Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Síða 30
30
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER1983.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
ALEJO CARPENTIER
Ríki af þessum
heimi
Saga frá Kúbu komin út
Iðunn hefur gefiö út skáldsöguna
Ríki af þessura heimi eftir Kúbumann-
inn Alejo Carpentier. Guðbergur
Bergsson þýddi úr spænsku. Saga þessi
er eftir einn fremsta rithöfund Kúbu-
manna. Hann fæddist árið 1904, var um
langt skeiö sendiherra lands síns í
París og lést árið 1980. Eftir hann
liggja nokkrar skáldsögur og er Ríki af
þessum heimi ein hin fremsta og kunn-
asta.
Guðbergur Bergsson ritar ítarlegan
eftirmála þýðingar sinnar og gerir þar
grein fyrir höfundinum og hinum
menningarlega jarövegi sem list hans
er sprottin úr.
Ríki af þessum heimi er gefin út í
sömu sniðum og saga nóbelsskáldsins
frá Kólumbíu, Gabriels Garcia
Marquez, Frásögn um margboöað
morð, sem út kom í fyrra í þýðingu
Guðbergs Bergssonar. Fyrirhugaö er
aö gefa út fleiri úrvalsrit höfunda
Rómönsku Ameríku í þýðingu
Guðbergs, en hann er sá maður sem
mest hefur unnið aö því að kynna
Islendingum sagnaheim Suður-
Ameríku. — Ríki af þessum heimi er
139 blaðsíður. Oddi prentaði.
Vík milli vina
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Ot er komin hjá Máli og menningu
skáldsagan Vik milli vina eftir Olaf
Hauk Símonarson. Olafur hefur áður
sent frá sér þrjár skáldsögur, smásög-
ur og ljóð.
Sagan segir frá hópi fólks sem komiö
er á fertugsaldur en hefur haldið
saman síðan í menntaskóla og sumir
lengur. Flest voru þau líka við nám í
Kaupmannahöfn á baráttuárunum eft-
ir 1968 þegar átti aö breyta heiminum.
Nú eru þau ár liðin og hvaö er orðið um •
allt sem þau trúðu á og ætluðu að gera?
Vinirnir gömlu leita ekki svaranna
saman lengur heldur leitar hver fyrir
sig í örvæntingu. Einhverjir eru dæmd-
ir til að verða undir í þeim leik. Sögu-
maður er einn úr hópnum og verður
ekki einhlítt hvaö er veruleiki og hvaö
skáldskapur hans.
Bókin er 210 bls. Kápumynd geröi
Hilmar Þ. Helgason. Bókin er að öllu
leytiunniníPrentsmiðjunniHólumhf. j
Tilræðið
eftir Poul-Henrik Trampe
Ut er komin sem aukabók hjá Bóka-
klúbbi Alrhenna bókafélagsins Tilræð-
ið eftir danska höfundinn Poul-Henrik
Trampe. Sagan gerist í Kaupmanna-
höfn. Þingmaður er skotinn til bana í
þinginu og skotið hefur komið ofan af
þingpöllunum. Snýst sagan um afar
spennandi leit aö hinum seka.
Poul-Henrik Trampe var einn af
fremstu sakamálahöfundum Dana,
fæddur 1944. Hann lést síöastliöiö sum-
ar, týndist af ferjunni milli Oslóar og
Kaupmannahafnar eins og frægt var á
sínum tíma.
Þýðandi er Anders Hansen.
Bókin er pappírskilja, 175 bls. að
stærð, og unnin í Prentsmiðju Árna
Valdimarssonar.
Guðlaugs saga
Gíslasonar
Endurminningar frá Eyjum’
og Alþingi
Guðlaugur Gíslason hefur lengstum
veriö umdeildur maöur og á 40 ára
stjórnmálaferli sínum hefur hann mátt
þola ýmsa óvægna gagnrýni and-
stæðinga sinna. Þaö er því næsta for-
vitnilegt — og tímabært — að fá nú frá-
sögn hans sjálfs af viöburðaríkri ævi
og pólitískum átökum í Eyjum, en
Bókaútgáfan örn og örlygur hefur
sent á markað æviminningar Guölaugs
sem bera heitið Guðlaugs saga Gísla-
sonar — endurminningar frá Eyjum og
Alþingi.
I endurminningabók sinni segir Guð-
laugur frá æskudögum sínum í Eyjum
og dregur upp einkar geðþekka mynd
af forfeörum sínum og félögum og rek-
ur hina hörðu baráttu sína fyrir því að
þrauka föðurlaus meö móöur sinni og
systkinum. Guðlaugur kom víöa við
áður en hann varð atvinnustjórnmála-
maður: var vélsmiður og kranastjóri,
bæjargjaldkeri, kaupfélagsstjóri,;
kaupmaður og virkur þátttakandi í'
fiskútflutningiístríðinu. !
