Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Qupperneq 31
DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983.
31
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Faðir minn —
kennarinn
Ut er komin hjá bókaútgáfunni
Skuggsjá, Hafnarfirði, bókin Faöir
minn — kennarinn sem Auðunn Bragi
Sveinsson skólastjóri hefur safnað efni
í. I bókinni eru f jórtán þættir um lands-
kunna og virta kennara sem allir hafa
haft mikil áhrif í uppeldis- og fræðslu-
málum þjóðarinnar og margir standa í
ómældri þakkarskuld viö.
Gísli R. Bjarnason eftir Kristin
Gíslason; Kristján Júlíus Jóhannesson
eftir Andrés Kristjánsson; Sigurjón
Jóhannsson eftir Katrínu Bryndísi
Sigurjónsdóttur; Steinþór Jóhannsson
eftir Bryndísi Steinþórsdóttur;
Magnús Pétursson eftir Ingibjörgu R.
Magnúsdóttur; Friðrik Hansen eftir
Emmu Hansen; Ingimar Hallgrímur
Jóhannesson eftir Sigríði Ingimars-
dóttur; Jóhannes Guðmundsson eftir
Sigurjón Jóhannesson; Halldór Sölva-
son eftir Þórhildi Halldórsdóttur;
Jóhann Þorsteinsson eftir Kjartan
Jóhannsson; Helgi Olafsson eftir Gizur
I. Helgason; Guðmundur Þorláksson
eftir Steilu Guðmundsdóttur; Benedikt
Guðjónsson eftir Brynju Kristjönu
Benediktsdóttur; Olafur Hansson eftir
Gunnar Olafsson.
Skuggsjá hefur áður gefið út fimm
hiiðstæðar bækur um lækna, bændur,
skipstjóra, presta og skólastjóra sem
allar hafa orðið vinsælar. Faðir minn
— Kennarinn er 237 bls. að stærð auk
mynda-arkar, þar sem birtar eru
myndir af öllum kennurunum sem um
er ritað og börnum þeirra, höfundum
ritgerðanna. Bókin er sett hjá Acta hf.,
prentuð í Prenttækni og bundin i Bók-
fellihf.
Enginn veit
sín örlög
eftir Evi Bögenœs
Iðunn hefur gefið út nýja bók eftir
hinn vinsæla norska höfund, Evi Böge-
næs. Nefnist hún Enginn veit sín örlög.
Eftir Evi Bögenæs hafa komið út á
íslensku allmargar sögur og notið vin-
sælda en sögur hennar eru einkum við
hæfi ungra stúlkna. Efni nýju sög-
unnar er á þá leið að Nanna, aðal-
persónan, er tvítug stúlka og trúlofuð
Eiríki sem er tíu árum eldri en hún.
Nanna er lífsglöö en Eiríkur ráðsettur
og lætur tilfinningarnar aldrei ráða
feröinni. Honum finnst unga fólkið of
laust í rásinni en vonar að Nanna muni
stillast áður en þau giftast. Það á að
verða að ári liðnu en þangaö til ætlar
Nanna að vinna á skrifstofu. Þar
eignast hún nýja vinkonu og hittir hjá
henni gamlan vin sinn, Níels.
Enginn veit sín örlög er 100 síðna
bók. Margrét Jónsdóttir þýddi söguna.
Oddi prentaöi. Brian Pilkington gerði
kápumynd.
Listaverkabók um Jóhann Briem
Með viljann að
vopni
Lrfsreynslusaga Guðmundar
í Víði
Bókaútgáfan Vaka hefur gefið út
bókina Með viljann að vopni — lífs-
sögu Guðmundar Guðmundssonar í
Víði, eftir Kjartan Stefánsson. Bókin
er á þriðja hundrað síður og prýða
hana rúmlega sextíu myndir, flestar
áöur óbirtar.
