Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Blaðsíða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER1983. 13 Óvæntur íslandssöguáhugi Stutt saga um heimildarmeðferð Morgunblaðsins Óheiðarleg umræða um sögukennslu Tilefni þessara lína er mikið fjaðrafok um meinta niðurfellingu Islandssögukennslu í grunnskólum. I sjálfu sér er opinber umræða um skólamál og ekki síst um sögukennslu mér gleðiefni. Mér finnst mjög nauðsynlegt að ræða til- Hvaðan er valdið? Nú vita þaö allir aö alþingi hefur ekki gefiö nein fyrirmæli um þaö aö hætta eigi kennslu í Islandssögu. Ekki er heldur vitaö til þess aö ráö- herrar hafi haft slika forheimskun á stefnuskrá sinni. Og er þá spuming- in, hvaöan undirtyilum kemur þaö vald aö fella niöur heilar námsgrein-' ar? Mér sýnist aö nauösynlegt sé fyrir menntamálaráóherrann aó koma á nokkrum kennslustundum í stjórn- lagafræöi handa starfsfólki sínu, svona til þess aö þaö átti sig á þvi hverjir stjórna í þessu landi og hvemig ákvaröanir eiga aö vera teknar. Og hvernig geta menn lært án þess aö læra ulan aö. Eg veit ekki U1 þess aö nokkur fróöleikur veröi til af sjálfu sér — en kannski heldur fólkíö í skólarannsóknadeildinni, aö menn geti skihö hluti án þess aö læra þá j Hlutar af kjallaragrein Haraldar Blöndal, sem Ingólfur f jallar um. gang sögukennslu og víst örlar á at- hugasemtíum um hann í þessari um- ræðu. Þær eru þó ekki áberandi innan um útúrsnúninga, misskilning, fordóma, vanþekkingu á skólastarfi •og hreina lygi. Þá má spyrja hvort það er virkilega áhugi á betri Is- landssögukennslu sem fær Sighvat Björgvinsson til þess að líkja að- standendum námsefnisgerðar í sam- félagsfræði hér á landi við fræöslu- yfirvöld í Moskvu (DV18. nóv.). Má nokkuð gera þá kröfu að þeir sem skrifa í blöð um Islandssögu- kennslu kynni sér Aðalnámskrá grunnskóla. Samfélagsfræði? Og viti að ráðherra auglýsti gildistöku hennar og það voru ekki „undir- tyllur” sem tóku sér eitthvert vald sem þær höfðu ekki og það þegjandi og hljóðalaust. Haraldur Blöndal hélt því fram í DV 18. nóvember sl. aö fróöleikur yrði ekki til af sjálfu sér þótt kannski héldi fólkið í skólarannsóknadeild (þar er unnið að gerð námsefnis í samfélagsfræði) að hægt væri að skilja hluti án þess að læra þá fyrst. Glíma Haralds við að skilja vald undirtyllanna bendir óneitanlega til þess aö þekking forði mönnum frá því að birta „rangar staðreyndir”. Eftir lestur námskrárinnar er ekki hægt að halda því fram að verið sé að þurrka út alla kennslu i sögu landsins nema gegn betri vitund. Mýfluga verður að úlfalda Þegar þessi grein birtist er vænt- anlega búið að bera til baka slatta af rangfærslum og útiista þau sjónar- mið sem lágu að baki þeirri ákvörðun aö nám grunnskólanem- enda í Islandssögu skuli heita sam- félagsfræði. Eg ætla því að láta mér nægja núna að rekja í grófum dráttum sögu um ámælisverða heimildanotkun, eða hvernig sú firra að kennsla í Islandssögu eigi að takmarkast við 120 ár komst á kreik: 1. stig: Gunnar Karlsson, prófess- Ingólfur Á. Jóhannesson or í sagnfræði við Háskóla Islands, ritaði ritdóm um þrjár náms- einingar í samfélagsfræði í 4. hefti Timarits Máls og menningar þessa árs og tók fram að hann ritaði bara um þær einingar „sem kalla má að yfirgnæfandi hluta sögu.. .” Jafn- framt tók Gunnar fram að talsverð Islandssaga væri í einingunni Nátt- úruhamfarir og landmótun og að víðar væri komið inn á sögu. Síðar sagði Gunnar: „Með því að gera sér upp dálítið skilningsleysi á tilgang höfunda þessara þriggja náms- eininga mætti segja að þær fjölluðu næstum eingöngu um ein 120 ár sögunnar...” (leturbreyting mín). I þessu eru fyrirvarar fræöimannsins. 2. stig: Svo kom blaðamaðurinn Guðmundur Magnússon og skrifaði um „Umritun Islandssögunnar” í Morgunblaðið 13. nóvember: „Það námsefni sem nú hefur verið samið tekur t.d. eingöngu yfir 120 ár. ..” (leturbreytingar mínar). Mislas blaöamaðurinn prófessorinn eða gerði hann skilningsleysi hans að sínu? Nú er þetta orðið beinlínis rangt. Fyrirvarar Gunnars eru á brott. Einn fyrirvari er þó eftir: Að til standi að semja meira. 