Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1983, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1983, Blaðsíða 31
DV. FIMMTUDAGUR 27. OKTOBER1983. Sandkorn Sandkórn Sandkorn ii iWWflnllnl1 M MMfc <rlWhwi i - ^ Þeir efga bágt i björgunarsvertunum. Eysteinn Heigason. Maður í manns stað Mannabreytingar í toppn- um hjá Samvinnuferftum- Landsýn hafa vakið nokkrar vangaveltur meðal fólks. Ey- steinn Helgason hefur sem kunnugt er iátið af starfi framkvjemdastjóra þar og hyggst halda til Bandaríkj- anna þar sem hans bíður óskilgreint starf. Er það mál manna að Eysteinn muní verða skólaður upp i starf Guöjóns Ölafssonar, fram- kvæmdastjóra Iceland Sca- food Corporation. Guðjón muni hins vegar koma heim og taka við af Erlendí Einarssyni, forstjóra SIS. Enginn í vetur Enginn fangi frá Litla- Hrauni verður við nám í Fjölbrautaskólanum á Sel- fossi í vetur. Sem menn muna var gerð slik tilraun i fyrra við misjafnar undir- tektir þeirra er málið varð- aði. Dómsmálaráöuneytið hafði sent skólayfirvöldum á Sel- fossi tilmæli þess efnis að einum fanga yrði leyft að stunda nám i dagskóla í vetur. Kennarar við skólann samþykktu það, svo og al- mcnnur fundur nemenda. Nemendaráð skólans var því hins vegar andvigt. Þær niðurstöður voru síðan send- ar til menntamálaráðu- neytisins. Þaðan barst það svar að meðan ekki væru í gildi neinar reglugerðir sem heimiluðu slikt nám fanga þá ætti það ekki aö eiga sér stað. Og þar við situr. Af sem áður var Leiðari Morgunblaðsins í gær fjallaði mcð öðru um stjórnarandstöðuna. Þar sagði: „Átök magnast dag frá degi í Alþýðubandalag- inu. Við blasir að í upphafi þings er stærsti stjórnarand- stöðuflokkurinn ófær um að veita rikisstjórninni það að- hald sem eðlilegt er á al- þingi.. Öneítanlega leiðir þessi klausa hugann að þeim tima sem Sjálfstæðisflokkurinn var í stjórnarandstöðu. Þá lét ágætur framsóknarmað- ur, raunar núverandi sam- ráðhcrra sjálfstæðlsmanna, þau orð falla i blöðum að innanflokksátök í Sjálf- stæðisflokknum væru mesta vandamál islenskra stjórn- mála. Svona geta nú veður skip- ast í iofti. Ekki allt sem sýnist Flesta mun reka minni til þess er r júpnaskyttan týndist við Hvalvatn á dögunum. Sá atburður átti eftir að draga töluverðan dilk á eftir sér, bak við tjöldin. Málið var uefnilcga það aö eitt blaðanna haföi komist svo að orði að allt lið björg- unarsveitar Slysavarna- félagsins hefði verið kallað út. Og þaö var eins og við mannlnn mælt að allar hinar björgunarsveitimar ruku upp til handa og fóta og hund- skömmuðust yfir því að þeirra hefði ekki verið getiö i fréttinni. Þá varð sjónvarpið fyrir þvi óláni að birta mynd af björgunarsvcit Ingólfs þar sem hún var að búa sig til að leita að rjúpnaskyttunni. Sú myndbirtíng orsakaði það að linurnar niður í sjónvarp voru rauðgióandf. Voru þar komnar hinar björgunar- sveitirnar sem fannst heldur en ekki hallað á sig. Finnst mörgum þessi sand- kassaleikur heldur spaugi- legur í ljósi þess markmiðs sem björgunarsveitinrar tclja sig hafa að þjóna fyrst og fremst. