Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Qupperneq 10
10
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umsjón: Herdís Þorgeirsdóttir
AÐ GENFAR-
VIÐRÆÐUM LOKNUM
Sovétríkin tilkynntu í síöustu viku
aö þaö væri enginn möguleiki á því aö
þau myndu halda áfram Genfarviö-
ræðunum um meöaldræg kjarnorku-
vopn sem nú hafa staðið yfir í tvö ár.
Gengu fulltrúar Sovétríkjanna út af
fundi í Genf sl. miövikudag eftir aö
þingið í Bonn haföi samþykkt staö-
setningu allra Pershing II eldflaug-
anna og 96 stýriflauga á þýskri jörö.
Sovétríkin munu aöeins snúa aftur af
samningaboröinu ef NATO dregur
átælun sína til baka.
Yuri Andropov forseti Sovét-
ríkjanna lýsti því yfir að fyrst af-
vopnunarviðræöur báru ekki árang-
ur „segi það sig sjálft aö aörar að-
geröir verði hafnar til aö tryggja
öryggi Sovétríkjanna og annarra
ríkja hins sósíalíska heims.”
Varsjárbandalagiö hefur ráögert
fund í Sofíu, höfuöborg Búlgaríu, í
næsta mánuöi en þaö eru aöeins tveir
mánuðir síöan Varsjárbandalags-
ríki funduöu í Austur-Berlín þar sem
aðalmáliö var hvernig bregöast ætti
við fyrirhugaöri staösetningu eld-
flauganna 572 sem NATO áætlar aö
koma fyrir í Evrópu samkvæmt
ákvöröuninni 1979. Þannig aö Sovét-
ríkin hafa haft fjögur ár til að undir-
búa viðbrögö sín.
„. . . til annarra ráða
verður gripið. . . "
Eftir aö viðræöunum var slitið i
Genf sl. miövikudag kom Yuri
Andropov meö yfirlýsingar um
hvaöa gagnaögeröa Sovétríkin
myndu grípa til fyrst viðræöurnar
fóru út um þúfur.
Á fimmtudag birti Tass frétta-
stofan yfirlýsingu Andropovs sem
starfsmaður Novosti fréttastofunnar
færði DV. Þar segir m.a. aö friður
hafi veriö tryggöur í 40 ár vegna
jafnvægis í heröflum bæði NATO og
Varsjárbandalagsins og á þaö við'
um kjamorkuvopn líka, segir í yfir-
lýsingunni. Þá segir Andropov aö nú
raski staðsetning nýju eldflauganna
í Evrópu þessu jafnvægi og ennfrem-
ur aö þessar eldflaugar muni ekki
tryggja öryggi Evrópu — „enginn
ógni henni” — heldur geti þetta leitt
tortímingu yfir þjóöir Evrópu. Segir
Andropov aö nú séu Bandaríkja-'
menn búnir að bægja endurgjalds-
árás frá heimalandi sínu. Enn-
fremur segir hann aö Bandaríkin
hugi á krossferð gegn sósíalískum
ríkjum. Því telur hann aö ákvöröun
ríkisstjóma á Italiu, í Vestur-Þýska- ■
landi og í Belgíu um aö samþykkja
staösetningu þessara vopnakerfa sé
þvert ofan í hagsmuni þeirra. Því
næst segir orörétt í yfirlýsingu
Andropovs: „Þær bera því, ásamt
ríkisstjóm Bandaríkjanna, alla
ábyrgö á afleiöingum þessarari
stefnu sem Sovétríkin höföu varaö
viö fyrirfram.”
Samkvæmt yfirlýsingunni er
áframhaldandi þátttaka Sovét-
manna í viðræðum um afvopnun
ómöguleg. Segir Andropov aö nú
veröi ekki leitast viö aö stuöla aö
hagstæðara andrúmslofti fyrir viö-
ræður meö því aö draga úr uppsetn-
ingu SS—20 eldflauganna í Evrópu-
hluta Sovétríkjanna.
Þá sagöi Andropov aö uppsetningu
eldflauga í Austur-Þýskalandi og
Tékkóslóvakíu yrði hraðað aö mun. ■
Ennfremur sagöi hann aö uppsetning'
eldflauga NATO í Evrópu skapaöi
aukna hættu fyrir Sovétríkin og
mundu þau haga uppsetningu „sam-
svarandi eldflaugakerfa sinna meö
nákvæmu tilliti til aöstæðna á höfum
og hafsvæðum. Aö eöli til veröa þessi
vopnakerfi okkar í samræmi við þá
ógnun sem bandarísku eldflaugam-
ar, sem beint er aö okkur og banda-
mönnum okkar frá Vestur-Evrópu,
búa okkur.”
