Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Síða 21
20 DV. ÞRIÐJUDAGUR29. NOVEMBER1983. DV. ÞRIÐ JUD AGUR 29. NOVEMBER1983. 21
íþróttir fþróttir fþróttir íþróttir fþróttir íþróttir fþróttir (þróttir fþróttir
lanWallace
til Rangers?
Ian Wallace, skoski landsliðsmiðherjinn
hjá Nottingham Forest, er nú í Glasgow tíl
viðræðna við forráðamenn Rangers. Ef
hann nær samkomulagi við þá um eigin
kjör mun hann sennilega skrifa undir
samning hjá Rangers í dag. Félögin hafa
náð samkomulagi um 100 þúsund sterl-
ingspunda kaupverð.
-hsím.
Þrír leikir
hjá Ardiles
Osvaldo Ardiles, argentínski heims-
meistarinn hjá Tottenham, fær nóg að
gera i þessari viku. Hann hefur að mestu
náð sér af meiðslum sem komið hafa í veg
fyrir knattspymu hjá honum i haust og mun
í kvöld leika gegn Barnet, á fimmtudag
æfingaleik á White Hart Lane og á laugar-
dag með varaliði Tottenham. Ef hann
kemst í gegnum þessa leiki er líklegt að
hann nái aftur sæti sínu fljótt i liði Totten-
ham. -fasim.
Miihren
meiddur
Arnold Miihren, hollenski landsliðsmað-
urinn h já Man. Utd., getur ekki leikið með
liði sínu í leiknum í Oxford á miövikudag i
mjólkurbikarnum. Garth Crooks, láns-
maður frá Tottenham, má ekki taka þátt i
leiknum. Þeir Norman Whiteside og
Kevin Moran verða á ný í byrjunariiði
Man.Utd.
-hsím.
Fjársöfnun
íNottingham
— til kaupa á Glen Roeder
Fjársöfnun stendur nú yfir í Nottingham
á Englandi hjá stuðningsmönnum Notts
County tB að kaupa Glen Rœder frá QPR.
Hann er nú lánsmaður hjá County og liðið
hefur ekki tapað í þeim fimm leikjum
sem hann hefur leikið. Notts County hefur
boðið 75 þúsund pund í hann, QPR vill fá
150 þúsund en félagið sjálft á enga
peninga. Meðalaðsókn hjá þvi aðeins 8—9
þúsund á heimaleiki og það er litið i L defld.
Stuöningsmenn félagsins hafa þvi hafið
fjársöfnun, einn þeirra lagði fram 1000
pund i gær. Margir frá 10—60 pundum og
lika berast eins punds seðlar. Allt á að
gera til að ná í Roeder.
-hsím.
Sextán nýir
sunddómarar
Sundsambandið útskrifaði sextán sund-
dómara á ungiingameistaramótinu i sundi
sem fór fram i Sundhöll Reykjavíkur um
helgina. Undanfarin tvö ár hafa þrjátiu
sunddómarar útskrifast.
Dimsku strákarair sigraðu i öUum leikjum sinum við íslendinga á afmælismóti Vikings í badminton.
DV-mynd Oskar.
Afmælismót Víkings í badminton:
Dönsku strákamir
ofjarlar íslendinga
Dagana 19. og 20. nóvember sl. var
haldið veglegt afmælismót Badmin-
tondeildar Víkings. Mótið fór fram í
Laugardalshöll, og hófst kl. 13.00 á
iaugardeginum. Þátttakendur, sem
voru 120 talsins, komu viða að af
landinu.
Mikið líf og f jör ásamt keppnisgleði
ríkti báða dagana, enda saman komnir
bestu badmintonkeppendur i öllum
unglingaflokkunum. Þá vöktu mikia
athygli tveir unglingar frá Danmörku,
sem voru gestir mótsins. Það voru þeir
Morten Sandal og Henrik Olsen.
Morten er 16 ára en Henrik 17 ára.
Báðir eru þeir þekktir badminton-
keppendur í sínu heimalandi
Urslit í öllum flokkum voru sem hér
segir:
HNOKKAR, EINLIÐALEIKUR:
Araar Gunnlaugsson, ÍA, vann Bjarka
Gunnlaugsson, ÍA, 10/0,11/5.
