Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Side 3
Könnun Landssambands iðnaðarmanna:
SAMDRÁTTUR
í IÐNAÐI
SEX PROSENT
Um sex prósent samdráttur varö í
framleiöslu í almennum iönaöi á
þriðja ársfjóröungi þessa árs, ef frá
er talin aukning ál- og kísiljárnfram-
leiöslu. Þetta kemur fram í nýlegri
ársfjóröungslegri könnun Lands-
sambands iönaöarmanna og Félags
íslenskra iönrekenda á ástandi og
horfum í íslenskum iönaði á 3. árs-
fjóröungi 1983.
Samkvæmt könnuninni voru horf-
ur um iðnaðarstarfsemina á 4. árs-
fjórðungi á þann veg að í almennum
iðnaði var, þegar á heildina er litið,
búist viö óbreyttu framleiðslumagni,
en nokkrum samdrætti í sölu. Búist
er viö aö framleiösla og sala á áli
muni aukast á 4. ársfjóröungi og á
sama tíma megi búast viö litilshátt-
ar aukningu á framleiöslu og sölu
iönaöarvara. Búist er viö fækkun
starfsmanna hjá um 37 prósent
fyrirtækja.
-HÞ
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER1983.
High-Tech 260 6
DOLBY
Kaupmáttur
rýrnað um
27 prósent
Kaupmáttur kauptaxta hefur
rýmað um 21% hjá launþegum al-
mennt frá febrúar 1980 til september-
loka á þessu ári. Þessar upplýsingar er
að finna í nýútkomnu fréttabréfi kjara-
rannsóknamefndar.
Kaupmáttarrýrnunin er mismun-
andi hjá hinum ýmsu starfsstéttum. Á
þessu tímabili er rýrnun kaupmáttar
kauptaxta verslunar- og skrifstofu-
fólks mest eða 30,7%, kaupmáttur
kauptaxta aöildarfélaga Alþýöusam-
bands íslands hefur rýrnað almennt
um 26,5%, kauptaxtar verkakvenna
um 26,3%, kauptaxtar verkamanna
um 25,3% og kauptaxtar iðnaöar-
manna hafa rýmaö um 24,3% á þessu
tímabili.
ÓEF
Háþróuð hljómtækjasamstæða fyrir kröfuharðan nútímann.
Keflavík
MUSIKOG
MYNDIR
Vestmannaeyjum
KAUPFÉLAG
HAFNFIRÐINGA
Ströndgötu 28
3
JAPIS hf.
ísafirði
Brautarholti 2
sími 27133
Vidgerð á hitaveituœðinni
sem eyðilagðist í snjóflóðinu
á Siglufirði gekk vel. Á milli
50 og sextíu manns unnu að
viðgerðinni og var vatni
hleypt á kerfið um kl. fimm í
gœrmorgun. Snjóflóðið kom
mönnum á Siglufirði mjög á
óvart þar sem slíkur at-
burður hafði aldrei gerst á
þessurn stað í manna minn-
um. DV-mynd Kristján Möller
Starfforstjóra SVR:
Sveinn
Björnsson
hlaut flest
atkvæði
— ístjórnSVR
Sveinn Björnsson verkfræðingur,
formaður stjómar Strætisvagna
Reykjavíkur, fékk flest atkvæði er
stjórn SVR fjallaði um umsóknir um
forstjórastarf fyrirtækisins í gær.
Hlaut Sveinn fjögur atkvæði af fimm
en fulltrúi Kvennaframboösins sat hjá
viö atkvæöagreiðsluna. Sjálfur sat
Sveinn ekki fundinn heldur varamaður
hans. Máliö fer nú fyrir borgarráð jjar
sem þaö veröur tekiö fyrir í dag og má
telja fullvíst aö borgarráö staöfesti
ráöningu Sveins í stööu forstjóra SVR.
AUs vom umsækjendur um for-
stjórastarfiö sex og fóru þrír þeirra
fram á nafnleynd. Sú regla hefur hins
vegar veriö tekin upp hjá Reykjavíkur-
horg aö gefa umsækjendum um störf á
hennar vegum ekki kost á nafnleynd og
er þessum þremur umsækjendum var
tilkynnt um þessa reglu féllu þeir frá
kröfum sínum um nafnleynd.
Umsækjendur vom því þessir:
Baldvrn Baldvinsson framkvæmda-
stjóri, Hraunbæ 66, Haraldur Þóröar-
son, forstöðumaður tæknideildar SVR,
Flókagötu 3, Höröur Smári Þorsteins-
son verkstjóri, Hraunbæ 190, Magnús
Skarphéöinsson bifreiöarstjóri,
Grettisgötu 40B, Snorri Aöalsteinsson
félagsfræöingur, Boðagranda 5 og
Sveinn Bjömsson verkfræðingur,
Grundalandiö.
SþS