Síöan segir ennfremur orörétt:
„Þaö þarf ekki aö taka þaö fram aö
til annara ráöa verður gripiö til aö
tryggja öryggi Sovétríkjanna og
annara sósíalískra ríkja.” Af hverju
þau ráö eru ekki tilgreind er undir-,
ritaöri ekki kunnugt.
Síöan segir Andropov aö þaö sé ein-
lægur ásetningur Sovétríkjanna aö
vinna aö róttækri lausn kjamavíg-
búnaðar og aö Sovétrikin sækist ekki
eftir hemaöarlegum yfirburöum.
Kohl og Mitterrand
vilja halda rósemdinni
Viöbrögö leiðtoga í Vestur-Evrópu
viö brottför Sovétmanna frá
samningaboröinu og viö yfirlýsingu
Andropovs vora óvenju „afslöppuð”.
Franeois Mitterrand, forseti Frakk-
lands, og Helmut Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands, hittust í síöustu
viku á öörum af tveimur árlegum
fundum leiðtoganna. Talsmenn
þeirra beggja lögöu áherslu á þaö
opinberlega aö vafasamt væri aö búa
til einhverja harmsögu úr þessum
SS-20 — 3 kjaraaoddar — dregur 5000
kilómetra.
síöustu aðgeröum Sovétmanna.
Þetta væri í sjálfu sér aöeins það
sem búast heföi mátt viö í þessum
ferli og aö þaö væri ekki útilokaö aö
Sovétmenn snem aftur aö samninga-
borðinu í Genf.
Talsmaður Mitterrand, Michel
Vauzelle, sagöi aö sovésk viöbrögö
breyttu í engu afdráttarlausum
stuöningi Frakka við staðsetningu
nýju eldflauganna í Evrópu.
Frakkland er aðili að samningi
Atlantshafsbandalagsins en tekur
ekki þátt í rekstri hemaðarstofnunar
þess og herafli er óháður herafla
NATO.
Helmut Kohl kanslari sagöi viö
Mitterrand að stjórnvöld í Vestur-
Þýskalandi vildu eindregiö aö
samningaviðræður hæfust í Genf aö
nýju. Þá tók Helmut Kohl þaö fram
aö allt oröspor um mátt græningj-
anna og friöarhreyfinganna til að
hafa áhrif á stefnu stjómvalda í
Vestur-Þýskalandi væri rangt, þ.e.
Vestur-Þýskaland hygöist áfram
vera dyggur aöili aö Atlantshafs-
bandalaginu.
I Santa Barbara í Kaliforníu var
Bandaríkjaforseti staddur þegar
hann heyröi af yfirlýsingu
Andropovs. Byrjaði hann á því aö
lýsa yfir ótta vegna ummæla Sovét-
leiötogans. Sagöi Reagan aö áfram
yröi aö því stefnt aö fjarlægja meðal-
dræg kjarnorkuvopn af yfirboröi
jaröar.
I yfirlýsingu Andropovs um gagn-
aögeröir er í fyrsta sinn hótaö staö-
setningu kjamorkueldflauga í kaf-
bátum eða skipum úti fyrir strönd
meginlands Bandaríkjanna.
Talsmaöur Vatíkansins í Róm,
Agostino Casaroli, lét þess getið strax
í kjölfar stöðvunar á viöræöunum aö
Vatikaniö væri tilbúiö aö gera tilraun
til að koma á sáttum milli stórveld-
anna tveggja. Casareli lét þess getiö
aö Vatikaniö teldi aö enn væri
ríkjandi vilji meöal beggja aöila aö
ná samkomulagi.
I Austur-Evrópu hefur líka boriö á
margskonar viöbrögöum viö þessari
nýjustu þróun í afvopnunarmálum.
Heyrst hefur mikið af gagnrýnis-
röddum.
Talsmaöur utanríkisráðuneytisins
í Júgóslavíu sagöi aö þessi nýjasti
atburöur á vettvangi afvopnunar-
mála bætti nýrri og hættulegri vídd
viö þaö hættuástand sem ríkti nú
þegar á alþjóöavettvangi. Sagöi sá
sami aö friðarhreyfingar Evrópu
sýndu fram á eindreginn vilja al-
mennings aö stuðla aö friði í heimin-
um.
I Prag í Tékkóslóvakíu hefur oröið
vart mikils óróa meöal almennings
frá því aö sovésk stjórnvöld lýstu því
yfir í síðasta mánuði aö hafnar væru
aðgerðir til að hraöa uppsetningu
eldflauga í Tékkóslóvakíu vegna
lítils árangurs í viðræðunum í Genf.
Heyrst hafa raddir sem draga friöar-
vilja „bandamannanna” í Kreml í
efa eftir þessa síöustu atburöi.
SíöastUöið sumar var haldin al-
þjóðleg friöarráöstefna í
Tékkóslóvakíu og Tékkar hafa verið
mjög gagnrýnir í fjölmiðlum á stað-
setningu eldflauga í Evrópu. Otti
almennings hefur því aukist mjög í
kjölfar síðustu atburöa.
