Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1983, Síða 42
DV. MANUDAGUR19. SEPTEMBER1983.
42
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23
Kvikmyndamarkaðurinn &
Skólavörðustig 19. Videoklúbburinn
Stórholtí 1. Simi 35450.
SAUTJÁN
17 fataverslanir
á höfuðborgarsvæðinu.
EUROCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
Til húseigenda
og garóeigenda
Steinar fyrir
bilastæði og
innkeyrslubrautir
Gangstéttarhellur 10 gerðir, kantsteinar, steinar í
bílastæði, vegghleðslusteinar, margar gerðir, til
notkunar utanhúss og innan. Komið, skoðið og
gerið góð kaup. Greiðsluskilmálar.
Opjð til kl. 16 laugardaga
HELLU 0G STEINSTEYPAN
VAGNHÖFÐ117. SiMI 30322.
REYKJAVlK
AÐEINS G R V ALS
F RAMLEIÐSLGMERKI
i VERSLUN OKKAR
Gólfteppin silkimjúku
frá World CARPETS.
BERBER ullar og ullar-
blönduteppi í úrvali,
stigagangateppi í
mörgum litum.
Opið laugardaga kl. 9 — 12.
^ Byggingavórur lif
V Reykjavikurv.g 64,
\mm m m m\Æ sunmuo
G61f og baöflísar +
hreinlætistæki frá
Wlllerby og Bock.
: \ /. ; V ' ,:<V : ‘ :
Hreinlætistæki frá
IFÖ.
Blöndunartækl frá
GROEjE
Stofnaöir verði
iðnþróunarsjóðir
á Norðurlandi
tilgangurinn meðal annars að kosta iðnaðarkannanir
og rannsóknir til uppbyggingar iðnaðar
Ætlunín er aö kanna möguleika á aö
setja á stofn á Norðurlandi sérstaka
iönþróunarsjóði með föstum tekju-
stofni. Var þetta mál til umræðu á
þingi Fjórðungssambands Norðlend-
inga á Raufarhöfn. Hugmyndin er aö
sjóöimir verði annaö hvort fyrir ein-
stök svæöi Norðurlands eða fyrir
f jórðunginn í heild. Fjármagni iðnþró-
unarsjóða verði fyrst og fremst beint
til að kosta undirbúningsathuganir á
iðnþróunarmöguleikum, leggja fram
fé til að kosta undirbúning stofnunar
fyrirtækja og kosta iðnaðarkannanir.
Lagði fjórðungsþingið áherslu á að
starfsemi iðnþróunarsjóða verði sam-
ræmd innan Norðurlands.
Um virkjanaröð og uppbyggingu
iðnaðar var einnig ályktað og lögð
áhersla á að haldið verði áfram með
virkjun Blöndu með eðlilegum hraða
og ekki vikið frá áformaðri virkjana-
röð þannig að Fljótsdalsvirkjun komi í
framhaldi af Blönduvirkjun. Sérstak-
lega var áréttað að virkjunin Búrfell II
og stækkun álverksmiðjunnar í
Straumsvík verði ekki til þess að
seinka byggingu virkjana á Norður- og
Austurlandi sem sé forsenda meiri-
háttar iðnaðar i þeim landshlutum.
Fagnað var stofnun hvers konar
héraðssamtaka um iðnþróun og taldi
þingiö aö slík samtök gætu í samvinnu
við iðnráðgjafa stuðlað að fjölbreytt-
ara atvinnulífi sem víðast á Norður-
landi.
Fjórðungsþingið á Raufarhöfn ítrek-
aði fyrri samþykktir um orkuiðnað
norðanlands, svo sem við Eyjafjörð,
steinullarvinnslu á Sauöárkróki, trjá-
kvoðuverksmiðju á Húsavík og aðra
stærri iðnaðarkosti. Mikilvægt væri við
meiriháttar atvinnuuppbyggingu að
taka fullt tillit til náttúruvemdar- og
umhverfissjónarmiða. Mikilvægt væri
þvi að fé yrði veitt til rannsókna á
þessu sviði.
J BH/Akureyri
Að ktknu tvmðUmóti. TaUð frá vinstri: Ingveldur Björgvinsdóttír, forsatí JC Úiafsvik, Bjöm Gislason,
varalandsforsetí JC ísland, Stefán Ólafsson, svæöisstjóri Vesturlands, Kolbrún Jónsdóttír, ritari svœðis-
stjómar, Marta Sigurðardóttír, landsritari JC ísland, Guðmundur Andrósson, forsetí JC Stykkishólmur
og Grótar D. Pólsson, lögsögumaður JC Ísland.
DV-mynd: Róbert.
Stykkishólmur:
JC-félög á Vestur-
landi með svæðismót
Frá Róberti Jörgensen, fréttaritara
DV i Stykkishólmi:
Svæöismót JC-félaganna á Vestur-
landi var haldið nýlega í Félagsheimil-
inu í Stýkkishólmi. Nýkjömar stjómir
félaganna tóku þátt í mótinu og voru
leiðbeinendur frá landsstjóm JC-
hreyfingarinnar.
Farið var yfir helstu þætti starfsins á
komandi vetri eins og til dæmis skipu-
lag og undirbúning starfsárs, félags-
fundi, útgáfumál, fjáröflun, landsverk-
efni, vinnubækur og fleira.
Að sögn Stefáns Olafssonar, svæðis-
stjóra JC á Vesturlandi tókst svæðis-
mótið með ágætum. ÞrjúJC-félög
em á Vesturlandi, JC Akranes, ,JC
StykkishólmurogJCÖlafsvík, -JGH
NYR SKOLASTJORI
Á FINNBOGASTÖÐUM
Nýlega var Gunnar Finnsson ráöinn
skólastjóri við barnaskólann að Finn-
bogastööum í Strandasýslu. Tveir
sóttuumstarfið.
Gunnar er búinn að vera kennari á
Eskifirði sl. níu ár við góðan orðstír, og
ef hann kennir bömunum á Ströndum
að lesa eins vel upp sögur og hann ger-
ir sjálfur og koma vel fram á manna-
mótum, tel ég þaö mikils virði fyrir
börnin aðFinnbogastöðum.
Gunnar Finnsson er giftur Maríu
Olöfu Eiríksdóttur frá Eskifirði og
eiga þau fjögur ung börn. Eg óska
ungu skólastjórahjónunum allra heilla
á Ströndum og það er mín ósk, að þau
kunni eins vel við sig þar og ég gerði
þau20ár semégbjóþar. Regína