljinn á þar engan hlut að máli, tilfinningin kemur og fer í sál- inni og enginn veit hvað gerðist. Þetta hefur hún verið að fást við í um tíu skáldsögum, sex leikritum og nokkrum ritgerðum, og þessu heldur hún áfram í „Enfance”. Þar reynir hún aö búa i orð þaö sem hún man frá fyrstu árum ævi sinnar, skynjanir og kenndir, sem eru þama enn, gera þær skiljanlegar áður en allt hverf- ur: aðorðaminninguna. Fyrsta minningin er þegar barn- fóstran bannar henni tveggja ára að stinga skærum í stól og hún gerir það samt. Hún minnist sultuskeiöar, sem meðali hafði verið laumaö í; lestar- ferða á milli landa; þegar hún átta ára skildi við móður sína og þegar hún ellefu ára hitti hana í nokkra daga; hún minnist tiltekinna bóka, sem hún las, stíla sem hún samdi átta ára en var skömmuð fyrir lélega stafsetningu svo aö hún hætti að hugsa um að skrifa. Hún minnist skólans og kennslustunda, leikja með öðrum bömum, hálfsystur sinn- ar yngri og stjúpmóðurinnar sem oft- ast var afundin og vond en samt stundum góð og skemmtileg; atvik á atvik ofan, perlur á þræði, rimar í grind. Sum atvikanna hafa kannski skipt sköpum, önnur er óvíst af hverju endast. Þetta skrifar hún orð- in gömul, þessi brot, þessar leifar, skrifar í löngum setningum en stutt- um greinum og mörgum köflum. Einföld skrift og þýðar setningar, falleg orð og hljóma saman, tilgerð- ariaust í allri einlægni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.