Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1983, Page 40
TAL STÖDVARBILAR
um alla borgina...! A
85000 1
SÍMI
LOKI
Menn verða grænir af
fíeiru en öfundinni!
Varmi
Bílasprautun hf.
i
NÝJA SENDIBÍLASTÖOIN
KNARRARVQGI2 - REYKJAVÍK
„Nýtt orku-
verð fyrir
nýálver”
— ogþarámeðai
stækkun hjá ísal,
segir iðnaðarráðherra
„Þaö sem viö munum bjóöa er nýtt
orkuverð fyrir ný álver og þar á meöal
stækkun hjá ísal. Eg ætla ekki aö bjóöa
Alusuisse eöa fallast á neitt meöalverö
til gamla álversins og stækkunarinn-
ar. Þaö verður aö semja um hvort fyrir
sig,” segir Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra um fyrirhugaða
samninga við Alusuisse.
Áformin snúast um aö stækka álver
Isals úr 80 þúsund tonna framleiðslu-
getu á ári i 160 þúsund, þó í áföngum.
Þótt núverandi álver sé ekki gamalt og
hafi jafnvel veriö endurbætt aö búnaði
mjög verulega, eru afköst á mann eða
svoköllrð framleiðni langtum minni en
ínýjum álverum.
Til marks um þetta þarf um 750
manns til þess aö framleiöa 80 þúsund
tonn á ári í Straumsvík. En í skýrslu
Ardal-Sunndal frá í fyrra um nýtt 130
þúsund tonna álver hér á landi var
reiknað meö aö ekki þyrfti nema (S0
starfsmenn að því álveri. Þannig fást
1.066 tonn á starfsmann Isals í núver-
andi álveri en myndu fást 2.000 tonn á
starfsmann nýs álvers, aö áliti Ardal-
Sunndal.
I skýrslu þeirra var ennfremur
reiknað meö því að raforkan kostaöi
17,5 bandarisk mill kílóvattstundin. En
framleiöslukostnaður hér er nú talinn
vera kominn um eöa yfir 20 mill frá
nýjum orkuverum. Isal greiddi til
skamms tíma 6,45 mill en greiöir nú
um sinn 9,5 mill á meöan samningaum-
leitanir um framtíðarviðskipti ríkisins
og Alusuisse standa yfir. HERB
Lögreglu-
menn kærðir
Ungur maöur hefur kært þrjá lög-
regluþjóna í Reykjavík fyrir mis-
þyrmingar viö handtöku. Var maður-
inn tekinn af lögreglunni aö ósk dyra-
varöar viö eitt veitingahús borgarinn-
ar sl. laugardagskvöld og fluttur hand-
járnaður í lögreglubílinn.
Ber hann aö á leið á lögreglustöðina
hafi einn lögreglumannanna ráðist á
sig í bílnum og hinir ekkert gert til að
varna því. Er maðurinn nefbrotinn og
marinn í andliti og auk þess rispaöur
og rifinn víða um likamann. -klp-
Leiðrétting
Frétt blaösins í gær um þrí-
burafæöingu í Hafnarfiröi hefur reynst
tilhæfulaus. Hún er afleiðing tilraunar
rannsóknarlögreglumanns til gaman-
semi i viötali viö fréttamann blaðsins.
Er hér meö beðist afsökunar á þess-
ummistökum.
Auóbrekku14 Kópavogi
Simi 44250
P
27022 au6LÝSINGAR
” SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLT111
86611 RITSTJÓRN
SIOUMÚLA 12-14
Frjálst, óháð dagblaö
ÞRIÐJUDAGUR 29. NOVEMBER 1983.
Launatengd gjöld allt
að 35% af kauptöxtum
Launatengd gjöld og annar óbeinn
kostnaöur sem atvinnurekendur
greiða til viðbótar beinum launa-
greiöslum er á bilinu 31% til 35% sem
hlutfall af kauptöxtum, aö því er
fram kemur í fréttabréfi kjararann-
sóknamefndar.