3. stig: I leiðara Morgunblaðsins ,15. nóvember var sá fyrirvari hins vegar fallinn brott með öllu: „Náms- efnið er takmarkað við. . .120ár”. Leiðarahöfundur fengi líklega falleinkunn í inngangsfræðum sagn- fræði fyrir þessa frammistööu og blaðamaðurinn lága. Erfiðara er að gefa einkunn fyrir „uppgerö” en þeir sem dýrka utanbókarlærdóm og staðreyndanám munu væntanlega ekki meta hann til hárrar einkunnar á prófi. Eg læt leiðarhöfundum Morgunblaðsins eftir að meta þessa frumheimild sína, ritdóm Gunnars. Ingólfur Á. Jóhannesson sagnfræðingur. Samkvæmt lögum ber ríkinu að greiða helming kostnaöar við bygg- ingu dagvistarheimila á landinu öllu. Ríkið greiðir sinn hluta á fjórum árum skv. lögunum. þ.e. loka- greiðsla ríkisins til dagvistarheimil- is kemur á f jórða ári eftir að mennta- málaráðuneytið hefur samþykkt teikningar væntanlegs heimilis eða „tekið þaö inn á fjárlög” á ráðu- neytismáli. Þessi lög voru samþykkt árið 1973, en síðan hefur þeim veriö breytt nokkuö. Þær breytingar hafa miðað að því að draga úr hlut ríkisins, t.d. er nú fallið burt ákvæði sem í lögun- um var um að ríkið tæki þátt í rekstrarkostnaði viö dagvistarheim- ili. Lögin voru á sínum tíma mikil lyftistöng og örvuöu fyrstu árin byggingu dagvistarheimila. Einn stór galli er á þeim, en hann er sá að fjárveitingar eru hverju sinni háöar velvilja meirihluta Alþingis. Fjár- veitingar hafa því verið breytilegar frá ári til árs en ég hygg að í núver- andi fjárlagafrumvarpi taki þó steininn úr varöandi framlag ríkisins í þessum málaflokki. Fjárlagafrumvarpið 1984 I núverandi frumvarpi er áætlaö að verja 30 milljónum króna af ríkis- fé til bygginga dagvistarheimila á landinu öllu. Það er þrem milljónum1 króna meira en á fyrri ári eða 11% hækkun í 75 —80% meðaltalsverð- bólgu milli ára. Hækkunin heldur því hvergi nærri verðgildi, hvaö þá aö um raunhækkun sé að ræöa. Þetta skýrist betur ef litiö er á þær skuldbindingar sem ríkið gerði við gerð síðustu f járlaga. Skv. þeim voru 66 dagvistarheimili „á fjárlögum”. Sum þegar starfandi, önnur nýlega tekin til starfa og enn önnur í bygg- ingu og loks ný heimili sem væntan- lega er hafin bygging á nú. Af þessum 66 heimilum eiga 22 heimili að fá lokagreiðslu á árinu 1984. Til þeirra einna fara rösklega 25 milljónir. Þá eru tæplcga 5 milljónir eftir til hinna 44 heimil- anna. Þaö þarf ekki mikið hugmyndaflug til að gera sér grein fyrir afleiðing- um þessarar stefnu ríkisvaldsins. Henni er augsýnilega ætlað aö stööva þegar hafnar framkvæmdir og aö hafa áhrif til samdráttar á öllum ný- byggingum. Að svona aðgerðum stendur ríkis- stjóm sem talar um að draga penna- strik yfir hundruö milljóna króna skuldir misjafnlega vel rekinna út- gerðarfyrirtækja. Svona hlutir ger- ast á sama tíma og 34 milljónum er Dagvistarmál 1984 varið í byggingu bankaafgreiðslna, að maður tali nú ekki um Seöla- bankahúsið illræmda. — Þetta er engin tilviljun. Það er meövituð stefna sem verið er að framkvæma. Stefna sem tekur fyrst og fremst mið af hagsmunum einkaframtaksins á kostnað almennra launþega. 1 Stefna meirihlutans í borgarstjórn — En hvernig er þá stefna íhalds- meirihlutans í borgarstjóm? I byrjun október sl. lögöum við fram í félagsmálaráði tillögu um aö 4% af tekjum borgarinnar næsta ár og út kjörtímabilið yrði varið til upp- byggingar dagheimila og skóladag- heimila í borginni, en þar meö yröi I borgarstjórn fluttum við fyrir skömmu tillögu um aö borgarstjóm skoraði á fjárveitinganefnd og þing- menn Reykjavíkur að hækka ríkis- framlagið frá því sem er í fjárlaga- frumvarpinu. Þessi tillaga fékk ekki stuðning meirihlutans. Borgarstjóri lagöi til að henni yrði vísaö til borgarráðs og gerðar fjárhags- áætlunar borgarinnar. Við mótmælt- um þessari afgreiðslu, sem í raun þýðir aö málið er svæft. Þessi af- greiðsla er því enn eitt dæmið um hug meirihlutans til þessa mála- flokks, því með henni er hann í raun að lýsa yfir velþóknun á niður- skurðaráformum