HNOKKAR, TVÍLIÐALEIKUR:
Amar Gunnlaugsson og Bjarki Grnin-
laugsson, ÍA, unnu Einar Pálsson, ÍA,
og Jón Þórðarson, ÍA, í úrslitum 15/4 —
15/11.
TÁTUR, EINLIÐ ALEIKUR:
Kristín Ölafsdóttir, UFHÖ, vann
Jóhönnu Snorradóttur, UFHÖ, í úrslit-
um 11/6-11/9.
TÁTUR, TVÍLCÐALEIKUR:
Jóhanna Snorradóttir, UFHÖ, og
Sigurbjörg Skarphéðinsd., UFHÖ,
unnu Ingibjörgu Amljótsd., TBR, og
Kristínu Olafsd., UFHÖ, í úrslitum
12/15-15/8—17/15.
HNOKKAR TÁTUR,
TVENNDARL.;
Olafur Ásgeirsson, UFHÖ, og Kristín
Olafsd., UFHÖ, unnu Einar Pálsson,
ÍA, og Maríu Gústafsd., ÍA, í úrsl. 10/15
— 15/7 — 17/16.
SVEINAR — EINLIÐALEIKUR:
Njáll Eysteinsson, TBR, vann Rósant
Birgisson, IA, i úrslitum 11/1 —11/1.
SVEINAR — TVÍLIÐALEIKUR:
Karl Viðarsson, IA, og Sigurður Stein-
dórss., ÍA, unnu Jón Pétur Ziemsen,
TBR, og Hauk Haukss., TBR, í úrslit-
um 15/4-15/12.
MEYJAR— EINLIÐALEIKUR:
María Guðmundsd. IA vann Bertu
Finnbogad., IA, í úrslitum 12/9 —11/7.
MEYJAR— TVÍUÐALEIKUR:
María Guömundsd., IA, og Ágústa
Andrésdóttir, ÍA, unnu Bertu Finn-
bogad. og Guðrúnu Eyjólfsd., ÍA, í úr-
slitum 15/5 — 5/15 —15/11.
SVEINAR/MEYJAR TVENNDARL.:
Njáll Eysteinsson TBR og Bima Peter-
sen, TBR, unnu Maríu Guðmundsd.,
IA, og Rósant Birgiss., ÍA í úrslitum
15/13.-15/8.
DRENGIR— EINLIÐALEIKUR:
Haraldur Hinriksson, ÍA, vann Bjarka
Jóhanness., lA í úrslitum 15/12 —15/3.
DRENGIR — T VILIÐ ALEIKUR:
Haraldur Hinriksson, IA, og Bjarki
Jóhanness., ÍA, imnu Leó Sigurðsson,
TBR, og Guðmxmd Bjamason, TBR, í
úrslitum 15/5 — 4/15 —15/7.
TELPUR — EINLIÐ ALEIKUR:
Guörún Júlíusd., TBR, vann Guðrúnu
Sæmundsd., Val, í úrslitum 11/2 —
11/2.
TELPUR — TVÍLIÐ ALEIKUR:
Helga Þórisd., TBR, og Guðrún
Júliusd., TBR, unnu Ásu Pálsd., lA, og
Guðrúnu Gíslad., LA, í úrslitum 15/5 —
15/3.
DRENGIR/TELPUR TVENNDARL.:
Bjarki Jóhannesson, ÍA, og María
Finnbogad., IA, unnu Pétur Lentz og
Guðrúnu Júlíusd., TBR, í úrslitum 6/15
—15/12—15/5.
Opinn gestaflokkur:
EINLIÐ ALEIKUR:
Henrik Olsen Danmörku vann Morten
Sandal Danmörk í úrslitum 15/11 —
15/10.
TVÍLIÐALEIKUR:
Henrik Olsen og Morten Sandal, Dan-
mörk, unnu Pétur Hjálmtýsson, TBR,
og Snorra Þ. Ingvarss., TBR, í úr-
slitum 15/5—15/1.