Eins og fram hefur komiö hefur
Vinnuveitendasamband Islands lýst
þvi yfir aö ekkert svigrúm sé til aö
auka launakostnað fyrirtækjanna í
landinu. Hins vegar hefur VSt sett
fram þá hugmynd að með þvi að
létta einhverjum þessara gjalda af
fyrirtækjunum megi greiöa þau
beint í launaumslög launþega.
Launatengdu gjöldin eru mismun-
andi hlutfall af kauptöxtum eftir
starfsstéttum. I athugun kjararann-
sóknarnefndar, sem byggir á 12.570
manna úrtaki, er eftirfarandi flokk-
un á hlutfalli launatengdra gjalda af
kauptöxtum: Iöja 32,6%, hafnar-
verkamenn 33J%, fiskvinnufólk
31,4%, prentarar 32,6%, afgreiðslu-
fólk 34,9% og skrifstofufólk 33,7%.
HlutfaD þessara gjalda af kaup-
töxtum afgreiöslufólks er eftirfar-
andi: veikinda- og slysagreiöslur
5,4%, orlof 10,72%, vinnueftirlits-
gjald 0,08%, sjúkrasjóður 1,16%,
orlofsheimilasjóöur 0,29%, lifeyris-
sjóöur 6,96%, samningsbundin slysa-
trygging 0,15%, atvinnuleysistrygg-
ingasjóður 0,58%, lifeyristrygging
1,5%, lögbundin slysatrygging
0,18%, launaskattur 4,07%, félags-
gjald atvinnurekenda 2,86%,
aöstöðugjald 0,87%, ábyrgðartrygg-
ing 0,08%. Þetta er samtals 34,9%
álag sem atvinnurekandi greiðir til
viðbótar viö laun hvers starfsmanns.
Þá gerir k jararannsóknamefnd út-
tekt á hlutfaUi sérstakra frídaga og
greiddra kaffi- og matartíma af
kauptöxtum. I fyrrgreindri flokkun
starfsstétta er þetta hlutfaU á bUinu
10% tfl 14%. Meðal afgreiðslufólks er
þetta hlutfaU 11,8% af kauptöxtum,
þar af kaffi- og matartimar 7,5% og
sérstakir frídagar 4,3%. Sérstakir
lögbundnir frídagar em aö meðaltaU
umlláhverjuári. qef
Aðvantukvöld var hakSð i Bústaðakirkju i fyrra-
kvðkl, það tuttugasta i röðinni. HúsfyBir var og
lætur nærri að um 600 manns hafi mætt Hár má sjá
nokkra kirkjugesti af yngri kynslóðinni. Á innfelldu
myndinni sjást þau Ólafur Skúlason vigslubisk up og
prastur i Bústaðakirkju, Sólveig Ásgeirsdóttir bisk-
upsfrú, herra Pétur Sigurgeirsson biskup, og Jón
Helgason kirkjumálaráðherra.
-ÖÞ/DV-myndir S.
Gulgræna kjötið margfræga:
BUIN AÐ BORÐA ÞAÐ
MEÐ BESTU LYST
—aðeins850 kíló af um 60 tonnum reyndust ónýt
Þau rúmlega 60 tonn af ársgömlu
kindakjöti, sem HeilbrigöiseftirUtið
stöövaði sölu á í síðasta mánuði,
reyndust þegar allt kom til alis ekki
vera jafnmikiö skemmd og í fyrstu
var ætiaö. Megnið af því hefur veriö
sett á markað aftur, einungis 850 kiló
vórudæmdónýL
Kjöt þetta, sem kallað hefur veriö
gulgræna kjötiö af gamansömum
borgarbúum, hafði verið geymt í
kjötgeymslum Sambandsins á Sel-
tjarnamesi frá þvi í fyrra en kjöt-
geymslur þessar munu ekki vera
þær bestu í bænum. Upphaflega vom
um 270 tonn í geymslunum en rúns-
um 200 tonnum hafði þegar veriö
dreift er salan var stöövuö.
