Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Side 6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER1983.
Tokum upp á myndbond:
Auglýsingar fyrir video og sjonvarp
— fræósluefm — viótalsþætti o.m.fl
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
rvivnDBja
Skálholtsstíg 2a
Símar 11777 — 10147
kaefískápur
semer
rúmgööur
ogódýr
entekurfítiö
pláss
Skipholt 7 Símar
Rvík. 91-26800
91-20080
HVENÆR GETUM VIÐ
BYRJAÐ AÐ RENNA 0KKUR?
Þegar þetta var skrifað fyrir helgi var hvít jörð hér í Reykjavík. Á
veðurstofunni var okkur sagt að um allt landið væri úrkoma
annaðhvort í formi slyddu eða snjókomu. Ekki er gert ráð fyrir að
snjórinn sem féll hér í Reykjavík staldri við í langan tíma. Norðan-
lands er hugsanlegt að fallinn snjór haldist eitthvað lengur.
Stefán Kristjánsson íþróttafulltrúi sagði að allt væri til reiðu í Blá-
f jöllum og væri hægt að byrja strax og nægilegur snjór væri kominn.
En fullvíst er að snjórinn muni koma. Spurningin er bara hvenær og
hvar.
-APH.
HVAÐ EIGA SKÍÐIN AÐ VERA STÓR?
Það er vonandi að biðraðirnar
minnki í ár með tilkomu nýju
lyftunnar. Er ráðgert að hún komist
1 í gagnið svo fljótt sem unnt er.
Björg Kristjánsdóttir afgreiðslu-
stúlka í versluninni Utlilíf upplýsti
okkur um þau atriði sem þarf að
gæta að þegar keypt eru skíði.
Varðandi stærö á svigskíöum sagöi
hún aö fullorönir sem væru
byrjendur ættu helst aö kaupa svig-
skíði í sömu stærö og þeir sjálfir
væru og jafnve 5 cm lengri en þeirra
eigin stærö. Fullorðnir og unglingar
sem heföu náö fullkomnu valdi á
skíðum ættu hins vegar að hafa
skíöin 10—15 cm lengri en þeir væru
háir.
Svipaðar reglur gilda fyrir börn en
yfirleitt er ekki talið ráðlegt að börn
yngri en 6 ára noti skíöi sem eru
lengri en þau sjálf.
Bindingar á skíöunum miöast viö
þyngd notandans. Skíöaskór fyrir
börn þurfa aö vera léttir þannig að
þau geti meö góöu móti valdið skón-
um. Fyrir eldri krakka, eöa frá 11—
12 ára aldri, er óhætt aö skómir séu
þyngri og nái lengra upp eftir fót-
leggnum. Einnig er talin þörf á aö
börn noti öryggishjálma.
Þaö eru til ýmsar gerðir af göngu-
skíöum. Skiöi sem ekki þarf aö
smyrja og skíöi sem veröur að
smyrja með ákveðnum áburöi rtiiðað
viö hitastig og gerð snævarins. Erfitt
er aö segja um hvort er betra aö
nota. Keppnismenn nota yfirleitt
skíöi sem þarf aö smyrja. Meö því
geta þeir náö fram sem mestum
möguleikum til að renna vel á skíð-
unum hverju sinni. Skiöi sem ekki
þarf aö smyrja geta verið mjög góö
og enginn tími fer í aö smyrja og
fjarlægja gamla smurningu.
Stærð gönguskíöa á aö vera um 30
cm meiri en eigin hæö notanda og
stafirnir eiga aö vera það stórir að
þeir nái upp undir handarkrikann.
NOTIÐ TIMANN
Þeir sem bíöa óþreyjufullir eftir
því aö komast á skíði en komast ekki
vegna snjóleysis, geta reynt aö nota
tímann. Þaö t.d. hægt aö taka fram
skíðin og kanna hvort ekki sé allt í
stakasta lagi. Og þeir sem engin
skíöi hafa en hafa í huga aö byrja
geta byrjaö að huga að skíðum sem
henta þeim. Þaö getin- veriö tíma-
frekt því úr mörgu er aö velja.
Og aö lokum er vert að benda
væntanlegum skíðamönnum á aö
mikilvægt er aö maður sé í góöu
formi áöur en byrjað er aö þjóta niö-
ur brekkumar. Þess vegna er ekki úr
vegi aö nota tímann til aö þjálfa
líkamann á meðan beöið er eftir
snjónum mikla. -APH
Þegar þetta er skrifað er fremur lítill snjór sjáanlegur í Reykjavík og ná-
grenni. Líklega eru margir sem bíöa óþreyjufullir eftir nothæfum snjó og aör-
ir sem fagna hverjum snjólausum degi sem líöur.