„Ef allir vilja frið —
af hverju gerist þá
ekkert?"
„Valiö er á milli nýrrar kynslóöar
vopna eöa nýrrar kynslóöar
manna,” sagöi aöalframkvæmda-
stjóri Sameinuöu þjóðanna, Pérez de
•Cuéllar á fundi um afvopnun í Genf
sl. vetur, þar sem de Cuéllar ákall-
aöi ríkisstjómir allra aöildarríkja
S.Þ. og bað þær aö reyna aö hafa
áhrif á þróunina í átt til friöar.
Einn blaöafulltrúi S.Þ. spuröu sak-
leysislega: „Ef allir vilja friö, af-
hverju gerist þá ekkert? ”
Þaö er ekki úr vegi aö rekja hér í
stuttu máli þá þróun sem átt hefur
sér staö síðan hin umdeilda ákvörð-
un NATO var tekin áriö 1979.
Sovétríkin létu mjög á sér standa
til aö byrja meö aö taka þátt í við-
ræöum um meðaldræg kjamorku-
vopn. Ariö 1977 höfðu Sovétríkin haf-
iö staðsetningu SS-20 þriggja kjarna-
odda eldflauga án þess aö vara viö
kóng né prest og ekki minntust
Kremlverjar á afvopnunarviöræður í
því sambandi.
NATO ákvöröunin var bundin viö
572 eldflaugar meö einn kjamaodd
hver. Sovétmenn hafa aldrei tiltekiö
hver fjöldi SS—20 eldflauga þeirra
ætti aö veröa. Þeir hafa nú staösett
351 SS—20 Evrópumegin í Sovét-
rikjunum til viðbótar viö um þaö bil
240 eldri sovéskar eldflaugar af gerö-
unum SS—4 og SS—5.
Pershing n eldflaugamar sem ein-
göngu veröa staösettar í Vestur-
Þýskalandi draga 1.800 kílómetra,
þannig að þær ná ekki til Moskvu.
Stýriflaugamar hins vegar draga
2.500 kílómetra. SS—20 eldflaugar
Sovétmanna draga 5000 kílómetra og
geta því náö yfir allt Evrópusvæðið
(Islandmeötaliö).
Samfara NATO ákvöröuninni 1979
um staðsetningu nýju eldflauganna
var ákveðiö aö f jarlægja eitt þúsund
kjamaodda sem fyrir væru í Vestur-
Evrópu. Auk þess var ákveðiö aö
fyrir hverja eldflaug sem staösett
yröi væri einn kjamaoddur sem fyrir
væri fjarlægður. Þannig hefur endur-
nýjun kjamorkueldflauganna í
Evrópu ekki í för meö sér fjölgun
kjamaodda.
Sovétríkin hafa ekki dregið úr
fjölda kjarnaodda. Fyrsta tilboö
Bandaríkjastjómar í viöræöunum í
Genf var svokölluð „núll-lausn” sem
stendur enn þá. Sovétmenn höfnuöu
því tilboöi. Öörum tilboðum Banda-
ríkjastjórnar hafa Sovétríkin enn-
fremur hafnaö, t.d. tilboði um aö
draga úr fjölda eldflauga eða tak-
marka meöaldrægar eldflaugar ein-
hvers staöar fyrir neðan 572, þannig
aö báöir aöilar heföu jafnmargar.
Sovétmenn hamra stööugt á því aö
þeir telji nauösynlegt aö bæta sjálf-
stæðum kjamorkuvopnakerfum
Frakka og Breta inn í þessar viöræð-
NATO hefur stööugt haldiö í þá
stefnu aö staösetning hæfist ef eng-
inn árangur næöist en jafnframt
haldiö þeim möguleika opnum aö ef
um sýnilegan árangur yröi aö ræöa í
viðræöum væri möguleiki á aö
hætta staðsetningu eöa afturkalla
eldflaugamar. Fyrstu eldflaugarnar
veröa staösettar nú á næstu dögum
og staösetning afgangsins dreifist
yfir næstu árin — ef engin breyting
veröur á.
Genfarviðræöumar hafa staöið
yfir í tvö ár. Enginn árangur hefur
náöst. NATO hefur hafiö fram-
kvæmd á öörum þætti hinnar tví-
þættu ákvörðunar. Allan tímann sem
viöræöumar hafa staöiö yfir hafa
Sovétmenn haldiö áfram aö planta
nýjum SS—20 eldflaugum niður í
Evrópuhluta Sovétríkjanna.
ur.
Paul Nitze, fulltrúi Bandaríkjastjóraar, og Yuli A. Kvitsinksky, fulltrúi Sovétstjórnar, í Genf í september sl..