Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Síða 1
Opinber rannsókn á meintu broti löggæslumanna á ísafirði:
Þrem lögreglumönnum
vikié frá störfum
—rufu innsigli og tóku með sér ótollafgreitt vfn úr fíutningaskipi
Þrem lögregluþjónum á Isafirði
hefur verið vikið frá um stundarsak-
ir á meðan verið er að ljúka rann-
sókn á meintu broti þeirra í opinberu
starfi og á meðan beðið er niðurstöðu
Saksóknara ríkisins í málinu. Hann
mun væntanlega fá þaö til meðferöar
síðar í vikunni.
Tildrög eru þau að þann 1. septem-
ber voru mennirnir þrír í gleöskap
um borð í flutningaskipi sem lá í
höfninni. Einn lögreglumannanna er
jafnframt tollvörður.
Hann rauf innsigli á geymslu, sem.
m.a. hafði að geyma ótollafgreitt
áfengi, og hafði á brott með sér tvo
bjórkassa og tvær flöskur af sterku
víni. Að því búnu innsiglaði hann
geymsluna aftur með innsigli hins
opinbera, sem hann sótti i land til
þess.
Oljóst er hvenær hinir tveir vissu
um þetta en þó er ljóst að þeir fóru
með tollverðinum frá borði og neyttu
vamingsins í áframhaldandi gleð-
skap heima hjá einum þeirra.
Að sögn Péturs Hafstein sýslu-
manns hefur rannsókn einnig leitt í
ljós að skipstjórinn vissi af þessu án
þess að reyna aö koma í veg fyrir það
eða láta vita af því. Alls eru 11
lögregluþjónar á Isafirði og því þarf
ekki liðsauka annars staðar frá þar
sem hinir átta taka á sig störf
þremenninganna í aukavinnu. ,-GS
„Svartur sjór
afsíld”
MOK-
VEIÐI
VIÐ
EYJAR
Mesti síldveiðidagur vertíðar-
innarvarígær.
„Hér er svartur sjór af síld,”
var sagt í Vestmannaeyjum í
morgun.
Um fimmtán hringnótabátar
hafa verið í mokfiskiríi í kringum
Eyjarnar um helgina, aðallega út
af Elliðaey. Einn báturinn,
Sighvatur Bjarnason, reif nótina.
Aflanum er landað í Vest-
mannaeyjum, Grindavík og Þor-
lákshöfn. Frá því í gærkvöldi og
þar til í morgun hafði um níu
þúsund tunnum af síld verið land-
að í Grindavík. I Eyjum var land-
að milli fimm og sex þúsund
tunnum um helgina. I Þorláks-
höfn voru tæpar tvö þúsund
tunnur komnar á land.
Frá Austfjörðum bárust einnig
síldarfréttir í morgun. Á Reyðar-
firði fékk Faxi um 1500 tunnur í
nótt. Þá fengu nokkrir rekneta-
bátar góðan afla í Húsavík eystri,
fyrir noröan Loömundarf jörð.
-KMU.
Atliskoraði
tvömörk
— allt um íþróttir
helgarinnar
^ í 8 síðna hlaðauka
— — —
Við slysstaðinn a Reykjavik-
urflugvelli, klukkan að
ganga sjö á laugardagskvöld.
DV-mynd S.
Hörmulegt banaslys á Reykjavíkurftogvelli á laugardag
FARÞEGIGEKK í SKRUFU
NÝLENTRAR FLUGVÉLAR
Hörmulegt banaslys varð á
Reykjavíkurflugvelli um klukkan
tæplega átján á laugardag. Farþegi
lítillar tveggja hreyfla flugvélar frá
Flugskóla Helga Jónssonar opnaði
dyr hennar skömmu eftir að hún
hafði numið staðar á vellinum eftir
lendingu, og steig hann út í aðra
skúfuna sem enn var í gangi. Maður-
inn lést samstundis.
Tildrög þessa sviplega atburðar
voru með eftirfarandi hætti, sam-
kvæmt upplýsingum Flugmála-
stjórnar ríkisins.
Um klukkan 14.30, hálfþrjú á
laugardag, var hringt frá Reyðar-
firði til Reykjavíkur og flugmaður
frá Flugskóla Helga Jónssonar beð-
inn að fljúga til Egilsstaða til aö
sækja tíu áhafnarmeðlimi af báti
sem lá inni á Réyðarfirði og fljúga
með þá til Reykjavíkur.
Flugvélin TF-FHL, sem er af gerð-
inni Mitsubishi MU 2, fór frá Egils-
stöðum klukkan 16.38 og lenti á
Reykjavíkurflugvelli rúmum
klukkutíma síðar, eða 17.45.
Flugvélin nam staðar fyrir utan af-
greiðsluhús Helga Jónssonar og áður
en hreyflar hennar höfðu stöðvast
opnaði einn farþegi vélarinnar dyr
hennar og gekk í vinstri skrúfuna, án
þess að flugmaðurinn gæti nokkuð að|
gert. Sem fyrr segir lést maðurinn
samstundis.
Málið er í höndum Flugmála-
stjórnar ríkisins og Rannsóknarlög-
reglu ríkisins sem vinna nú að gaum-
gæfilegri athugun á því hvernig og
hvers vegna svona hörmulegir at-
burðir geta gerst. Þessir aðilar
vörðust allra nánari frétta af málinu.
-SER.
158 FRIÐARGÆSUILIÐAR
DREPNIRISPRENGINGUM
Björgunarflokkar leituðu í nótt í
rústum tveggja bygginga, bæki-
stöðva bandarísku og frönsku friðar-
gæslusveitanna í Beirút, en þær voru
eyðilagðar í sprengingum í gær.
Vitað er um 158 sem liggja í valnum
en fleiri kunna aö leynast enn í
brakinu.
— sjá erl. fréttir bls. 8 og 9.
m