Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Page 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER 1983. 37 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Fylgst með þristökkvara. Hann er aö lenda eftir þriöja stökkið. Reykjaskólakrakkar gegn Reykhyltingum Krakkarnir í héradsskólunum í Reykholti í Borgarfirdi og Reykja- skóla í Hrútafirði þreyttu nýlega með sér keppni í margvíslegum íþróttum. Keppt var í sundi, frjálsum íþróttum, skák, borðtennis, knatt- spyrnu, körfubolta og fleiru. Það voru um sjötíu nemendur sem óku úr Hrútafirði suður yfir Holta- vörðuheiði og í Borgarfjörðinn til að heilsa upp á krakkana í Reykholti. Keppnin fór í alla staði vel fram. Meðal annars setti Ólafur Hjartarson úr Reykholtsskóla nýtt skólamet í bakskriðsundi. íþróttamótinu lauk með sigri Reykholtsskóla. Um kvöldið var svo stiginn dans. Pórunn Reykdal. Stokkið á bfí i gegnum pýramída Það er víst óhætt að titla hann ofurhuga, hann Spanky Spangl- er. Nýlega flaug hann á tíu ára gamla bílniun sínum í gegnum pýramída sem gerður var úr fimmtán gömlum bíldruslum, án þess svo mikið sem skráma sig. Spanky ók bílnum sínum á 140 kílómetra hraða upp á stökk- bretti og flaug fimmtán metra áfram í loftinu áður en hann rakst á bílapýramídann. Með- fylgjandi myndir sýna hvernig Spanky fórað. Atrennan og stökkið höfðu auðvitað verið vandlega reiknuð út til að Spanky myndi örugg- lega hitta í gatið fyrir ofan sendi- ferðabílinn í miöjum pýramíd- anum. Bíll Spankys tróðst í gegnum gatið, felldi um leið efri hluta pýramídans og hentist áfram tíu metra í loftinu áður en hann skall á jörðina. Spanky hafði hjálm á höfði. Þegar hann flaug fram af stökk- brettinu lagðist hann niður í sætið til frekara öryggis. Að stökkinu loknu steig hann ómeiddur úr bílnum sínum, sem reyndar var orðinn bilflak, og tók við fagnaöaróskum áhorf- enda. En hvers vegna var hann að þessu? Hann gerði þetta fyrir sjónvarpsþáttinn bandaríska, That’s Incredible.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.