Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Blaðsíða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER1983. „Ég varpa þessum hlutum fram sem umræöugrundvelli og vœnti mikils af niðurstöðum umræðna ykk- ar, "sagði Haiidár Asgrimsson, en þingfulitrúar fóru strax að bera fram spurningar um tilhögun á fækkun skipa ogsamdrættiiveiðum. DVmynd: GVA. Opinber fisk sölustefna í fæðingu? Halldór Asgrímsson sjávarútvegs- ráöherra sagði m.a. í ræöu sinni á fiskiþingi í gær að viö stæðum nú á tímamótum í fiskisölumálum okkar. Ljóst væri aö viö þyrftum aö hafa markaðssjónarmiö að sterkara leiöar- ljósi en verið hefur. Gæta þess aö framleiöa aöeins fyrir bestu markaði og jafnframt hagkvæmustu einingai i þá. I þessu sambandi nefndi hann hina geysilegu aukningu í skreiöarverkun og í saltfiskverkun, sem varö fyrir tveim árum meö þeim afleiöingum aö mun minna var fryst fyrir Bandaríkja- markaö en æskilegt heföi veriö. Hann mælti mjög meö samræmdri markaðsstefnu íslensku fisksölufyrir- tækjanna í Bandaríkjunum og taldi kosti samvinnu í því sambandi vera yfirgnæfandi sterkari en innbyröií samkeppni. Ekki vék hann nánar aö því hvet ætti aö ákveöa hversu mikiö ætti aö hengja upp, salta eöa frysta. En í fréttaskýringu í málgagni hans, Tím- anum, var fyrir skömmu ýjaö að opin- berri forsjá á því sviöi og í sömu skýr- ingu virtist forsætisráöherra, Stein- grímur Hermannsson, líta á þaö sem athyglisverða hugmynd. -GS Þéttbýlistogararn ir veiða minnst af þorski — Reykvíkingar og Reyknesingar sjá því ekki ástæðu til að fækka togurum þar ffyrst Ingólfur Amarson sagöi á fiskiþingi í gær aö Reykvíkingar, Hafnfiröingar og Suöurnesjamenn heföu þungar áhyggjur af þeim hugmyndum sjávar- útvegsráöherra aö ef gripið yröi til þess aö leggja einhverjum togurum, þótt ekki yröu þeir kannski 30, væri rétt aö leggja aöallega togurum frá þéttbýlissvæðum. Rök ráöherra fyrir því eru þau aö á þeim svæöum séu bæði fleiri atvinnutækifæri og betra svig- rúm til aö skapa ný í öörum greinum en sjávarútvegi. Ingólfur benti á aö fækkun togar- anna væri fyrst og fremst rökstudd meö því aö draga yröi úr sókn í þrosk- stofninn. I því samandi gat hann þess aö um síöustu mánaöamót heföi þorsk- hlutfall þess 31 togara sem geröur er út frá svæðinu verið aöeins 21 prósent en þorskhlutfall hinna 70 togaranna hafi hins vegar veriö 48 prósent. Hann sagöi aö 570 sjómenn störfuöu á þessum togurum og sköpuöu þeir 1,200 atvinnutækifæri í fiskiönaði fyrir utan störf í margvíslegum þjónustu greinum sjávarútvegsins. Því má svo bæta hér viö aö þeir tog- arar sem um þessar mundir eiga í hvaö verstum vanskilum eru lang- flestir frá öörum landsvæðum. -GS. Halldór Ásgrimsson og Þorsteinn Gíslason fiskimálast/óri á Fiskiþingi i gær. DVmynd: GVA. „Slæm búhyggja að seija bestu mjólkurkýrnar” - segir fiskimálastjóri Nokkrar umræöur hófust þegar í upphafi fiskiþings í gær um fækkun í fiskiskipastólnum. Þorsteinn Gísla- son fiskimálastjóri rakti m.a. þær sviptingar sem oröiö hafa í uppbygg- ingu vissra skipagerða flotans, allt eftir því hvaö náttúran hefur boöiö upp á sem hagstæðustu veiöarnar. Á árunum ’40 og framundir ’50 var geysimikiö byggt af bátum. Næst kom nýsköpun togaraflotans, þá upp- bygging síldar- og loönuflotans og seinast uppbygging skuttogaraflot- ans. Þorsteinn sagöi aö þrátt fyrir öll þessi stökk liföum viö ekki því lífi, sem viö lifum í dag, ef þau hefðu ekki veriö tekin. Þorsteinn sagöi flotann of stóran nú. Hér væru nú á ferð erlendir spá- kaupmenn sem vildu kaupa okkar bestu skip fyrir smánarverð. „Þaö hefur aldrei veriö talin góö