Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1983, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1983, Síða 34
34 DV. FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER1983. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL JC OG LEIKFIMI Komiöi sælir, félagar og vinir, og viö bjóöum góöan fimmtudag til frægöar. JC og hressar háskólastúlkur í leikfimi eru við- fangsefni okkar aö þessu sinni. Um þrettán hundruö manns eru nú í JC hér á landi en JC er fjölmennasta hreyfing ungs fólks í heimin- um. Sem sé dægradvöl margra. Af þessu tilefni lítum við inn til hans Steinþórs Ein- arssonar, garöyrkjustjóra Hafnarfjarðar, en hann er landsforseti JC. Hún Guörún Skúladóttir, deildarstjóri í iðnaðar- ráðuneytinu og sjónvarpsþulur, er einnig JC-maður út í ystu æsar. Og þetta starfsáriö er hún forseti JC Víkur. Og þá er það innlitið til stúlknanna í Háskólanum sem stunda leikfimi í hinu gamla íþróttahúsi Háskól- ans undir líflegri stjórn Eddu Guögeirsdóttur. Viö setjum þá punktinn meö einu heljarstökki. Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Einar Ólason, Gunnar V. Andrésson „Lyfta, krossa, upp og slaka.” .. . „Munið aö blása þegar þið komið upp, tæma loftið.”.....Síðan drögum við hnén upp að brjósti og réttum, beygj- um, réttum, beygjum.”... .Setjist rólegaupp.” Það vantaði ekki líflegheitin í hana Eddu Guögeirsdóttur, íþróttakennara Háskólans, er við heilsuðum upp á frísklegar háskólastúlkur í leikfimi síðastliðinn mánudag. Æfingarnar gengu enda vel fyrir sig þrátt fyrir að stúlkurnar væru yfir sextíu talsins og örlítið þröngt væri um þær í sal íþróttahúss Háskólans. Stór- góöur söngur Natalie Cool hjálpaöi einnig til við að ná þessari sönnu leik- fimistemmningu. „Jú, þetta eru allt stúlkur í Háskól- anum,” svaraði Edda er við trufluðum hana við æfingamar. „Þær eiga kost á leikfimi hér á hverjum degi, nema um helgar, og einnig jassleikfimi tvisvar í viku.” Edda sagði ennfremur að stúlkumar væru mjög áhugasamar og þetta væru yfirleitt sömu andlitin í hvert skipti. ,,Áhuginn á leikfiminni eykst sífellt ár frá ári. Þegar ég byrjaði hér við Há- skólann fyrir sjö ámm voru þetta um tuttugu stúlkur í tímum en nú em þær iðulegayfirsextíu.” Dúndrandi tónlistin vakti athygli okkar. — Alltaf tónlist? „Já. Og ég held lika aö tónlistin viö æfingarnar 4C Hún er með eindæmum lífleg kona hún Edda Guðgeirsdóttir, íþróttakennari Háskólans. „Teygja, blása, teygja, blása.” Guðrún Skúladóttír á skrifstofu sinnliiðnaðarráðuneytinu. „Mikið lagt upp iir jákvæðu hugarfari og jákvæðum mannlegum samskiptum i JC." DV-mynd: Einar Ólason. „Skilað mér miklum og góðum árangri” - Guðrún Skúladóttir deildarstjóri, fréttaþulur og forseti í JC Vík í rabbi „Ég hef haft mjög gaman af að vera í JC og starfiö þar hefur skilað mér mjög miklum og góðum árangri, gefið mér mikið til baka,” sagði Guðrún Skúladóttir, deildarstjóri í Iðnaðarráöuneytinu og fréttaþuiur hjá sjónvarpinu, er viö röbbuðum við hana. En Guðrún er einmitt þetta starfs- áriö forseti í JC Vík, en það er eitt af fimm JC-félögum í Reykjavík. Félagiö er það eina í JC-hreyfing- unni sem éingöngu er skipað konum og era þær alls um sextíu í f élaginu. )rEg gekk í JC í mars árið 1980 og hef veriö svo heppin að fá að takast á við mörg verkefni. Meðal annars tekið þátt í ræðukeppnum og setið mörg námskeið, en viö í JC Vík höfum alltaf lagt mikið upp úr nám- skeiðahaldi og að þjálfa fólk þannig til st jórnunarstarfa. Á eftir bofta kemur barn Þá höfum við einnig lagt mikla áherslu á verkefni sem snerta öryggi barna. Gáfum út límmiða fyrir nokkram árum sem hét: Á eftir bolta kemur bam og á síðasta ári var það annar límmiði sem hét: „Áttu barn í umferðinni?”” Nú vöktuð þið í JC Vík athygli á iönsýningunni þar sem þið sáuð um veitingasöluna. „Já, það var skemmtileg reynsla. Við höfðum áður unnið við veitinga- sölu á sýningum í Laugardalshöll en að þessu sinni fengum við að hafa reksturinn sjálfar og gátum því bryddað upp á ýmsum nýjungum. Drerföim bæk/ingi á Iðnsýningunni Og þetta var gott tækifæri til að kynna félagið og hreyfinguna og dreifðum við bæklingi um JC í um tuttugu þúsund eintökum.” Það hlýtur að fara nokkur tími í JC-starfið, hvernig hefur þér gengið að finna tíma þegar þú vinnur fullan vinnudag og lest fréttirnar hjá sjón- varpinu sjö sinnum í mánuði? „Þaö er nú þannig að maöur hefur alltaf tíma til aö gera það sem mann langar til, ekki síst þegar maður finnur aö ekki er veriö að eyöa tím- anum til einskis. Maöurinn minn hefur líka hvatt mig í þessu á allan hátt.” Jákvætt hugarfar Guörún sagöist hvetja fólk til aö kynna sér JC. Þar fengist þjálfun sem kæmi mjög til góða í atvinnulíf- inu og þess væra ótal dæmi aö fólk hefði fengið betri störf fyrir bragðiö og jafnvel auknar tekjur. „Mig langar líka sérstaklega til að geta þess að í JC er mikið lagt upp úr jákvæðu hugarfari og jákvæðum mannlegum samskiptum sem mér finnst vera ákaflega mikilvægt. ” -JGH. Þær Vikurkonur voktu athygli á landsþingi JC á Hornafirði siðastíiðið vor en þœr mættu allar i eins kjólum. Þetta gerðu þær til að vekja athygli á tílboði sem þær höfðu gert i að halda næsta landsþing. Þeirra tílboð var samþykkt og þvi verður næsta landsþing í Bifröst á komandi vori.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.