ríkisstjómarinnar. Meirihlutinn virðist nefnilega hugsa sem svo — því minna framlag sem_ • „Henni er augsýnilega ætlað að stöðva þegar hafnar framkværadir og að hafa áhrif til samdráttar á öllum nýbyggingum.” hægt aö gera verulegt átak í þessum mikilsveröa málaflokki. Ihalds- meirihlutinn greiddi atkvæði gegn þessari tillögu. Þaö er fremur óvenjulegt að meirihlutinn hafi fyrir aö greiða tillögum mótatkvæði, venjulega láta þeir nægja aðsitja hjá og tryggja þannig að tillaga fái ekki framgang. En viö þessa afgreiðslu lá greinilega mikið við svo þeir höföu fyrii- því aö rétta upp höndina gegú henni. Klár stefna þar. kemur frá ríkinu til dagvistarheim- ila — því minna þurfum viö að leggja fram. Þá höfum við meiri peninga í plastgras, mannlausa byggð í Grafarvogi, undirgöng og slaufur undir og yfir Miklubrautina svo allir bilarnir komist í 30 þúsund fermetra verslanahöllina í nýja miðbænum. Enn eitt dæmið um stefnuna í dag- vistarmálunum. Á þessu ári lagði borgin fram 9 milljónir í dagvistar- byggingar. I raun verður einungis 6,1 Kjallarinn Guðrún Jónsdóttir milljón notuð af upphæðinni. Meiri- hlutinn hefur nefnilega ákveðið að í ár verði ekki byrjað á heimili uppi í Seljahverfi sem var þó búiö að sam- þykkja að hef ja byggingu á í haust. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar árið 1984 Enn liggur fullunnin fjárhagsáætl- un borgarinnar fyrir næsta ár ekki fyrir. A fundi félagsmálaráðs í fyrri viku var samþykkt að á næsta ári skuli byggð ný heimili sem hér segir: 1. Skóladagheimilis- og leikskóla- deild við Rangársel í Seljahverf i. 2. 3ja deilda heimili á Eiðsgranda, þ.e. ein dagheimilisdeild og tvær leikskóladeildir eöa 1—2 leikskóla- deildir sem viðbót viö Ægisborg. 3. 3ja deilda heimili í Arbæjarhverfi, þ.e. ein dagheimilisdeild og 2 leik- skóladeildir. 4. Breytingar á skrifstofuhúsnæöi sem nú er aösetur starfsmanna dagvistar í dagheimili, ef annað skrifstofuhúsnæði fæst fyrir þá starfsemi. Áætlað er að þessar framkvæmdir og uppgjör framkvæmda sem þegar eru hafnar kosti um 36,8 milljónir. I þessum tillögum, sem samþykktar voru samhljóða í ráðinu, kemur hvergi fram hver áætlaöur hlutur ríkisins verður. Ekki er hægt að skilja samþykktina ööruvísi en svo að fulltrúar meirihlutans samþykki að borgin fjármagni hana, þó ríkis- " framlagiö verði minna en búast mætti við. I lögunum um byggingu dagvistarheimila er ekkert ákvæði sem hindrar sveitarfélög í því að byggja eins mikið af dagvistar- heimilum og þau vilja, þó ríkisfram- lag komi ekki á móti. Eg vil þó eindregiö hvetja alla for- eldra í borginni að fylgjast náið með því hvaða breytingar kunna að verða á þessari áætlun fram að áramót- um þegar f járhagsáætlun verður af- greidd. Það hefur nefnilega iöulega' gerst að meirihlutafulltrúarnir í fé- lagsmálaráði samþykkja þar eitt og annað, sem þeir síðan fella inni í borgarstjórn. Leiö til þess að fylgjast með gangi mála, er t.d. að hafa beint samband við borgarfulltrúa og spyrja þá um málið. Önnur leið til þess aö sýna hug sinn í þessu mikils- verða máli er söfnun undirskrifta meöal íbúa í hverfum. Á fundi félags- málaráös í fyrri viku var t.d. lagður fram undirskriftalisti 1000 foreldra í Árbæjarhverfi til staöfestingar á vilja þeirra varðandi byggingu fleiri dagvistarheimila í hverfinu. Þessar úndirskriftir söfnuðust á tveim dögum og frumkvæöi aö þeim áttu foreldrar sjálfir. Ég vil að lokum benda á aö undan- farið hefur fé til dagvistarheimila aöallega verið varið í byggingu leik- skóla. Þó er vitað að 4 tíma gæsla á leikskóla skikkar konur í ríkum mæli í hlutastörf. I könnun sem gerð var 1981 meðal foreldra barna á leikskól- , um og foreldra barna á biölistum 1 leikskóla og dagheimila kom fram að ; 38,2% svarenda óskuöu eftir lengri en 4 st. dvöl fyrir börn sín á dag- vistarheimili. Þegar verið er að ræða um uppbyggingu dagvistarheimila verður að hafa þetta sjónarmið í . huga líka. Guðrún Jónsdóttir borgarfulltrúi Kvcnnaframboös.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.