Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Síða 32
DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983.
Bíleigendur -1
ið seljum efni til að þrifa biiinn, svo sam bón o.fi.,
sam nánast vinna sig sjálf, þú ert aðeins þátttak-
andi.
Leitaðu upplýsinga
Alsprautum, blettum og réttum bíla.
Sérhæfum okkur í aö gera bíla söluhæfa.
Ef þú átt einrt slíkan, komdu þá með
hann í meðferð hjá ÁFERD.
Þú færð það margfa/t til baka
Greiðsiuskilmálar.
10% afsláttur af aisprautun
i desember og janúar.
1
I
I
I
I
I
I
| AFERÐ H/F
■ Heildsala-smásala Funahöfða8. SIIVll 85930
vu/fif aui^cif
af ýmsum stærðum og gerðum. Upp/. /
síma 92-7631.
Nú
er
greni-
skógurinn
þéttur
afjólatrjám
★
Rauðgreni
★
Eðalgreni
★
Leiðisvendir,
leiðiskrossar
Viðskiptavinir athugið:
Okkar jólatré hafa aldrei
komið í hús.
Það tryggir barrheldnina.
MIKLATORGI
OPIÐ /■
1 9-21 I
/ SÍMI 1
/ 22822 V
Skyldu það vera áifar sem hafa verið oð gera vegagerðarmönnum á Ennisvegi erfitt fyrir i haust? Hér
er næturvaktin ikaffitima. Gylfi Hallgrímsson verkstjóri er annar frá hægri i fremri röð.
OV-mynd Ægir Þórðarson.
Álfar á Ennisvegi?
Óvæntir atburðir hjá vegagerðarmönnum
Frá Hafsteini Jónssyni, fréttaritara
DV á Hellissandi.
Framkvæmdir viö veginn undir
Olafsvíkurenni hófust að nýju í lok
október eftir sumarlangt hlé. Vegur-
inn var opnaöur til umferðar þann
17. júlí síöastliöinn en grjótvöm var
þá ekki lokið og vegurinn var ekki
kominn í fulla hæö.
Starfsmenn verktakafyrirtækisins
Hagvirkis hf. hafa unnið á vöktum
allan sólarhringinn við grjótflutn-
inga og sprengingar. Þrátt fyrir þaö
hefur verkinu lítiö miðað áfram
vegna biiana í tækjum og annarra
erfiðleika. Hefur þetta gengið svo
langt að framkvæmdir hafa stundum
nánast legið niðri vegna bilana og
sumar þeirra eru allundarlegar, svo
ekki sé meira sagt. Þetta hefur gefið
ímyndunarafli manna hér undir
Jökli lausan tauminn og sýnist sitt
hverjum um ástæðumar.
Fréttaritari og ljósmyndari DV
litu inn í kaffitíma hjá Hagvirkis-
mönnum rétt fyrir miðnættið fyrir
skömmu og ræddu við þá nokkra
stund.
Gylfi Hallgrímsson verkstjóri var
spurður hverjar hann teldi vera aðal-
ástæðurnar fyrir þessum töfum.
„Ég veit ekki hvað ég á að segja,
en ætli það sé ekki aðallega þreyta og
slitítækjum.”
— Er það rétt, Gylfi, aö bílar og
önnur tæki hafi farið í gang án þess
aö nokkur maður hafi komið þar
nálægt?
„Nei, ekki hef ég heyrt það. Hins
vegar hafa þeir tekið upp á því að
fara allt í einu á fulla inngjöf án þess
að nokkur maður væri í þeim, eða
kæmi þar nálægt, en þeir hafa þá
verið í gangi fyrir. Einnig hafa ljós
slokknað á bílum á keyrslu í nám-
unni og eitt og annað hefur gerst.”
Þorgeir Kristinsson borstjóri sagöi
að stálstengur boranna heföu
brotnað eftir sáralitla notkun og
einnig hefðu festingar boranna á bor-
vélunum brotnað.
„Þetta verður að teljast frekar
óvenjulegt þegar verið er að bora í
gegnum leir og þannig klöpp að lítið
reynir á borana,” sagöi Þorgeir.
Viðar Breiðfjörð, aðstoðarmaður á
bor, sagði að í haust hefði ýmislegt
gerst sem erfitt væri að skýra. Sem
dæmi nefndi hann að rafmagn hefði
farið af farartækjum þegar þau færu
yfir vissan blett í námunni.
„Einnig hafa farartæki alls ekki
látið aö stjóm en síðan allt farið í
eðlilegt ástand aftur. Það hefur verið
reynt aö drepa á sumum farartækj-
anna í svona tilfellum en ekkert
hefur dugaö,” sagði Viðar.
Eftir aö hafa rætt við þá Hag-
virkismenn um þetta góða stund
voru flestir á því að þetta hlyti allt að
eiga sínar eðlilegu skýringu, eða
hvað? -GB
„VAR BÚIN AÐ VARA EINN
VERKSTJÓRANN VIД
— segir Halldóra Kristleifsdóttir húsfreyja í Rifi
Frá Hafsteini Jónssyni, fréttaritara
DV á Hellissandi.
Halldóra Kristleifsdóttir húsfreyja
hefur búiö í Rifi í 51 ár ásamt Frið-
þjófi Guðmundssyni útvegsbónda.
Halldóra er ekki hissa á erfiöleikum
Hagvirkismanna í grjótnámunni
fyrir sunnan byggðina í Rifi.
„Ég var búin að vara einn verk-
stjórann, sem var hér í vor, við því
að það gæti dregið dilk á eftir sér að
hreyfa við klettunum þar sem þeir
eru komnir núna,” sagði Halldóra.
— Hvað er því til fyrirstöðu að
sprengja þessa kletta?
„Þegar ég kom hingað, ung kona
fyrir rúmum 50 árum, þá sagði mér
gamalt fólk hér í hreppnum að þau
munnmæli heföu gengið mann fram
af manni að í þessum klettum og
holti, sem verið er að sprengja núna,
byggi fólk sem væri hulið sjónum
okkar flestra. Og best væri að hreyfa
ekki við neinu á þessum stað.”
— Hefur þú orðið fyrir einhverri
reynslu eða séö eitthvað þama?
„Já, og það oftar en einu sinni. I
gamla daga, áður en núverandi vegir
voru lagöir, lá leiðin frá Rifi að Ingj-
aldshólskirkju og Kjalvegi, sem er
næsti bær við Ingjaldshól, framhjá
þessum klettum og holti. Þá kom það
nokkrum sinnum fyrir að ég sá þar
fólk, aðallega konur og börn. Þetta
Halldóra Kristleifsdóttir var búin að vara menn við þviað sprengja klett-
ana i Rifi.
D V-m yndir Ægir Þórðarson.
var hvorki fólk héðan né ferðamenn.
Það var síðklætt og það var eins og
liturinn á klæönaði þess væri allur
bláleitur og eitthvað langt frá okkar
tíð.”
— Hvaðvarðsvoumfólkið?
„Það var eins og þaö hyrfi þarna í
■ klettana eöa leystist einhvern veginn
upp. En svo kom líka fyrir að ég sá
ekkert en heyröi raddir og einu sinni
fannst mér ég heyra söng.”
— Heldurðu að það sé ekki erfitt
fyrir nútímafólk að leggja trúnaö á
svonalagaö?
„Jú, það efast ég ekkert um. En ég
hef sagt satt og rétt frá eins og þetta
kom fyrir mig. Svo hafa verkin líka
talað.” -gb