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Nýjar bækur Nýjar bækur Ferðabók Sveins Pálssonar — dagbækur og ritgerðir 1791-1797 Feröabók Sveins Pálssonar kom fyrst út áriö 1945 í þýöingu þeirra Jóns Eyþórssonar, Pálma Hannessonar og Steindórs Steindórssonar. Það var Jón Eyþórsson sem bjó bókina þá til prent- unar og fylgdi henni úr hlaði með ítar- legum formála og eftirmála þar sem hann gerði grein fyrir ævi og störfum Sveins Pálssonar. Ferðabókin var þá þegar mjög fagurlega útgefin og m.a. var Tryggvi Magnússon listmálari fenginn til þess að myndskreyta bók- ina og teikna upphafsstafi viö hverp kafla. Segja má að það sé vel viö hæfi aö Ferðabók Sveins Pálssonar komi út aftur á því ári þegar liðin eru 200 ár frá Skaftáreldum því Sveinn skoöaði upptök eldanna árið 1794 og skráöi þá hiö svokallaða Eldrit sitt sem er einmitt hluti Ferðabókarinnar sem nú kemur út. Hann gerði einnig uppdrátt af Skaftáreldahrauninu og „Eldsveit- unum” sem nú er prentaður í fyrsta sinni eins og Sveinn teiknaði hann og fylgir uppdrátturinn með Ferða- bókinni sérprentaður í sérhönnuðu umslagi. Rétt er aö geta þess aö Haraldur Jónsson, kennari og hreppstjóri í Gröf á Snæfellsnesi, vann þaö þrekvirki á sínum tíma að skrifa upp allt handrit Sveins, sem hann skrifaði á dönsku, orð- og stafrétt. Haraldur hóf þetta verk algerlega ótilkvaddur meðan hann var nemandi í Kennaraskólanum en lauk því síöan í ígripum um 1930. Afrit Haralds notuöu þeir Jón, Pálmi og Steindór er þeir þýddu bókina. Ferðabók Sveins Pálssonar er aö öllu leyti unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Sigurþór Jakobsson hannaði titilsíður, bókarspjöid og öskju. Samhliða hinni almennu útgáfu Feröabókar Sveins Pálssonar, sem nú kemur út, voru gefin út 97 eintök af bókinni tölusett og árituð. Leiðbeiningar fyrir foreldra sem eiga börn á sjúkra- húsum Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefiö út bókina Leiðbeiningar fyrir for- eldra sem eiga börn á sjúkrahúsum að frumkvæði Norræna félagsins um þarfir sjúkra barna. Höfundur bókar- innar er Lise Giodesen en þýöingu ann- aðist Valgerður Hannesdóttir. Bókin kom út á fyrsta degi þinghalds Norræna félagsins um þarfir sjúkra barna, sem haldið var hér á landi í síðustu viku, en þingiö sóttu fulltrúar af öllum Norðurlöndunum. Höfundur bókarinnar, Lise Giodesen, er sjúkra- iðjuþjálfari sem hefur í starfi sínu á dönskum og amerískum sjúkrahúsum öðlast mikinn skilning á því, hvaða áhrif sjúkdómar og innlögn á sjúkra- húshefuráböm. Helga Hannesdóttir, læknir á barna- geðdeild Landspítalans, og Halldór Hansen, yfirlæknir bamadeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, rita inngang bókarinnar og komast m.a. svo aö orði: „Það getur verið óhjákvæmilegt að leggja bam inn á sjúkrahús, ef ekki er hægt að veita því nauðsynlega læknisþjónustu á annan hátt. Og víst er það, að mörg böm fá bót meina sinna á sjúkrahúsum. Engu að síður er talið, að nær helmingur þeirra barna, sem dvelja á sjúkrahús- um fái meiri eða minni eftirköst, sem haft geta miöur heppileg áhrif á þroska bamanna í framtíðinni og þá jafnvel langvarandi. Þýðing þessarar bókar á íslensku er því bæði for- eldrum, bömum og starfsfólki sjúkra- húsa kærkomin vegna þess, að hún veitir þeim upplýsingar, fræðslu og leiðbeiningar um þau skaðlegu áhrif, sem veikindi og sjúkrahúsdvöl geta haftíförmeðsér.” Bókin Böm á sjúkrahúsum er sett og prentuð í prentstofu G. Benediktssonar en bundin h já Amarfelli hf. Þórarinn Eldjám lðunn Kyrr kjör eftir Þórarin Eldjárn. Ut er komin hjá Iðunni bókin Kyrr kjör, saga eftir Þórarin