Þegar Guðlaugur settist á þing var
viöreisnarstjórnin í burðarliðnum.
Hann segir frá kynnum sínum af Olafi
Thors, Bjarna Benediktssyni og fleiri-
stjórnmálamönnum og fjallar mjög:
opinskátt um andrúmsloftið og vinnu-
brögðin í þingflokki sjálfstæðismanna
1959-1978.
Guðlaugs saga Gíslasonar er filmu-
sett og prentuð í Prentstofu Guðmund-
ar Benediktssonar en bundin hjá
Arnarfelli. Sigurþór Jakobsson,
hánnaði bókarkápu.
Tvær teikni-
myndasögur
um Hinrik og
Hagbarð
Iöunn hefur gefiö út tvær nýjar
teiknimyndasögur um kappana Hinrik
og Hagbarð. Eru þetta þriðja og fjórða
bókin um þá félaga sem út koma á ís-
lensku. Höfundur þeirra er belgíski'
teiknarinn Peyo. Þriöja bókin heitir
Stríöiö um lindirnar sjö og segir frá því
er þeir Hinrik og Hagbaröur koma í
gamlan, löngu yfirgefinn kastala. Þar
reynist draugur borgarmeistarans
vera á ferli og getur ekki öðlast frið
fyrr en borgin er aftur komin í réttar
hendur ættar hans. — Hin sagan heitir
Landið týnda og segir frá því aö í ríki
konungs, þar sem Hinrik og Hag-
barður eru hirðmerm, berst með far-
andleikurum strumpur nokkur sem
segir sínar farir ekki sléttar: Hann er
frá Landinu týnda og þar hefur vá-
legur atburður átt sér stað. Þeir Hin-
rik, Hagbaröur og kóngurinn leggja nú
af staö. — Bækur þessar eru gefnar út í
samvinnu við Interpresse í Kaup-
mannahöfn. Bjarni Fr. Karlsson þýddi
textann.
Ráð við illum öndum
Ráð við
illum öndum
eftir William Heinesen
Ut er komiö hjá Máli og menningu
sjöunda bindið í sagnasafni færeyska
meistarans Wiiliams Heinesen, í
þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Þaö
ber heitið Ráð við illum öndum og er
myndskreytt af Zaeharíasi Heinesen.
Bókin hefst á stuttri skáldsögu —
skáldsögustúfi frá hinum sælu dögum
olíulampanna um Leónard og Leónóru.
Síöan koma sjö smásögur og ljóörænar
endurminningar. Sögusviöið er Fær-
eyjar nema í síöustu sögunni,
„Flugum”, sem gerist í Suður-Frakk-
landi.
Þorgeir Þorgeirsson er nákunnugur
skáldskaparheimi Heinesens, og í
þýðingum sínum endurskapar hann
þann heim þannig að engu er líkara en
sögurnar hafi verið frumsamdar á ís-
lensku.
Bókin er 233 bls. að stærð og gefin út
meö styrk frá Norræna þýöingarsjóðn-
um. Hún er unnin að öllu leyti í Prent-,
smiðjunni Odda hf. Kápumynd geröi
Zacharías Heinesen. '
Áfram skröltir
hann þó
Lífsævintýri Páls Arasonar
fjallabílstjóra
Páll Arason var einn af
brautryöjendunum í óbyggðaferðum.
Hann var í hópi þeirra manna sem
fyrstir lögðu á öræfin á bifreiðum,
þeirra er upphaflega ruddu brautina,
og lentu í margs konar þrekraunum og
ævintýrum á ferðum sínum. I þá daga
urðu menn er lögðu í fjallaferðir á
bifreiðum aö treysta á mátt sinn og
megin. Þeir uröu að vera tilbúnir að
gera sjálfir við það sem aflaga fór og
ryðja úr vegi með eigin höndum þeim
hindrunum sem á leiðinni voru. Feröir
upp á öræfin stóðu því stundum marga'
daga og jafnvel vikur og feröamenn-
irnir komust stundum í hann krappan.
Það sveif hálfgerð ævintýramennska
yfir vötnunum og það var sama hvötin
sem rak menn á fjöll og löngum hefur
verið meöal framsækinna manna sú að
kanna hið óþekkta og takast á við erfið-
leikana.