Þessi sérstaki gestaflokkur var
settur vegna tilkomu Dananna, sem
sýndu mjög sterkan leik. Þeir unnu
alla sína leiki við islendinga, og kepptu
því til úrslita.
Mikil blóðtaka hjá íslenska landliðinu f handknattleik:
Alfreð ekki með
til A-Þýskalands
—og þeir Sigurður Sveinsson og Bjami Guðmundsson geta
aðeins leikið tvo leiki með landsliðinu
— Ég get ekki leikið með landsliðinu
i A-Þýskalandi þar sem Essen er að
leika tvo þýðingarmikla leiki í
Bundesligunni á sama tíma og mótið
fer fram í A-Þýskalandi, sagði Alfreð
Gíslason, stórskyttan snjalla i hand-
knattleik.
Þaö er gífurieg áfall fyrir íslenska
landsliðið að Alfreö getur ekki leikið
með því í A-Þýskalandi í alþjóðlegu
móti þar, sem hefst 13. desember og
stendur til 17. desember. Þar verður
leikið gegn A-Þýskalandi, Póllandi,
Tékkóslóvakíu og Alsír.
Frábær sund-
afrek Gross
Vestur-þýski heimsmeistarinn í
sundinu. Michael Gross, náði frá-
bærum tíma í 200 m flugsundi á móti í
Schwaebisch Gmuend i V-Þýskaiandi
á sunnudag. Synti á 1:56,1 min. sem er
besti timi sem náðst hefur á vega-
lengdinni. Hins vegar fór keppnin fram
í 25 m laug, svo árangurinn verður ekki
staðfestur sem heimsmet. Besti tími
hans áður var 1:56,18 mín.
Á laugardag var Gross aðeins frá
sínum besta tíma i 200 m skriðsundi.
Synti á 1:44,9 mín. en á best 1:44,5
mín.á vegalengdinni. -hsim.
Alfreö sagði að Essen ætti að leika
gegn Sdiwabing heima. 16. desember og
gegn Hofweier á útivelli 21. desember.
— Þjálfari okkar, Peter Ivanescu, er
alfariö á móti því að gefa leikmönnum
Essen frí nema hann geti fengið þá til
æfinga minnst viku fyrir leik. Hann
gefur landsliðsmönnum V-Þýskalands
ekki frí þannig aö það liggur ljóst fyrir
að ég fæ ekki frí, þar sem við erum að
leika á sama tíma og íslenska landslið-
ið tekur þátt í mótinu í A-Þýskalandi,
sagði Alfreð.
Fjarvera Alfreðs veikir íslenska
landsliöið mikið. Hann sýndi mjög
góða leiki meö liðinu gegn Tékktun hér
heima á dögunum — skoraði flest mörk
islands og var sterkur í vöminni. Það
bendir því allt til aö Bogdan landsliðs-
þjálfari verði að kalla á Þorberg Aðal-
steinsson til að taka stööu Aifreðs á
vinstri vængnum í sókninni.
Þá er einnig ljóst að Sigurður Sveins-
son og Bjami Guðmundsson geta
aöeins leikiö tvo fyrstu leiki Islands i
A-Þýskalandi þar sem þeir eiga að
leika með félögum sínum í V-
Þýskalandi 17. desember.
Essen f þríðja sæti
Alfreð Gíslason og félagar hans hjá
Essen em nú í þriðja sæti í
Bundesligunni — með 14 stig eftir tíu
leikL Grosswallstadt er efst með 21
stig eftir tólf leiki og Schwabing er í
öðru sæti með 19 stig eftir ellefu leikL
Göppinger er í fjóröa sæti með 14 stig
eftir ellefu leiki, Gummersbach er með
13 stig eftir tiu leiki og Kiel meö 12 stig
eftir tólf ieiki. Þess má geta að Lemgo,
sem Sigurður Sveinsson leikur með, er
með f jögur stig og er eitt af neðstu lið-
unum. -SOS
Alfreð Gfslason átti mjög góða lelki gegn Tékkum á dögunum. Hér sést hann
skora eitt af mörkum sinum i leikjunum. DV-mynd: Eiríkur.