I kynningu forlagsins á bókarkápu
segir að lífssaga Guðmundar í Víði sé
saga stórhuga og dugandi athafna-
manns. Hann varð blindur á bams-
aldri, en lét hvorki það né annaö mót-
læti buga sig, heldur gekk tvíefldur til
verks. Á unglingsárum hóf hann hús-
gagnasmíöi, byrjaöi skipulega fram-
leiðslu fyrir almennan markaö í
kreppunni á f jórða tug aldarinnar og
stofnaöi síöan Trésmiðjuna Víði sem
lengi hefur verið ein stærsta hús-
gagnaverksmiðja landsins.
Kjartan Stefánsson, höfundur
bókarinnar, starfar sem blaðafulltrúi
Verslunarráðs tslands. Hann hefur
skráð þessa reynslusögu Guðmundar
í Víði samkvæmt samtölum við hann
og ýmsa þá sem hafa verið honum
samferða á lífsleiðinni. Þá hefur
Kjartan einnig leitað í ýmsar aðrar
heimildir.
Auk starfs og baráttusögu
Guömundar er í bókinni fjallað ítar-
lega um einkahagi hans og það
hvemig hann hefur unnið markvisst
gegn því að láta sjónleysið veröa sér
til trafala. Er ekki síst forvitnilegur í
því sambandi kafli sem ber heitið
Heimur í hugskoti þar sem Guðmund-
ur lýsir því, hvemig hann skynjar
umhverfi sitt.
Bókin Með viljann aö vopni er að
öUu leyti unnin í Prentsmiðjunni
Oddahf.
THORKILD HANSEN
Þrælaeyjarnar
eftir Thorkild Hansen
Þrælaeyjamar er þriðja bókin í
bókaflokki Thorkild Hansen um þræla-
hald og þrælasölu Dana í Vestur-
Indíum sem hann hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs fyrir. Fyrri
bækurnar eru Þrælaskipin og Þræla-
ströndin. Thorkild Hansen hefur hlotið
einróma lof fyrir bækur sínar, m.a.
hlotið gullna lárviðarsveig danskra
bókaútgefenda og þriggja ára starfs-
laun fyrir vinnu að sögulegum bók-
menntaverkum. Utgefandi er Ægisút-
gáfan. Setning og prentun: Prent-
smiöja Ama Valdimarssonar.
Bókband: Örkin. Þrælaeyjarnar er 456
bls.
Ut er komið þriðja bindið í ritröðinni
Islensk myndlist sem Listasafn ASI og
bókaútgáfan Lögberg gefa út.
Bókin fjallar um Jóhann Briem list-
NÝ BARNABÓK
málara og verk hans. HaUdór B.
Runólfsson listfræðingur skráði.
I bókinni eru eftirprentanir fimmtíu
og fjögurra málverka og vatnsUta-
mynda auk pennateikninga og em
myndirnarfrá fimmtíu ára tímabiU.
Bókin er prentuð í prentsmiðjunni
Odda hf., en Utgreiningu annaðist
Kassagerö Reyk javíkur hf.
Fyrri bækur í bókaflokknum em:
Ragnar iSmára og Eiríkur Smith.
Hvaða augum
lítur barnið
dauðann?
Hvernig bregst sex
ára drengur við
þegar pabbi hans
deyr?
Hver er skilningur
hans á að lífið
haldi áfram?
Guðrún Alda Harðardóttir
Sagan lýsir á raunsæjan hátt hvað hrærist 1
huga sex ára drengs, sem missir pabba sinn í
bílslysi. Efnið vekur okkur til umhugsunar
um hvaða augum við lítum á dauða náinna
ástvina.
Saga sem allir hafa gott af að lesa. IfaslflM-y
Hvað er meðferð?
í bókinni Furöuheimar alkóhólismans, er hulunni svipt af starfsháttum AA.
Höfundurinn, Steinar Guömundsson fer á kostum I umfjöllun sinni um meðferó
og í hverju hún sé fólgin. Bókin kostar aðeins 500 kr. og er hægt að fá hana senda
gegn póstkröfu (ekkert kröfugjald). Hringiö I slma 33370 eða fyllið út með-
fylgjandi miða og sendið okkur.
/
[ l«t§