Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1983, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR 27. OKTOBER1983. 11 Ég er að vinna fyrir framtíðina’ — segir Sigrún Þorsteins- dóttir sem býður sig fram til varaformanns í S jálfstæðisf lokknum Sigrún Þorsteinsdóttir, húsmóðir og varabæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, er hvergi bangin við að hella sér út í kosningabaráttuna um varaformannsembætti flokksins á landsfundinum í næstamánuði. „Eg held aö mér sé engin hætta búin,” sagöi Sigrún í samtali við DV. Hún sagöist ekki geta neitaö því aö ýmsir teldu hana vera aö fóma fjöl- skyldunni á altari stjómmálanna meö framboöi sínu. ,,En ég er ekki sammála því,” hélt Sigrún áfram., ,Eg vil meina aö ég sé að vinna fyrir framtíöina. Fjölskyld- an stendur líka meö mér, annars kæmi þetta ekki til greina.” — Og hvers vegna ferðu í fram- boö? „Til þess aö freista þess aö rödd hins almenna kjósanda nái betur inn í raöir forystunnar í stærsta stjóm- málaflokki landsins og til aö virkja fólk til meiri þátttöku.” En þetta eru ekki einu ástæöurnar. „Eg er líka í þessu vegna þess aö stjórnmálamenn þurfa aö vera góöar fyrirmyndir fyrir fólkiö og mér finnst vanta á þaö. Þaö þýðir ekki aö ætlast til aö fólkið geri þaö sem þeir vilja ekkigera.” — Verður þú betri fyrirmynd? „Eg held að ég veröi ööruvísi. Það vantar meiri samskipti milli fólks og þar hef ég reynslu. En ég er ekki full- komin.” Sigrún er ekki viö eina fjölina felld. Hún er félagi í Samhygð, hún er í stjórn Garðyrkjufélagsins, sem nú er aö byggja garöyrkjuskála viö elli- heúniliö, hún hefur sungið í kórum og leikiðmeöleikfélaginu ogsvoerhún formaöur félags sem kallast Sjávar- afurðarannsóknir. Félagiö þaö hefur aö markmiöi aö nýta betur sjávar- aflann sem berst á land. Þar má nefna gerð fóöurefnis úr slógi sem blandað er við grasköggla. Þá hefur félagiö líka safnaö humarúrgangi og ætlunin er aö gera úr honum kraft til súpugeröar. — Hvernig hefuröu tíma til að sinna þessu öllu? ,,Eg geri þetta ekki allt í einu.” Sigrún Þorsteinsdóttir er gift Sig- uröi Elíassyni vélstjóra og þau eiga þrjúbörn. -GB. „Stjórnmálamenn þurfa að vera góðar fyrirmyndir, en mór finnst vanta á það," segir Sigrún Þor- steinsdóttir. DV-mynd Guðmundur Sigfússon. Landsfundur Kvennalistans: Á Hótel Loftleiðum um næstuhelgi Landsfundur Kvennalistans veröur haldinn aö Hótel Loftleiöum um næstu helgi og hefst kl. 9.00 laugardagsmorg- un. Lög um Kvennalistann veröa endurskoöuð, stjórnmálaástandiö rætt svo og leiðir í útgáfumálum. Á sunnu- deginum veröa hópumræöur um starfiö framundan. Þeir sem ætla að sitja landsfundinn skrái sig á skrifstofu Kvennalistans, Hótel Vík, í síma 13725. -EIR. Erhjartað íólagi? Á vegum Landssamtaka hjartasjúkl- inga og Hjarta- og æöavemdarfélags Reykjavíkur er nú aö hefjast samstarf um fræðslu- og upplýsingastarfsemi fyrir hjartasjúklinga og aðstandendur þeirra vegna hjartaaögeröa. Til viðtals veröa menn sem fariö hafa í að- geröir og munu þeir veita ýmsar al- mennar upplýsingar sem byggjast á persónulegri reynslu þeirra. Fengist hefur aðstaöa í skrifstofu Hjartavemdar, Lágmúla 9, og verða upplýsingar veittar í síma 83755 á mið- vikudögumkl. 16.00—18.00. -EIR. ^iGAPOftf REKKJAN I FJORUM LITUM Opið í öllum deildum: mánud.-miðvikud. 9—18, fimmtud. 9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12. Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 Húsgagnadeild ^ Sími 28601 SÆNSK GÆÐAVARA SÆNSK GÆÐAVARA SÆNSK GÆÐAVARA SÆNSK GÆÐAVARA DELMA QUARTZ - ÚR FRAMTÍÐARINNAR. Fæst aðeins í apótekum r s WM w V6 inniheldur brintoveVilte sem er sótthreinsandi V6 er án sykurs og litarefna V6 hefur friskandi bragð sem endist HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA t RADIAL stimpildælur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.