Fjórir sundmenn
á NM í Svíþjóð
Það hefur verið ákveðið að fjórir
sundmenn frá íslandi taki þátt i
Norðurlandameistaramóti unglinga i
sundi sem fer fram í Sviþjóð 9. og 10.
desember. Það eru Ragnheiöur
Runólfsdóttir, Bryndís Ölafsdóttir,
Ragnar Guðmundsson og Eðvald Þ.
Eðvaldsson. Fararstjóri verður
Guðfinnur Olafsson, formaður sund-
sambandsins.
• Ragnheiður keppir í 100 m bak-
sundi, 200 m fjórsundi, 100 m
bringusundi og 200 m baksundi.
Islendingurinn í liði
Luxemborgar stóð sig vel
— í Evrópukeppni klúbbliða sem háð var á Spáni
Eins og við sögðum frá í blaðinu i
gær varö sveit Golfklúbbs Reykjavíkur
í 10. til 1L sæti á Evrópumóti klúbbliða
í golfi, sem fram fór á Marbella á
Spáni og Iauk á laugardaginn var.
I sveit GR voru þeir Sigurður Péturs-
son, Ragnar Olafsson og Oskar Sæ-
mundsson. Þeir voru ekki einu Islend-
ingamir sem tóku þátt í þessu móti. I
liöi Luxemborgar, sem varð í 16. sæti á
mótinu, var einn ungur Islendingur,
Ingi Jóhannesson. Stóö hann sig vél á
þessu móti — lék Aloha völlinn á
samtals 332 höggum — eða á 82—80—
88-82.
Siguröur Pétursson lék á 315
höggum, Oskar Sæmundsson á 327 og
Ragnar Olafsson á 338 höggum.
Árangur tveggja bestu hvem dag taldi
og var GR-sveitin á samtals 636
höggum, sem er þaö besta sem sveit
frá Íslandi hefur náð í þessari keppni.
Italir urðu sigurvegarar en röðin
varðannarsþessi: Högg
Italía 605
Danmörk 606
Þýskaland 609
England 612
Spánn 617
Svíþjóð 617
Austurríki 617
Skotland 618
Irland 632
Island 636
Sviss 636
Frakkland 638
Noregur 644
Wales 645
Belgía 646
Luxemborg 660
Finnland 663
Portúgal 684
Holland 688
-klp.
• Bryndís keppir í 100 m skriðsundi,
100 m baksundi, 100 m flugsundi og 200
m skriðsundi.
• Ragnar keppir i 400 m skriðsundi
og 1500 mskriösundi.
• Eðvald keppir i 200 m baksundi,
100 m baksundi, 200 m fjórsundi og 100
mskriðsundi.
Ingi Jóhannesson lék á 332 höggum i
liði Luxemborgar.
Landsliðsnefndin lagði til að Guðrún
Fema Ágústsdóttir færi einnig en hún
gaf ekki kost á sér — taldi sig ekki í
nægilega góðu formi til að keppa á NM.
-sos.
íslandsmet
IngaÞórs
— í 50 m skríðsundi
í gærkvöld
Akuraesingurinn Ingi Þór Jónsson
setti nýtt Islandsmet i 50 m skriðsundi
á innanf élagsmóti í Sundhöllinni i gær-
kvöldi. Synti á 24,8 sek. en eldra metið
átti annar Akurnesingur, Finnur
Garðarsson, 25,1 sek., sett 1975. Ingi
Þór náði einnig ágætum tíma í gær-
kvöld i 100 m flugsundi þó svo einn
snúningur hans misheppnaðist alveg.
Synti á 60,2 sek. en Islandsmet hans er
59,1 sek.
Ungi Bolvíkingurinn Hannes Þór
Sigurðsson setti tvö sveinamet á
mótinu í gær og þar er mikið efni á
ferðinni. Hann synti 200 m skriðsund á
2:23,5 mín., en eldra sveinametið átti
Ölafur Einarsson, Ægi , og var það
2:25,0 mín. í 400 m fjórsundi náði
Hannes Þór 5:48,3 min. og stórbætti
eldra sveinametið. Það var 6.00,4 min.
og átti Ragnar Guðmundsson, Ægi
það. hsím.