Eftir aö yfirkjötmatsmaður og
dýralæknir höfðu skoðað kjööö voru
35 tonn send rakleitt á markaðinn,
850 kílóum var hent og afgangurinn
var lækkaður um flokk eða flokka og
aö mestu notaöur í unna k jötvöru. Að
sögn Odds R. Hjartarsonar, fram-
kvæmdastjóra HeUbrigðiseftirlits-
ins, vora það skrokkar í ysta hluta
stæðanna sem reyndust eitthvaö
skemmdir en inni i stæðunum var
kjötiðóskemmt. -
Magnús Gunnarsson
rmm
„Það kemur mjög skilmerkilega
fram i fréttabréfi kjararann-
sóknamefndar hvað þessi laun-
tengdu gjöld eru mikil,” sagði
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuvdtendasam-
bandsins.
Magnús sagði að VSI hefði sér-
staklega rætt um að feUa niður
framlög í sjúkrasjóð, sem ,er 1%
gjald af launum, og orlofsheimila-
sjóð, sem er 0,25% af launum.
„Þegar við erum farnir að miða við
stöðugt gengi og stöðugt verölag
þá skiptir hvert prósent miklu
máii,” sagði Magnús. Hann nefndi
einnig að það væri mat VSI að laun-
þegum kæmi betur að orlof yrði
aftur stytt úr 5 vikum í 4 og í stað-
inn kæmi sambærileg greiðsla i
launaumslagið.
Hvað varðar kaffitíma, matar-
tima og sérstaka frídaga sagöi
Magnús: „Við erum að skoða
þessar stærðir og meta hvaö það
myndi segja ef viö keyptum þetta
af fólki. Það Uggja ekki fyrir
neinar mótaðar tiUögur. En það
kemur vel til greina að vrnna ein-
hverja þessa fridaga. Við erum að
verða eins og verstu kaþóhkkar.
Sérstaklega er athugandi að
sumardagurinn fyrsti og uppstign-
ingardagur yrðu geröir að
vinnudögum.”
Viðræður ASI og VSt munu hefj-
ast strax og Alþingi hefur afiiumið
bráðabirgðalögin um afnám
samningsréttar. Siðastliðinn föstu-
dag hófust hins vegar viðræður
þessara aðila um leiðir til eflingar
íslensku atvinnulifí.
Einnig munu ASÍ og VSI hafa
samráð um könnun sem beinist aö
því að finna hverjir séu verst
staddir í þjóðfélaginu og hvaða
leiðir séu þeim til úrbóta. Könnunin
verður unnin á vegum kjararann-
sóknamefndar en kostuö af for-
sætisráðuneytinu. -ÓEF.
Óllumá Alþýðu-
blaði sagt upp
„Það hefur ekki verið gert enn en
það stendur til að segja öUum upp,”
sagði Sighvatur Björgvinsson,
formaður þriggja manna nefndarinnar
sem unniö hefur að rannsókn á útgáfu-
starfsemi Alþýðublaðsins undanfarinn
mánuð, aðspurður. „Við vonumst til að
hægt verði að nota þennan þriggja
mánaða uppsagnarfrest tfl að finna
aðrar leiðir til að geta haldið útgáfu
blaðsins áfram hvort sem það veröur í
breyttri mynd eða þeirri sömu,” sagði
Sighvatur viö DV í morgun. Starfs-
menn þeir sem sagt er upp eru 14
talsin.*;
Sagði Sighvatur að uppsagnirnar
væru mikil vonbrigði en annað væri
útilokað.,JÉg vil ekkert segja um f jár-
hagsstöðu Alþýðublaðsins annað en að
hún er mjög slæm og næstum ófram-
kvæmanlegt aö fyrirsjá einhverjar
vcrulegar breytingar.” -IIÞ.