Páll Arason var einn af frumherjum
í fjallaferðum og feröamálum al-
mennt. Ást hans á fegurö öræfanna,
kyrrð þeirra og mikilfengleik átti sinn
‘þátt í að knýja hann til að ganga eöa
sigrast á viðfangsefnunum, oft í hópi
glaöværra vina.
Áfram skröltir hann þó er skráð af
Þorsteini Matthíassyni. Bókin er
filmusett og prentuð í prentstofu
Guðmundar Benediktssonar en bundin
í Arnarfelli. Kápugerð annaöist Sigur-
þór Jakobsson. Utgefandi er örn og
örlygur.
Fjórtán bráðum
fimmtán
eftir Andrés Indriðason
Fjórtán. . . bráðum fimmtán heitir
unglingasaga eftir Andrés Indriðason
sem komin er út hjá Máli og menningu.
Hún er sjálfstætt framhald sögunnar
Viltu byrja með mér sem kom út í
fyrra.
Söguhetjan er Elías sem býr í Breið-
hoitinu, fjórtán ára — bráðum fimm-
tán — og sagan gerist sumarið áður en
' hann byrjar í níunda bekk. Það veröur
viðburðaríkt sumar og skiptast á skúr-
ir og skin. Það besta sem gerist er að
hann kynnist Evu, aðalhlaupaspírunni
á landinu eins og Lási bróðir hans seg-
ir, fallegri stelpu af Akranesi. Hún er
líka góður félagi þegar á reynir.
Fjórtán. . . bráðum fimmtán er 177
bls., prýdd mörgum myndum eftir
önnu Cynthiu Leplar. Hún er að öllu
leyti unnin í Prentsmiðjunni Hólum hf.
I - JS___________
ANDRÉS INDRIDASON
Fingramál
eftir Joanne Greenberg
Bjallan hefur sent frá sér bókina
Fingramál eftir Joanne Greenberg í
þýöingu Bryndísar Víglundsdóttur.
Bókin f jallar um hjónin Jennu og Abel
Ryder sém bæöi eru heyrnarlaus. Lífs-
hlaup þeirra alit einkennist af vangetu
þeirra að eiga samskipti við annað fólk
vegna þess að skilningur þeirra á hinu
talaða máli er mjög takmarkaður og
heyrandi skilur ekki fingramálið. Þeir
sem kynnast Jennu og Abel Ryder
efast ekki um eðlislæga greind þeirra.
Því veröur fötlun þeirra svo átakanleg
að hjá henni heföi mátt komast ef þau,
heföu strax í upphafi fengið möguleik-
ann til að tjá sig með fingramáli.
Þannig sýna þau okkur að fötlun er af-
stæð. Líklegast á bókin Fingramál
fyrst og fremst erindi til fólks í dag af
því að hún sýnir ljóslega gildi góðra
samskipta.
Höfundurinn Joanne Greenberg, er
virtur rithöfundur í heimalandi sínu,
Bandaríkjunum, og hefur hlotiö hin
eftirsóttu Pulitzer bókmenntaverð-
laun.
Prentstofa G. Benediktssonar
annaðist setningu, umbrot, filmuvinnu
og prentun. Arnarfell sá um bókband.
Dagbók
önnu Frank
Iðunn hefur sent frá sér nýja útgáfu
á Dagbók önnu Frank. Bók þessi kom
út á íslensku árið 1957 í þýðingu séra
Sveins Víkings og hefur um langt skeið
verið ófáanleg með öllu. Bókin er eitt
frægasta og mest lesna rit frá tímum
seinni heimsstyrjaldarinnar, hefur
verið þýdd á f jölmörg tungumál, snúið
í leikrit og kvikmynd.
Anna Frank var ung hollensk stúlka
af gyðingaættum. Þegar nasistar hófu
útrýmingarherferð sína á hendur
gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni
tókst f jölskyldu hennar að leynast í tvö
ár uns nasistar fundu hana og hnepptu
í fangabúðir. Tæpu ári síðar andaðist
Anna Frank í fangabúðunum í Bergen-
Belsen í mars 1945. Faðir hennar var
hinn eini úr fjölskyldunni sem lifði af.
Eftir að hann sneri heim fékk hann í
hendur dagbók dóttur sinnar sem
fundist hafði að henni látinni. Hann
leyfði að þessi einstæða bók kæmi út.
Dagbók önnu tekur yfir þau tvö ár
sem fjölskyldan lifði í felum þegar
Anna er fjórtán til sextán ára. Bókin
sýnir undraverðan þroska stúlkunnar
og næmleika.
Dagbók Önnu Frank er 270
blaðsíður, ljósprentuð hjá Odda.