Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1983, Síða 23
23
DV. MANUDAG UR19. SE PTEMBER1983:' '
íþróttir íþróttir íþróttir
Canon
[p(g=l](g)/g®
Ljósritar á þunnan og þykkan pappír,
40 til 128 gr/m2.
Canon
Canon
(p@=t]@/§®
Canon
IPG-M/i®
Minnsta afrit 49 x 85 mm, t.d. nafnspjöld.
8 Ijósrit á mínútu báðum megin.
Heppileg fyrir minni fyrirtæki, deildir
stærri fyrirtækja, einstaklinga o. fl.
Tæknimaður
frá Canon
á staðnum.
Canon
Shrifvélir hf
Suöurlandsbraut 12.
Sími 85277.
Kári EUmmi - lyfttafanMtariMttorkl M JOmnytL
Þrjú Evrópu-
met — þrjú
íslandsmet
- sett á Norðurlandamótinu í kraftlyftingum
sem háð var hér á landi um helgina
Agætisárangur náðist á Norður-
landamótinu í kraftlyftingum sem
fram fór 1 Laugardalshöll um helgina.
Sett voru þrjú Evrópumet og tvö
Islandsmet.
Það var hinn snaggaralegi Kári Elis-
son frá Akureyrl sem setti íslands-
metin og nægðu þau honum til að hljóta
Norðurlandameistaratitilinn í 67,5 kg
flokknum. Kári lyfti 157 kg í bekk-
pressu, 257,5 kg í réttstöðulyftu og setti
síðan Islandsmet í samanlögðu, lyftl
637,5 kg. Kári átti þessi met sjálfur
fyrir mótið. Tvíbætti hann metin á
bekknum og í réttstöðulyftunni.
Arangur Kára var bestur Islending-
anna á þessu móti. En engu að síður
stóð Hörður Magnússon sig vel í 100 kg
flokknum og náði þar silfurverðlaun-
unum. Lyfti hann 170 kg í bekkpressu,
305 í hnébeygju og 307,5 kg í réttstöðu-
lyftu, samtals 782,5 kg.
Sviar voru mjög sigursælir á þessu
móti og sigruðu í öllum hinum flokk-
unum nema þyngsta flokknum. Þar
sigraði Finni nokkur, risavaxinn, og
hafðihátt.
1125 kg flokknum setti 21 árs gamall
Svíi nýtt Evrópumet í réttstöðulyftu
þegar hann lyfti 367 kg. Einnig var um
Evrópumet að ræða í samanlögðu.
Þriðja Evrópumetið setti Stefan
Nentis Svíþjóð en hann lyfti 305 kg í
hnébeygju. Það mun hafa verið Skúli
Oskarsson sem átti metið fyrir.
Ekki var mikið um áhorfendur á
mótinu en þeir sem létu sig hafa það að
nueta urðu ekkl fyrir vonbrigöum.
Mikil læti voru f keppendum og þá sér-
staklega í þyngri flokkunum og gerðu
menn hinar ýmsu kúnstir til að hleypa
í sig hörku og krafti. Voru þeir viga-
íegir margir og ekki laust við að glott
væri þegar handboltamenn sem keppa
áttu í Reykjavikurmótinu á eftir lyft-
ingamótinu komu hlaupandi hver á
fætur Öðrum og þorðu vart bak viö
sviði fyrr en aö verðlaunaafhending-
unni lokinni.
Framkvæmd keppninnar virtist
vera í góðu lagi og okkar mönnum til
mikilssóma.
- SK.
Sigurður Jónsioo.
„Njósnarar” á
höttum eftir
Sigurði Jóns
Skosk blöð segja hann á leið til Aberdeen
Það hefur mlkið verið skrifað um
hlnn efnilega leikmann Skagamanna,
Sigurð Jónsson, i blöðum í Skotlandi að
undanförnu. Um helgina var sagt frá
þvi i blöðum þar að Sigurður væri á leið
til Áberdeen og hann tækl félagið fram
yffr Celtic, Glasgow Rangers og
Barcelona.
— Þau hafa vakiö athygli okkar, hin
furðulegu skrif i sambandi við Sigurð,
sagöi Sveinn Sveinsson, stjórnarmaö-
ur KSI, einn af fararstjórum unglinga-
landsliðs í knattspyrnu, sem er nú í
Englandi.
Sveinn sagði aö fararstjórar islenska
liösins hefðu átt fullt i fangi með að
halda ýmsum mönnurrf frá Siguröi i
RAGNAR MARGEIRS-
SON í SVÍÞJÓÐ
Ragnar Margeirsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, frá Kefla-
vík, er nú staddur í Svíþjóð til að
kanna aðstæður og ræða við for-
ráðamenn félaga þar. Eftir lands-
leik íslands og Svíþjóðar, þar sem
Ragnar átti mjög góðan leik,
höfðu nokkur félög í Svíþjóð áhuga
á að fá hann til sin. Eitt af félög-
uinum er öster, þar sem Teitur
Þórðarson gerði garðinn frægan
— var markhæsti leikmaður liðe-
insímörgár.
-S08
Skotlandi og allt bendir til að sami
átroðningurinn verði hér í Englandi. —
Það er nú þegar byrjað að hringja
hingað á hótelið sem við búum á til að
spyrja um Sigurö og hvort hann leiki
með gegn Englandi, sagði Sveinn.
Þess má geta, eins og komið hefur
fram í DV, að Sigurður hefur hug á að
kanna aðstæður hjá nokkrum félögum
eftir Evrópuleik Skagamanna i Aber-
deen og mun byrja á að fara til
Lokeren.
NEW ■ NEW
Canoti Catiott
»I](B/g@ (B@-D@/S@
Ljósritar
í þremur
litum,
engar
hreinsanir
NEW I NEW
Canoti Canon
(?>(B-Ð@/g@ @@-D@/§@
stillingar.
Canon tP(g=l(g]
Personal Copier
á markaðnum.
Verð
38.600.
íþróttir