Eldjárn. Þetta er fyrsta langa saga Þórarins, en áður eru komnar frá hans hendi þrjár bækur meö kveðskap, Kvæði, Disney- rímur og Erindi, svo og smásagna- safnið Ofsögum sagt. Af bókum Þórarins hafa þrjár komiö ú oftar en einu sinni, Kvæði fjórum sinnum, Disneyrímur og Ofsögum sagt tvisvar. Kveikja sögunnar er ævi skáldsins Guðmundar Bergþórssonar, sem uppi var á ofanverðri 17. öld og er eitt stór- virkasta rímnaskáld Islendinga. Einn- ig kemur hann nokkuð við þjóösagnir. Sá Guðmundur, sem Þórarinn Eldjám hefur vakið til lífs í sögu sinni, er hvergi frjáls maður nema í draumum sínum og skáldskap. I veruleikanum liggur hann máttvana og bjargarlaus. En hann eignast vin — brennimerktan þjóf — er verður honum sem fætur hans nýir. Báða dreymir skáldið og þjófinn um að finna frelsið með hjálp þeirra vina sem í steinum búa og forn fræði vísa þeim loks veginn til Sjálfs Pálma Purkólíns. Eða er það ekki vegurinn? Það er ein þeirra áleitnu spuminga sem saga þessi vekur. I kynningu forlagsins segir m.a.: „Frásögnin leiftrar af fjöri og gáska sem lesendur Þórarins þekkja af fyrri verkum hans. En undir býr djúp alvara og birtist skýrast í myndum niðurlægingarinnar sem höfundur bregður upp frá horfinni tíö. I eymd- inni lifir draumurinn um frelsið og tekur á sig margvíslegar myndir í hugum þeirra sem ekki una kyrrum kjörum.” Kyrr kjör er 153 bls. Oddi prentaði. Auglýsingastofa Kristínar/Erlingur Ingvarsson hannaöi kápu. ALDRAÐIR þurfa að ferðast eins og aðrir. Sýnum þeim tillitssemi. iJU^JFERÐAR -—VIDEO"—................... OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23 Kvikm yndamarkmðurinn Skólavörðustig 19 — simi 15480. Videokiúbburinn StórhoM 1. Simi35460. —VIPEO J Snyrtivörur fyrir þá sem eiga aðeins það besta skilið. Lista-Kiljan sf„ sími 16310. Nauðungaruppboð Að kröfu skiptaráðandans i Reykjavík verður ýmislegt lausafé er til- heyrir þrotabúi vöruhússins Magasíns sf. selt á nauðungaruppboði sem haldið verður í verslunarhúsnæði hins gjaldþrota félags að Auðbrekku 9—11, Kópavogi, fimmtudaginn 27. október 1983 kl. 18. Er hér einkum um ýmiss konar verslunarinnréttingar að ræða, svo sem tréhillur, járngrindarhillur, vegghillur úr járni, borð, þrígrips- slár, f atahengi, innkaupagrindur á hjólum, hillur og fatahengi úr vöru- geymslu, nokkur skrifborð, pg stólar, skjalaskápar, nokkur hand- slökkvitæki, DT vörubrettalyftara á hjólum, vörubretti, ljósritunar- vél, auk fleiri muna. Munirnir verða til sýnis frá kl. 16.30 sama dag og uppboð fer fram. Greiðsla fer fram við hamarshögg. Bæjarfógctinn í Kópavogi. LONDON FYRIR KR. 120 \ Þú situr í rólegheitum heima í stofu og \ gerir innkaupin beint frá Oxford Street í London, áhyggjulaustog án ferðakostnaðar. Þetta getur þú '^þakkað nýja risastóra Grattan vörulistanum. Grattan haust- ogvetrarvörulistinn er nær þúsund síður, þar sem boðnar eru góðar vörur á k. mjög hagstæöu verði og ^ gæðin eru fyrsta flokks. Fatnaður, búsáhöld, ' sportvörur, heimilistæki, hljómtæki, húsgögn og gjafa vörur, svo eitthvað sé nefnt. PÖNTUNARSEÐILL □ Vinsamlegast sendið mér Grattan haust- og vetrarvörulistann á kr. 120.- + burðargj. GRATTAN VÖRULISTAUMBOÐIÐ Pósthólf 5053 - 125 Reykjavík I J Pantanasimar: 36020 — 81347. Opið tilkl. 10 á kvöldin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.