Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Qupperneq 1
Leit að gömlum manni
Leitarflokkar skáta, lögreg/an og fjölmarg/r aðrir aðilar leituðu i
gærkvöldi og i nótt að 73 ára gómlum manni sem horfið hafði að
heiman frá sér síðari hluta dags i gær og ekki komið aftur á tilsettum
tima. Auglýst var eftir manninum bæði i útvarpi og sjónvarpi og leit-
arflokkar fóru um svæði i Breiðholti og nágrenni þar sem siðast sást
til hans. Um klukkan fjögur i nótt fannst svo maðurinn rétt við Höfða-
bakkabrúna og var hann þá látinn. -klp DV-myndir S.
Æskulýðsráð Reykjavíkur:
Krefst rannsóknar á rekstri
unglingaskemmtistaðar
Æskulýðsrád Reykjavikur hefur
farið f ram á það við lögreglustjórann
í Reykjavík að hann láti kanna
rekstur unglingaskemmtistaðarins
Best, sem var opnaður ekki alls fyrir
löngu í félagsheimili hestamanna-
félagsins Fáks, á gatnamótum
Reyk janesbrautar og Bústaða vegar.
Meðal upplýsinga sem óskað er
eftir er hvernig staðið sé að leyfis-
veitingum fyrir skemmtistaði á borð
viðBestogáhvernháttséfylgstmeð
sölu aðgöngumiða og uppgjöri á
sköttum vegna skemmtananna. Þá
er óskað eftir upplýsingum um á
hvern hátt sé fylgst með að aldurs-
takmörk gesta séu í samræmi við
lögreglusamþykkt Reykjavíkur og
hvernig fylgst sé með aldurstak-
mörkum vegna áfengisneyslu.
Æskulýðsráð greinir frá fjórum
ástæðum fyrir því að óskað er eftir
þessum upplýsingum og eru þær í
fyrsta lagi: Grunur nm að skemmti-
staðurinn sé rekinn án tilskilinnn
leyfa, í öðru Iagi grunur um að ekki
séu seldir aðgöngumiðar að
skemmt unum í Best, heldur stimplað
á hendur og andlit gestanna, í þriöja
lagi virðast aldursmörk brotin og
skemmtanir standa lengur en leyft
er og i f jórða Iagi leikur grunur á aö
farið sé mjög frjálslega með reglur
um áfengi á staðnum.
Æskulýðsráð tekur fram að fjöl-
margir foreldrar og skólamenn hafi
haft samband við starfsmenn ráðs-
ins og spurst fyrir um rekstur
staðarins.
Signý Sen, fulltrúi lögreglustjóra,
sagði í samtali við DV aö grunurinn
um að skemmtistaðurinn væri
rekinn án tilskilinna leyfa væri ekki
á rökum reistur því skemmtistaður-
inn hefði ávallt fengið leyfi fyrir
skemmtunum sínpm. Hvernig
reglum væri síðan fylgt eftir væri allt
annaðmáL
Þá kom það fram í samtali DV við
Gísla Áma Eggertsson, starfsmann
Æskulýösráös, að hann hefði heim-
sótt skemmtistaðinn um síðastliðna
helgi og að sér hefði virst nokkuö um
unglinga undir 16 ára aldri á staðn-
um en aldurstakmarkið er 16 ár.
Einnig sagði Gísli að nokkuð hefði
boriðáölvun.
-SþS.
Hörmungarástand skipverjanna á Þyrli vegna
kyrrset ningar skipsins í Noregi:
Á ÖLMUSU
Mál íslenska olíuskipsins Þyrils,
sem hefur verið kyrrsett í Kristian-
sund í Noregi í 16 daga, hefur fengiö
mikið umtal í norskum fjölmiðlum
nú síðustu dagana. Hafa blöð í
Kristiansund og nágrenni skrifað
mikiö um málið svo og Dagblaðið í
Osló og í gær var langur fréttapistill
um skipið og aðbúnað skipver janna i
norska ríkisútvarpinu.
Hefur þaö vakið mikla athygli í
Noregi að íslenska ríkiö skuli ekki
hjálpa skipverjunum til að komast
heim til Islands. I staðinn hafi það
bent þeim á að fá peninga hjá norska
ríkinu — eöa nánar tiltekið hjá
félagsmálastofnuninni i Kristian-
sund. Fá þeir þar 200 krónur norskar
á viku. Sqgir í fréttunum aöskipverj-
arnir hafi verið gerðir útlægir í
Noregi af íslenska ríkinu.
Okkur tókst í gær að ná sambandi
við Þyril i gegnum radióiö í Ala-
sundL Sögðu skipverjamir sem við
töluðum við að ástandið um borð
væri vægast sagt hörmulegt. Þeir
hefðu aðeins þessar 200krónuráviku
og enga möguleika á að komast
heim. Þeir ættu enga peninga fyrir
farinu, þvi þeir hefðu ekki fengið
uppgert h já útgerðinni sem nú ramb-
aði á barmi g jaldþrots.
Enginn matur væri um borð og
lifðu þeir á ölmusum frá fólki í landi.
Norska sjómannakirkjan hefði gefið
þeim vöölur og kaffi í gær og Islend-
ingar búsettir í Kristiansund hefðu
fært þeim mjólk og brauð um borð.
Ekkert værí við að vera og þeir ættu
ekki einu sinni peninga til að komast
íhíó.
Um borð eru 11 menn, þar af 9
tslendingar. Sagði einn þeirra sem
við töluðum við að þeir væru allir
orðnir mjög örvæntingarfullir. Þeir
þyrftu að standa við skuldbindingar
sínar gagnvart fjölskyldum og
öðrum heima á Islandi, þar á meðal
íslenska ríkinu, sem ekkert vildi þó
gera til að Iosa þá úr þessari prísund.
Eúin yfú-mannaxuia um borð sagði
að þeir gætu ekki ásakað útgerðar-
manninn meir fyrir ástandið. Hann
hefði tekið áhættu með því að gera
vel við skipið og útgerðin ekki þolað
það. Hann væri nú að reyna að
b jarga því sem hægt væri en kæmi að
flestum dyrum lokuðum eins og þeir
umborðíÞyrli.
-klp-
Er5áraog
syndireinn
kílómetra
þrisvarí viku
— sjá Dægradvöl
bls. 34og35
Kópavogs-
piltarhittu
Keegan
— sjá Sviðsljós
bls.29
Birtumnöfn
eituriyfja-
smyglara
— sjá Lesendur
bls. 17
Étekkifrá
mér vinnuna
— sjá Viðtalið
bls.ll