íslandsmet
hjá Bryndísi
og Guðrúnu
Bryndís Olafsdóttir frá Þoriákshöfn,
setti nýtt íslandsmet í 100 m skriðsundi á
unglingameistaramóti tslands. Bryndís
synti 100 m á 1:00,9 mín., en gamla metið
hcnnar, sem hún setti fyrir viku á innan-
félagsmóti Armanns var 1:01,1 mín. Þetta
er jafnframt stúlkna- og tclpnamct.
Þá setti Guðrún Fema Agústsdóttir
íslandsmet í 50 m skriðsundi þegar hún
synti fyrsta sprettinn í 4x50 m skriðsundi
á 28,58 sék. Guörún Fema átti sjálf eldra
metið — 28,69 sek.
-sos
Ellert snjall
EUert Vigfússon, markvörður Víkings í
handknattleíknum, átti snjallan leik í
marki Víkings gegn Stjöraunni sl. föstu-
dag. Varði mark Víkings lengstum og
varði 14 skot, þar sem Vikingar fengu
knöttinn. Vegna mistaka í setningu í gær
féllu niður linur um frammistöðu Ellerts.
Hins vegar sagt að hann hefði varið mark
Víkings lokakaflann. Það gerði hins vegar
Kristján Sigmundsson með sóma.
hsím.
í Start
„Það er ekkert endanlega ákveðið í
þessn máli. Ég á von á simtali frá forráða-
mönnum Start alveg á næstunni og þá mun
málið ef til vill skýrast nánar. Það er
annað lið í myndinni,” sagði Slgurlás Þor-
leifsson, landsliðsmaður í knattspyraunni,
i samtali við DV í gær en hann var þá
staddur hér í Reykjavik.
Norska dagblaðið skýrði frá því nú
nýlega að Sigurlás mundi leika með Start,
norska knattspyraufélaginu, næsta
keppnistimabil og taka þar stöðu Steinars
Aase, sem er á föram frá norska iiðinu.
Start er eitt besta knattspyranfélag Nor-
egs en Sigurlás sagði að ekkert væri
ákveðið í málinu, þegar við bárum undir
hann frétt norska dagblaðsins. -hsím.
Brottrekstur
að fagna marki
— hjá Thomas dómara
Clive Thomas, dómarinn kunni og
umdefldL iýsti þvi yfir i BBC í gær, að hann
ætlaði að taka strangt á fagnaðarlátum
idkmanna eftir að mark hefur verið skor-
að. Fyrir að hlaupa til áhorfenda eftir
mark fær leikmaðurinn áminningu, gult
spjald endurtaki hann slíkt. Leikmaður
sem skorar þrennu í leik og gieymir sér í
fögnuði og hleypur að áhorfendasvæð-
unnm, á því yfir höfði sér brottrekstur af
leikvelli hjá Thomas dómara. Hvort enska
knattspyrausambandið samþykkir þessar
áætlanir Clive Thomas er önnur saga og
þær efiaust settar f ram til að komast i fjöl-
miðla. Clive Thomas hefur löngum þótt
gaman að vera í s viðsljósinu.
íþróttir
íþróttir
fþróttir
fþróttir
íþróttir
íþróttir
fþróttir
fþróttir
íþróttir
HELGAR- OG
VIKUFERÐIR
BROTTFARIR ALLA FÖSTUDAGA
OG MIÐVIKUDAGA
VERÐ FRÁ
KR. 8.288 PR. MANN
(TVEIR í HERBERGI)
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstigl. Símar 28388 og 28580 I
ILGAR- OG
KUFERÐIR
TTFARIR ALLA LAUGARDAGA
OG ÞRIOJUDAGA
FRÁ KR. 8.984 PR. MANN
(TVEIR Í HERBERGI)
FERÐASKRIFSTOFA.Iðnaðarhúsinu Hallveigarstigl.Simar 28388 og 28580
1
I
I
I
1
I
I
I
I
I
I
I
1
1
I