Fyrir þá sem bíöa og vona brugðum viö okkur í tvær verslanir sem selja
vetrarútbúnaö af ýmsum gerðum. Fyrir valinu urðu tvær verslanir, Sportval
á Laugaveginum og Sportmarkaöurinn á Grensásveginum. Fyrrnefnda
verslunin selur einungis nýjar ónotaðar vörur en sú síöarnefnda selur aöal-
lega notaöar vörur en einnig nýjar.
I báöum þessum verslunum fengum viö uppgefið lægsta og hæsta verö á
hverjum vöruflokki fyrir sig. Hér er ekki um nákvæma verðkönnun að ræöa
en vonandi gefur þetta yfirlit nokkra vísbendingu til þeirra sem hyggjast
kaupa einhvers konar vetrarútbúnaö í vetur.
Eiga von á nýjum sendingum
„Hér er enn til mikiö af vörum á gamla veröinu en viö eigum von á nýjum
sendingum nú á næstunni. Viö gerum þó ekki ráö fyrir því aö verðið hækki
mikiö,” sagöi Svavar Þórhallsson afgreiöslumaöur í versluninni Sportval. I
versluninni fást yfirleitt fjölmargar tegundir af hverri vöru eins og t.d.
skíöum og skautum. Við báðum Svavar aö gefa okkur upp verö á dýrustu og
ódýrustu vörunni í hverjum flokki fyrir sig.
Svigskíðaútbúnaður kr.
Barna- og unglingaskíði (með stálköntum) 2200 — 3000
Unglingaskiði með bindingum (tilboð) 1710—1995
Barnaskíði (tilboð með bind. og stöfum) 995—1140
Fullorðinsskiði 2900 — 7500
Keppnisskiði (fyrir þá sem eru orðnir leiknir á skíðum
Skiðaskór fyrir fullorðna
Skíðaskór fyrir börn
Bindingar
Stafir
Skiðagleraugu
Hjálmar fyrir börn
Skiðabuxur
Skiðaúlpur úr gerviefnum
Skiðaúlpur með dúni
4900- 8500
1600-6600
1300-1800
840 - 3200
340 - 590
100 - 800
425
1400 - 2500
2000 - 5000
3400 - 7000
Gönguskíði
Gönguskiði fyrir fullorðna 1800 — 2500
Bindingar 255 — 500
Skór 1000-1800
Stafir 220- 350
Skautar 885-1240
Ekki voru fáanleg gönguskíði fyrir börn en að sögn Svavars eru þau vænt-
anleg og ráögert aö selja þau í einum pakka þ.e. meö bindingum og stöfum.
Anna ekki eftirspurn
„Við önnum varla eftirspurn. Flestar vörurnar eru í mjög góöu lagi og yfir-
leitt lítiö notaðar. Viö lagfærum allt sem kemur hingað,” sagði Jón
Magnússon verslunarstjóri í Versluninni Sportmarkaöurinn. Þessi verslun
tekur aö sér m.a. aö selja notaöan vetrarútbúnaö. Þetta er aö sjálfsögðu mjög
jákvætt framtak Þetta getur komiö sér vel fyrir foreldra sem þurfa aö kaupa
skíöaútbúnað fyrir börn sín sem vaxa jafnóöum upp úr honum.
Notuð svigskíði
Svigskiði (með bindingum og stöfum)
Bindingar
Skór
Stafir
KR.
1700 - 2700
400-650
500-1100
50-100
Einnig var hægt að fá eina tegund af nýjum svigskíðum á 2417 kr. og nýja .
skó á 1198—1397 kr., nýjar bindingar á 1181—1480 kr. og nýja stafi á 205 kr.
settiö.
Notuð gönguskíði
Gönguskiði (með bindingum og stöfum) 1000—1200
Skór 240 - 500
Notaðir skautar 300 — 740
Ný gönguskíði voru á 1400 kr. án bindinga og bindingarnar á 600—700 kr. Og
hægt var aö fá nýja japanska skauta á 965 kr. -APH.
iM ■ii,-.. t ■ r r
Það er allt tll reiðu en gallinn er bara sá að enn sem komið er hefur snjórinn
nær einungis verið í búðarglugganum.
Jón Magnússon verslunarstjóri í versluninni Sportmarkaðurinn sýnir okkur
bér hluta af notuðum og vel með f ömum skíðum sem era á boðstólum á sann-
gjörau verði.
' t.
HVAÐ KOSTAR
VETRARBÚN-
AÐURINN?