búhyggja aö selja bestu mjókurkýrnar úr f jós- inu,” sagði hann og benti á að ekki mætti henda okkur aö standa eftir meö úr sér gengin og lifshættuleg skip til sóknar á einhverjum hættu- legustufiskimiðumheims. —GS í dag mælir Dagfari ídagmælir Dagfari I dag mælir Dagfari Að reykja ofan í aðra Eins og öllum er kunnugt telst þaö til meiriháttar dáöa hér á landi ef einhverjum tekst að leggjast í bind- indi. Gildir það jafnt um tóbak og vín og komast menn raunar þá fyrst í álit scm dáðadrengir þegar þeir eru orönir afturbata í nautnunum. Frægt var fyrir nokkrum árum, þegar valinkunnir góðborgarar voru dregnir fram í íslenska sjónvarpinu og látnir slökkva í síðustu sígarett- unni fyrir framan alþjóð. Þaö átti að vera merki þeirrar ögunar og sjálfs- afneitunar sem fínust er um þessar mundir. Þeir sem eru afturbata í áfengi eru til að mynda í hávegum hafðir og þykir enginn maður með mönnum nema sá sem sótt hefur Freeport og Silungapoll heim. Þá fyrst hafa menn drýgt þá dáð sem athygli og aödáun vekur. Meðan það er sem sagt fínt að vera hættur að vera fyllibytta á íslandi, hefur minna farið fyrir.hóli um hina, sem aldrei hafa lagt áfengi sér til munns eöa stundað reykingar upp á einn pakka á dag. Þeirra cr aö engu getið og teljast ekki til manndóms- manna. Þannig hafa stórstúkumenn verið haföir aö háöi og spotti og skoðaðir sem sérvitringar, meðan AA menn og Freeport meölimir ganga um eins og frelsandi englar og endurborin jesúbörn. Um bindindis- menn á tóbak er ekki eyðandi orðum., En því er þetta rakið aö nú hefur heilbrigðisráöherra lagt fram þings- ályktunartillögu á sjálfu alþingi, þar sem kveðið er á um, að framvegis skuli bannað aö reykja í opinberum stofnunum. Röksemdir þessarar tillögu eru ekki þær að banna eigi hverjum og einum aö reykja, sem auðvitað væri hendi næst, heldur hitt að reykinga- maðurinn sé aö rcykja ofan í aöra! Nú er sem sagt komið á daginn að bindindismenn hafa vaöið i þeirri villu, aö þeir væru óhultir fyrir tóbakinu og nikótíninu, meðan þeir reyktu ekki sjálfir. Heilbrigöis- ráöuneytiö hefur fundið það út að það sé reykt ofan i þá af öðrum og þær reykingar eru stundaðar á opinber- um stofnunum. Það er vitaskuld reiðarslag fyrir þjóöina og Bandalag starfsmanna rikis og bæja aö uppgötva að opinberir starfsmenn eru allir ofur- seldir tóbakinu, og ekki seinna vænna en stöðva þennan ósóma. Ef skipulega er staðið aö því af reykingamönnum rikisins að reykja ofan í samstarfsmenn sina og kúnn- ana, þá sjá allir að á því eru margir og skaðlegir vankantar. Fyrir það fyrsta er það alvarlegt mál ef fólk getur komist upp með aö reykja án þess að reykja sjálft. Sala ríkisins á tóbaki er undir því komin að hver og einn verði aö kaupa sínar sígarettur sjálfur en skjóti sér ekki undan þeim útgjöldum með því að láta aðra reykja ofan i sig. t öðru Iagi er það siðlaust með öllu að láta þá spillingu viðgangast á opinberum stofnunum lýðveldisins, að fólk reyki hvert ofan í annað, enda mun það fljótt leiða af sér nærgöng- ulli likamlegri samskipti. Það hefur tU að mynda alls ekki verið upplýst hvemig opinberir starfsmenn reykja hver ofan í annan. Er það „munnur á munn” aðferð eða hvaö? Á hinn bóginn er fátt svo með öUu Ult, að ekki boði nokkuð gott. Upp- götvun heUbrigðisráðuneytisins er sú að enginn sem rekist hefur inn á opinbera stofnun á íslandi getur talist bindindismaöur á tóbak. Meö banninu viö að reykja ofan í aöra emm við ÖU orðin afturbata í nautnunum. Þarf því enginn aö fara á Freeport lengur tU aö komast í finni manna tölu. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.